Fréttablaðið - 15.08.2015, Síða 38
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN TÆKNI | 38
NOTES
Skrái alls kyns punkta og hugmyndir í þessu.
Þeir sjást síðan strax sjálfkrafa í tölvupóstin-
um. Stundum er einfaldasta appið það besta.
INSTAGRAM
Til komast að því hvar fólk er og hvað það
er að gera. Instagram er persónulegra en
Facebook og Snapchat og fólk ófeimnara.
TWITTER
Ég fylgi nærri öllum Íslendingum sem
ég sé á Twitter. Þetta er besta leiðin til
að sjá hvað fólk er að tala um, hvernig
það talar og til að uppgötva klárt og
skemmtilegt fólk.
PODCASTS
Ég hlusta yfirleitt á 60-90 mín-
útur af útvarpsþáttum á netinu
daglega. Aðallega viðtöl við áhuga-
verða frumkvöðla og rithöfunda.
3G 9:41 AM
Twitter
UPPÁHALDS
ÖPPIN8
Podcasts Highrise
Harvest Tripit
Buycott
Instagram Notes
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
Andrés Jónsson
almanna tengill
HARVEST
Í því skrái ég og held utan um alla þá
útseldu tíma sem ég vinn fyrir skjól-
stæðinga Góðra samskipta. Mjög mikil-
vægt til að geta rukkað fyrir ráðgjöf.
TRIPIT
Maður áframsendir tölvupóst frá flug-
félögum og hótelum á appið og það
heldur utan um allt ferðaskipulagið.
HIGHRISE
CRM-forrit með upplýsingum um alla sem
ég hef átt í beinum samskiptum við auk
nokkurra annarra, alls um 15.000 manns.
BUYCOTT
Skannar strikamerki og gefur upp-
lýsingar um hvernig framleiðandinn
stendur sig í umhverfisvernd, framkomu
við starfsfólk og hvort þetta sé nokkuð
síbrotafyrirtæki.
Tólin eru af ýmsum toga. Þann
9. febrúar 1941, þegar jarðarbú-
ar voru á barmi þess að tæta
heimsmynd sína í sundur, óskaði
Winston Church ill eftir hergögnum
frá Bandaríkjunum: „Gefið okkur
verkfærin, og við klárum verkið,“
sagði Churchill. Sama dag lá Albert
nokkur Alexander í sjúkrarúmi í
Oxford. Sýking hafði svipt hann
sjóninni. Hann átti aldrei eftir að
sjá rósarunnana á ný. Þegar þýskum
sprengjum rigndi yfir Bretlandseyj-
ar nokkrum dögum áður sat Albert
í moldarbeði við heimili sitt í borg-
inni og hugaði að rósunum. Garð-
klippurnar voru verkfæri Alberts.
Sögulegar heimildir eru á reiki um
hvað gerðist næst en svo virðist sem
Albert hafi hrasað og hruflað andlit
sitt á þyrnunum.
Næstu vikur háði ónæmiskerfi
Alberts eigin heimsstyrjöld við
bandalag streptó- og stafýlókokka.
Orrusta af þessu tagi hafði farið
fram ótal sinnum og í ótal mörgum
líkömum. En ónæmiskerfi Alberts
var það fyrsta sem naut liðsinn-
is framandi hergagna. Penisilín
flæddi um líkama hans. Eftir blóð-
ugt stríð var sýkingin loks í rénun
og skyndilega var sigur í höfn.
Skaðinn var þó skeður og hýsillinn
Albert – augnalaus og þakinn sárum
– var allur. Orrusta Alberts átti eftir
að breyta heiminum. Hann fékk
fyrstur manna penisilín í æð og það
átti eftir að sanna sig sem öflugra
tól en allar sprengjur styrjaldarinn-
ar sem geisaði fyrir utan spítalann
í Oxford.
Gullöld
Á þeim áratugum sem liðnir eru frá
því að lögreglumaðurinn með grænu
fingurna lést hafa sýklalyf á borð
við penisilín flætt um æðar millj-
óna manna. Sá sem stóð við sjúkra-
rúmið í Oxford, með sprautu á lofti,
var Alexander Fleming. Hann hlaut
Nóbelsverðlaun í læknis fræði 1945
fyrir uppgötvun penisilíns. Flem-
ing gerði sér grein fyrir gífurlegum
möguleikum lyfsins, en hann var
einnig meðvitaður um hættuna sem
fylgir þeim. „Sá dagur mun koma að
penisilín verður aðgengilegt öllum,“
sagði Fleming við verðlaunaathöfn-
ina. „Þá er hætta á að hinn fávísi
noti lyfið í of litlu magni og örverur
hans komist í tæri við lyfið í vægu
magni svo ónæmi myndast.“
Þarna var Fleming að lýsa stöðu
mála eins og hún er í dag. Sýkla-
lyfjaónæmi er meiriháttar ógn við
almannaheill. Eða, eins og Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin orðar það:
„Þessi ógn er ekki lengur spá, hún
er til staðar, í öllum heimshornum
og getur haft áhrif á hvern sem er,
á hvaða aldri sem er, í hvaða landi
sem er.“
„Við misstum okkur í gleðinni,
það leikur ekki nokkur vafi á því,“
segir Magnús Gottfreðsson, sér-
fræðingur í smitsjúkdómum. „Sama
hvert við lítum þá hefur notkun
sýklalyfja verið hömlulaus og óhóf-
leg og nánast án eftirlits. Það er
fyrst núna sem menn eru að vakna
upp við vondan draum.“
Veröld án sýklalyfja
Uppgötvanir sem gjörbylta samfé-
lagi okkar eiga það til að hverfa í
bakgrunninn. Þær verða sjálfsagð-
ar. Þegar þessir sjálfsögðu hlut-
ir eru síðan teknir út úr jöfnunni
gengur dæmið ekki upp. Í veröld án
sýklalyfja fer almenn heilbrigðis-
þjónusta úr skorðum. Lyfjameðferð
vegna krabbameins er nær óhugs-
andi þar sem fjöldi hvítkorna hryn-
ur í blóði krabbameinssjúklinga
með tilheyrandi hættu á sýkingu.
Hætta á blóðsýkingu hjá þeim sem
þurfa á himnuskiljun að halda verð-
ur óásættanleg. Í raun verður erf-
itt að opna líkama sjúklings án þess
að horfast í augu við mikla hættu á
sýkingu. Sótthreinsun, hrein her-
bergi og sóttkví koma aðeins í veg
fyrir sýkingu frá umheiminum.
Fyrir hverja frumu í líkamanum
eru 10 örverur. Þær eru trilljón tals-
ins. Það er því töluverð hætta á að
bakteríur á húðinni rati fyrir slysni
ofan í líkamann þegar hann er opn-
aður. Við erum sjálfum okkur verst.
Jafnframt mun töluverð hætta
stafa af hversdagslegum slysum.
Albert okkar er ágætt dæmi um
það. Þar sem hin minnsta skráma
getur valdið alvarlegum veikindum.
Þá munu hefðbundnar pestir verða
erfiðar viðureignar. Þegar heimilis-
læknirinn þinn ávísar sýklalyfjum
vegna streptókokka þá er það ekki
gert svo að þú verðir betri í hálsin-
um. Sýkingin getur nefnilega leitt
til þess að ónæmiskerfið ráðist á
hjartalokur og eykur líkur á hjarta-
vanda í framtíðinni.
„Þetta er kannski hinn stóri
harmleikur sögunnar,“ segir Magn-
ús. „Að menn hafa verið að nota
sýklalyf þegar það á engan veg-
inn við. Af því hlýst bæði kostnað-
ur fyrir sjúklinginn og ónæmi sem
allir í kringum hann verða fyrir
barðinu á fyrr eða síðar.“
Ónæmi á Íslandi
Í nýrri skýrslu frá Embætti land-
læknis um sýklalyfjanotkun kemur
fram að notkun þeirra hefur
minnkað frá 2012. Þá hefur sýkla-
lyfjanotkun í dýrum einnig minnk-
að en sérstakar áhyggjur vekur
vaxandi ónæmi iðrabaktería hjá
mönnum fyrir breiðvirkum sýkla-
lyfjum en það eru vetnissprengj-
ur fúkkalyfjanna. Þær drepa allt.
Ónæmi ætti „að vera hvatning
innan heilbrigðiskerfisins til skyn-
samlegrar sýklalyfjanotkunar hér
á landi“ segir í samantektinni.
Þórólfur Guðnason, settur sótt-
varnalæknir, segir Íslendinga
standa sig nokkuð vel í alþjóðleg-
um samanburði. Hann ítrekar að
ónæmar bakteríur og þær bakterí-
ur sem valda alvarlegum sýking-
um fara ekki alltaf saman. „Það er
ekki endilega samsvarandi aukn-
ing,“ segir Þórólfur. „Við erum
þegar farin að sjá áhrifin af þessu
í samfélaginu og maður hefur
engar aðrar forsendur en að halda
að þetta muni aukast.“
Sýkingavarnir hafa verið efldar
á Landspítalanum að sögn Magn-
úsar. Þær voru lengi afgangsstærð.
Hönnun spítalans er hluti vandans.
„Margra manna stofur, klósett sem
nýtt eru af kannski tíu einstakling-
um. Hvernig er hægt að stunda
nútíma læknisfræði á deildum
sem hannaðar voru á fjórða ára-
tugnum?“
Hann bendir jafnframt á að í
yfirgnæfandi hluta tilfella á notk-
un sýklalyfja sér stað utan spítal-
ans. „Sennilega 90% af allri notk-
un þeirra á sér stað utan manna.
Sýklalyf á spítölum eru kannski í
kringum 1% af allri notkun.“
Þórólfur og Magnús eru sam-
mála um að þörf sé á aðhaldi í
notkun lyfjanna en um leið er þörf
á nýjum lyfjum. Þrír áratugir
eru síðan nýtt lyf kom á markað.
Þróun þeirra er kostnaðarsöm og
tímafrek en alls ekki ógerningur.
Lyfjafyrirtækin þurfa annars
vegar að takast á við stuttan notk-
unartíma sýklalyfja og hins vegar
það að einkaleyfi falla úr gildi
eftir ákveðinn tíma. „Þá kemur
upp þessi sérkennilega þversögn.
Er það þá hagur lyfjafyrirtækja
að hvetja lækna og aðra til að nota
þessi lyf óhóflega og þar með eyði-
leggja þau?“ spyr Magnús.
„Ég er bjartsýnismaður að eðlis-
fari. Nýjar aðferðir í lyfjaþróun
munu fyrr eða síðar leiða til nýrra
lyfja. Útbreiðsla ónæmra sýkla
bendir til að þeir muni halda áfram
að breiðast út. Víglínan hefur færst
aftur undanfarin ár,“ segir Magnús
að lokum.
Öld ónæmis blasir við okkur
Eftir sex áratugi af hömlulausri notkun á sýklalyfjum blasir breyttur heimur læknavísinda við. Við hundsuðum varnaðarorð
Alexanders Fleming, mannsins sem uppgötvaði töfralyfið, og verðum nú að horfast í augu við óljósa og sýkta framtíð.
ÓNÆMI Sýklalyf eru forsenda heilbrigðisþjónustu eins og við þekkjum hana í dag. MYND/GETTY
Við erum
þegar farin að
sjá áhrifin af
þessu í samfé-
laginu og
maður hefur
engar aðrar
forsendur en að halda að
þetta muni aukast.
Þórólfur Guðnason,
settur sóttvarnalæknir.
Við
misstum
okkur í
gleðinni, það
leikur ekki
nokkur vafi
á því.
Magnús Gottfreðsson,
sérfræðingur í smitsjúkdómum.
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
8
-B
B
9
0
1
5
C
8
-B
A
5
4
1
5
C
8
-B
9
1
8
1
5
C
8
-B
7
D
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K