Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 54
| ATVINNA |
Óskum eftir að ráða starfsmann
á lager og til útkeyrslustarfa.
Vinsamlegast sendi umsóknir á box@frett.is merkt
„Lager og keyrsla-1508“ fyrir fimtudaginn 20.08
Lausar stöður í búsetu-
þjónustu fatlaðra á Akranesi
Búsetuþjónusta Akraneskaupstaðar óskar eftir að ráða
starfsfólk í vaktavinnu í 70% – 75% stöðu. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf í byrjun september. Launakjör
eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem helstu
verkefni og ábyrgð eru:
• Aðstoð við fatlaðan einstakling við athafnir daglegs lífs.
• Skipulagning og framkvæmd á sérhæfðum verkefnum
og sérhæfðri þjálfun í samvinnu við forstöðu- og
yfirþroskaþjálfa og aðra starfsmenn í teymi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Æskilegt er að viðkomandi hafi uppeldismenntun eða
sambærilega háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla og þekking á málefnum fólks með fötlun.
• Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar.
Sótt er um á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í
þjón ustuveri að Stillholti 16-18, 1. hæð.
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst næstkomandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Mist
Gunnarsdóttir forstöðuþroskaþjálfi í tölvupósti eða í
síma 433 1366 milli kl. 8-16 alla virka daga.
Tæknifulltrúi á umhverfis-,
skipulags-, og byggingarsviði.
Sveitarfélagið Garður og Sandgerðisbær auglýsa eftir
áhugasömum og framsæknum einstaklingi til að sinna
starfi tæknifulltrúa. Um er að ræða 100% starf.
Tæknifulltrúi starfar með sviðsstjóra umhverfis-, skipu-
lags- og byggingarmála að fjölbreyttum verkefnum á
sviði umhverfis-, tækni-, skipulags-, og byggingarmála
sveitarfélaganna.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tæknimenntun sem nýtist við starfið
• Góð þekking á þeim málaflokkum sem starfið nær til
• Víðtæk tölvuþekking
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfileikar og frumkvæði við lausn verkefna
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf frá og með 15. septem-
ber. Launakjör eru samkvæmt samningum stéttarfélaga
við sveitarfélögin Einungis er tekið á móti rafrænum
umsóknum á netfangið gardur@svgardur.is. Umsókn
um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt
kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í
starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Ben Einarsson,
sviðsstjóri umhverfis-, skipulags-, og byggingarmála í
tölvupósti á jonben@svgardur.is eða í síma 847-2503
Sveitarfélagið Vogar
HLUTI AF BYGMA
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI
SÍÐAN 1956
ÓSKUM EFTIR ÖFLUGU
STARFSFÓLKI Í VERSLUN
HÚSASMIÐJUNNAR OG
BLÓMAVALS Í SKÚTUVOGI
Umsóknir berist fyrir 23. ágúst n.k.
til atvinna@husa.is
Húsasmiðjan Holtagörðum, 104 Reykjavík
Öllum umsóknum verður svarað.
Um er að ræða störf á afgreiðsluskössum á
virkum dögum auk helgarvinnu.
Einnig eru laus til umsóknar íhlaupstörf
á virkum dögum og um helgar.
Hæfniskröfur
• Þjónustulund, áhugi og metnaður
• Frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
Í boði er
• Gott og öruggt starfsumhverfi
• Góður starfsandi
Metnaður
Þjónustulund
Sérþekking
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í að
veita fyrsta flokks þjónustu og hafa gott
aðgengi að vörum sínum og starfsfólki.
Það sem einkennir starfsmenn
Húsasmiðjunnar eru eftirfarandi gildi:
Ert þú efni í
öflugan ráðgjafa?
Ráðgjafar Deloitte vinna náið með fyrirtækjum að úrlausn
krefjandi verkefna. Unnið er í verkefnateymum undir
handleiðslu reyndra ráðgjafa.
Við leitum að nýútskrifuðum og efnilegum einstaklingum
úr meistaranámi á sviði fjármála, hagfræði, verkfræði eða
skyldum greinum. Meistaranemar sem stefna að útskrift á
næstu mánuðum koma einnig til greina.
Við leitum að drífandi einstaklingum sem hafa mikinn
áhuga á fjármálum fyrirtækja. Við viljum fólk sem kann að
meta krefjandi starfsumhverfi og getur unnið bæði
hérlendis og erlendis. Vilji og geta til að axla ábyrgð eru
eiginleikar sem við metum mikils.
Aðrar hæfniskröfur:
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góð færni í Excel og Powerpoint
• Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Æskilegt er að umsækjendur getið hafið störf sem fyrst.
Umsókn ásamt prófskírteini skal skila í gegnum heimasíðu
Deloitte, www.deloitte.is, fyrir 24. ágúst 2015.
Nánari upplýsingar veitir Erna Arnardóttir mannauðsstjóri,
erna.arnardottir@deloitte.is
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR8
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
8
-D
9
3
0
1
5
C
8
-D
7
F
4
1
5
C
8
-D
6
B
8
1
5
C
8
-D
5
7
C
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K