Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 40
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40
Árið 1624 fóru þeir að byggja virki. Það var ekki merkileg smíð, því var hróflað upp úr leir og timbri þarna syðst á eyjunni, blessunarlega var nóg af timbri því eyjan var nálega öll skógi
vaxin, nema þar sem mýrar gerðu trjám
ókleift að festa rætur. Flugnager úr þess-
um mýrum gerðu þeim erfitt fyrir meðan
þeir smíðuðu virkið sitt, en þeir létu sig
hafa það, vissu að þeir þurftu á vernd að
halda.
Þessir „þeir“ voru hollenskir skinna-
kaupmenn, komnir langt að heiman, en
studdir flokki dáta og nokkrum embættis-
mönnum úr heimalandinu. Verndina þurftu
þeir ekki gegn hinum innfæddu sem hirtu
ekki mikið um bjástur hinna hollensku við
loðdýragildrur sínar, heldur gegn nágrönn-
um sínum úr Evrópu, einkum Englending-
um, því enskir og hollenskir voru í mik-
illi samkeppni á sautjándu öld um nýjar
nýlendur um veröld víða, og ensk herskip
hikuðu ekki við að ráðast á hollenska kaup-
menn af litlu eða engu tilefni.
Því var virkið reist þetta sumar, og ári
seinna skaut nýr hollenskur landstjóri
styrkari stoðum undir nýlendu skinna-
kaupmannanna, sem nú var farið að kalla
Nýju Amsterdam, með því að kaupa alla
eyjuna þar sem virkið stóð syðst. Þau kaup
hafa gjarnan verið talin eitt hið besta
dæmi um hvernig óprúttnir Evrópumenn
svindluðu og svínuðu á frumstæðum inn-
byggjurum, því hollenski landstjórinn
Peter Minuit borgaði aðeins sem svarar
tæpar tveimur milljónum króna fyrir alla
þá eyju þar sem nú er hæst fasteignaverð
í heimi: Manhattan.
HVER SVINDLAÐI Á HVERJUM?
En ekki er allt sem sýnist og Minuit var
líklega ekki mestur svíðingur af þeim Evr-
ópumönnum sem þá fóru með yfirgangi
um heiminn. Hann borgaði þó fyrir bæki-
stöðina en víða á „frumstæðum“ strönd-
um komu Evrópumenn einfaldlega, sáu
og – rændu. Og Indíánar þeir sem Minu-
it í Nýju Amsterdam gerði samninginn
við hafa vafalítið verið hæstánægðir, þeir
fengu ekki glerperlur eins og þjóðsagan
segir, heldur verðmæt og fullkomin verk-
færi og vopn og sitthvað fleira, en létu í
staðinn skóga og sóttkveikjumýrar sem
nóg var af í nágrenninu. Og eitt enn sem
sýnir að það er ekki alltaf einfalt hver er
að svindla á hverjum: Indíánahöfðinginn
Seiseis sem gekk frá dílnum við Minuit
og hirti góssið sem Hollendingar létu af
hendi, hann var af ættbálki Lenapa en það
voru í rauninni keppinautar þeirra Vekk-
vesgekar sem höfðu haft yfir Manhattan-
eyju að segja. Því er ekki vafi á að bæði
Minuit og Seiseis hafa gengið mjög sáttir
frá samningum.
Nema hvað, Nýja Amsterdam reyndist
ágætlega í sveit sett til að þjónusta hina
hollensku kaupahéðna og loðdýraveiði-
menn sem farnir voru að láta að sér kveða
þar um slóðir á strönd Norður-Ameríku.
Eftir fjörutíu ár eða um 1665 var Nýja
Amsterdam talin til borga í hinu vaxandi
hollenska nýlenduveldi og íbúar orðnir
hvorki meira né minna en 1.500.
BARÓN LEGGUR ÚT Í ÆVINTÝRI
En þá víkur sögunni eitthvað um 4.500
kílómetra í suðaustur og við staðnæm-
umst á norðurströnd Suður-Ameríku. Þar
óx á 17. öld afar þéttur regnskógur niður í
fjöruborð, nokkrar vatnsmiklar ár féllu og
falla enn til sjávar frá norðanverðu Ama-
zon-svæðinu og heitir Súrínam sú stærsta,
þarna er alls staðar mjög heitt og svo mik-
ill raki í lofti að stundum er eins og menn
þurfi að synda um loftið frekar en ganga
á jörðinni. Þarna kölluðu Evrópumenn
Guyana á 17. öld en höfðu lítt hirt um að
setjast að enda virtist fátt þangað að sækja
fyrir þá. Hinir innfæddu Aravakar og Kar-
íbar bjuggu með ströndinni og sýsluðu við
veiðar á sjó á landi en höfðu ekki myndað
að ráði skipulögð samfélög, en djúpt inni í
myrkum regnskógunum bjuggu aðrir ætt-
bálkar og smærri, hver sýslaði sitt.
En á eyjunni Barbados í Karíbahafi var
þá komin lítil bresk nýlenda og þar var
árið 1650 settur niður tæplega fertugur
landstjóri, Francis Willoughby hét hann,
barón að tign og hafði komið nokkuð við
sögu í því grimmilega borgarastríði sem
þá hafði geisað á Bretlandi árum saman og
endaði með að Oliver Cromwell tók völdin
en kóngurinn var afhausaður. Willoughby
studdi þegar hér var komið son kóngsins
er gerði tilkall til ríkis föður síns, Karl II
kallaðist hann. Það var fyrir hönd Karls
konungsefnis sem Willoughby barón kast-
aði breskri eign á stórt svæði umhverfis
ósa Súrínam-árinnar. En síðan gerðu menn
Cromwells atlögu að konungssinnanum á
Barbados, Willoughby varð að segja af sér
landstjórninni í upphafi árs 1652 en
fékk að halda lífi og eignum, og ein-
setti sér nú að skapa í eigin nafni
nýlendu á Súrínam-svæðinu í
Guyana.
Og Willoughby gekk til verka
af mikilli atorkusemi. Sem stór
landeigandi á Bretlandi átti
hann sand af seðlum og hóf nú
markvissa auglýsingaherferð
á heimaslóðum, þar sem hann
hvatti fólk til að flykkjast til
Willoughby-lands, eins og nýlend-
an var nú kölluð. Hann bauð hvorki
meira né minna en paradís á jörð á
svæði þar sem ríkti „eilíft vor“ og
moldin var svo frjósöm að þar
mátti planta hverju sem var eig-
inlega án fyrirhafnar; ávextir
og veiðidýr nánast stukku upp
í fangið á fólki í þessum aug-
lýsingum, og konur hinna inn-
fæddu „var ekki með nokkrum
ráðum hægt að fá til að ganga
í fötum“.
Hversu miklu máli þetta síð-
asttalda skipti er ekki gott að
segja, en ætli það hafi samt ekki
verið svolítið freistandi fyrir glæ-
nepjulega breska alþýðustráka í kulda-
legum hreysum uppsveitanna eða pestar-
bælinu London að kynnast slíkum konum?
Líklega – en þó var annað sem skipti meira
máli.
ÓPRÚTTNAR AUGLÝSINGAR
Undirrót þess borgarastríðs sem geisað
hafði af mikilli hörku á Bretlandi voru
trúarbragðadeilur þar sem hver höndin var
upp á móti annarri: ýmsir flokkar púrít-
ana og mótmælenda og harðlínumanna,
ennfremur biskupakirkjumenn og kaþól-
ikkar. Willoughby bauð hins vegar að í sínu
landi myndu hvorki trúarbrögð né önnur
gömul misklíðarefni skipta máli, og það
var vissulega lokkandi fyrir þá sem orðn-
ir voru lúnir á erjum og stríðum. Og svo
fór reyndar að Willoughby-land varð að
þessu leyti eins og vin umburðarlyndis og
trúfrelsis í hörkulegum trúarbragðaheimi.
Allir nýlendubúarnir í skóginum voru vinir
til að byrja með og þegar nokkur
hundruð Gyðingar birtust á svæð-
inu, brottflúnir frá Brasilíu, þar
sem hinir kaþólsku stjórnar-
herrar voru að herða tökin,
þá var þeim bara vel tekið af
íbúum Willoughby-lands og
hvorki amast við þeim né trú
þeirra.
Það var líka öðru að sinna.
Því miður reyndist auglýsinga-
herferð Willoughbys hafa verið
sama marki brennd og þegar
Eiríkur rauði lokkaði fólk inn á ísa
kaldar lendur Grænlands með
því að ljúga til um landshætti.
Víst var hlýtt og víst var jörð-
in frjósöm þegar menn kunnu
með hana að fara, og vissulega
voru konur hinna innfæddu
berrassaðar, en lengi framan
af var allt í volli. Hitinn var
óbærilegur, moldin óskiljan-
leg og nýlendubúar, sem komu
yfir hafið í trausti þess að þeir
þyrftu ekki annað en rétta út
höndina, þá dytti í hana gómsæt-
ur og næringarríkur ávöxtur, þeir
voru fyrr en varði farnir að eltast við
pöddur og maura til að drepast ekki úr
hungri. Alls konar sjúkdómar gerðu vart
við sig, skyrbjúgur lék marga svo illa að
hárið losnaði af í stórum flygsum, húðin
varð appelsínugul. Sníkjudýr úr undar-
lega þefjandi vatninu úr ánum áttu til
að gera fólk blint, þar leyndust líka fjall-
grimmir krókódílar og hafði ekkert verið
minnst á þá í auglýsingaáróðri Willough-
bys og hóstandi strákar frá Cornwall eða
Dundee kunnu lítt að bregðast við slíkum
skepnum.
Að ekki sé nú talað um blóðþyrsta
jagúara, eitursnáka og reiðilega Karíba
sem létu ekki bjóða sér endalaust að föl-
bleikir langt að komnir karlhlunkar með
alls konar skavanka væru endalaust að
góna á þeirra léttklæddu konur.
Ein og ein eiturör skaust víst út úr
skógarþykkninu og hitti fyrir lostafulla
nýlendumenn.
ÍTURVAXINN AFRÍSKUR PRINS
En þótt við þetta væri að etja, þá seigluð-
ust Willoughby og menn hans áfram. Matth-
ew Parker, sem skrifað hefur nýja bók um
Willoughby-land, hefur reiknað út að barón-
inn prúði hafi lagt að minnsta kosti 600 millj-
ónir króna að núvirði í verkefnið og paradís
á jörð skyldi vissulega rísa við Súrínam-fljót
fyrr en síðar. Þegar fram í sótti virtust erfið-
leikarnir þó færast sífellt í aukana. Farið yfir
hafið kostaði sitt og á Bretlandi sem var illa
leikið eftir borgarastríðið höfðu ekki allir
efni á þeim farmiða. Mönnum gafst að vísu
kostur á að vinna kauplaust sem ánauðug
vinnudýr í fjögur ár og voru þá leystir út
með 12 hektara landspildu, en eftir að nokk-
ur hundruð nýlendubúar voru sestir að í Will-
oughby-landi, þá fór innflytjendum að fækka.
En þá fann Willoughby upp á svolitlu sem
átti að bjarga nýlendunni hans. Það tókst að
vissu leyti, en hafði líka í för með sér að þessi
„paradís á jörð“ breyttist í hreinasta helvíti –
að minnsta kosti fyrir suma. En þar sem ég
er búinn með plássið á síðunni, þá verð ég að
láta það framhald bíða næstu viku – þegar
líka segir nánar frá hollensku nýlendunni
í Nýju Amsterdam og hvernig henni hafði
reitt, og svo kemur loks í ljós hvernig þessir
fjarlægu staðir tengdust. Og líka segir frá
skörungskvenmanni sem skrifaði eina fyrstu
skáldsögu breskra bókmennta, og kemur við
sögu á óvæntan hátt, og einnig segir ein-
hverra hluta vegna frá íturvöxnum austur-
afrískum prinsi.
Og að síðustu drukknar svo Willoughby
barón.
AMERÍKUR UM MIÐJAN 17. ÖLD
NORÐUR-AMERÍKA
MIÐ-AMERÍKA
SUÐUR-AMERÍKA
Kúba
Amazon-svæði
Brasilía
Barbados
Nýja Amsterdam
ATLANTSHAF
KARÍBAHAF
Guyana Willoughby-
land
EILÍFT VOR
Í PARADÍS
Að ekki sé nú talað
um blóðþyrsta jagúara,
eitursnáka og reiðilega Karíba
sem létu ekki bjóða sér
endalaust að fölbleikir langt
að komnir karlhlunkar með
alls konar skavanka væru
endalaust að góna á þeirra
léttklæddu konur.
KEYPTI MANHATTAN Peter Minuit kaupir eyju.
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
segir frá tveimur
nýlendum á 17.
öld, önnur var
hollensk
í Norður-
Ameríku en
hin bresk í
Suður-Amer-
íku. Og þær
tengdust.
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
8
-C
F
5
0
1
5
C
8
-C
E
1
4
1
5
C
8
-C
C
D
8
1
5
C
8
-C
B
9
C
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K