Fréttablaðið - 15.08.2015, Page 91

Fréttablaðið - 15.08.2015, Page 91
LAUGARDAGUR 15. ágúst 2015 | TÍMAMÓT | 51 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SNJÓLAUG ARADÓTTIR Víðilundi 20, Akureyri, fyrrum húsfreyja Nesi í Höfðahverfi, lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku mánudaginn 10. ágúst. Útför hennar fer fram frá Laufáskirkju laugardaginn 22. ágúst kl. 14.00. Sæunn Laxdal Grímur Laxdal Halldóra Stefánsdóttir Ari Laxdal Sigurlaug Sigurðardóttir Helgi Laxdal Katrín H. Árnadóttir Pálmi Laxdal ömmubörn og langömmubörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug í veikindum og við andlát SIGURÐAR S. BJARNASONAR Barrholti 26, Mosfellsbæ. Lillý S. Guðmundsdóttir og fjölskylda. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR KONRÁÐSSON Suðurlandsbraut 58, áður Njörvasundi 31, Reykjavík, lést á Landspítalanum Hringbraut 6. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 13.00. Ragnheiður Halldórsdóttir Helga María Arnarsdóttir Þorsteinn Helgason Andrés Reynir Ingólfsson Guðlaug Helga Konráðsdóttir Halldór Ingólfsson Elísabet Þ.Á.M. Pétursdóttir Ásberg Konráð Ingólfsson Þórhildur Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær móðir mín, BIRNA S. LENAHAN lést í Washington USA þann 15. desember sl. Jarðarför fór fram í maí sl. María Lenahan Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN KARLSDÓTTIR Sléttuvegi 17, Reykjavík, áður Mávahlíð 41, lést á Borgarspítalanum 13. ágúst. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 24. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Reykjavíkur. Kristín Axelsdóttir Kristinn Guðmundsson Guðrún Lilja Kristinsdóttir Axel Kristinsson Kristín Björk Jónsdóttir Arnar Snær Kárason María Káradóttir Axel Kárason og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ERLING ÞÓR HERMANNSSON Reykjavíkurvegi 52a, Hafnarfirði, sem lést miðvikudaginn 5. ágúst verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð blóðlækningadeildar Landspítalans. G. Gréta Þórðardóttir Hermann B. Erlingsson Hansína Hafsteinsdóttir Þórður Örn Erlingsson Erna Kristjánsdóttir Hildur Erlingsdóttir Sturla Egilsson og fjölskyldur. Bróðir okkar og mágur, ÁSGEIR EGILSSON járnsmiður, áður Drápuhlíð 3, Reykjavík, lést á heimili sínu í Noregi 9. apríl 2015. Og hvílir þar. Erna Egilsdóttir Sigurdís Egilsdóttir Sigurgeir Bjarnason aðstandendur. Innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR PÁLSDÓTTUR Dalbraut 27. Sérstakar þakkir til starfsfólks þjónustuíbúða, Dalbraut 21-27, fyrir umönnun og hlýju. Guðrún Matthíasdóttir Óskar Heimir Ingvarsson Halldór Örn Óskarsson Þrúður Vilhjálmsdóttir Bjarni Már Óskarsson Sigurbjörg Linda Sigurðardóttir Þórunn Halldóra Matthíasdóttir Matthías Þór Óskarsson Hugrún Elfa Hjaltadóttir Jón Arnar Óskarsson Jóna Guðbjörg Árnadóttir Guðrún Óskarsdóttir Björn Patrick Swift Þórunn Óskarsdóttir Jóhann Þór Kristþórsson og barnabarnabörnin. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts okkar kæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, VILHJÁLMS BJARNA VILHJÁLMSSONAR fyrrverandi framkvæmdastjóra Íslenskrar getspár. Guðrún Árnadóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Rafmagnið færði fólki ljós og létti því störfin. Í dag er erfitt að hugsa sér lífið án rafmagns en hvenær kom þessi orkugjafi inn í líf okkar Íslend- inga? Því er auðvelt að fletta upp á sýningu sem var opnuð í Ljósafoss- stöð í gær. Þar er það raforkan sjálf og áhrif hennar á samfélagið sem um er fjallað. Sýningin er meðal þess sem Lands- virkjun efnir til vegna fimmtíu ára afmælis á árinu. Með því að bregða upp sögum úr fortíðinni upplifa gestir sýningarinnar þróunina til dagsins í dag og hversu fljótt þessi orkugjafi var mikilvægur þáttur í daglegu lífi fólks. Sýningin er gagnvirk með áherslu á leik og upplifun, þar sem eðli og eigin- leiki raforku birtist í margvíslegum myndum því sýningargestir eru leidd- ir inn í heim raforkunnar á nýjan og skapandi máta. Undirstöðuatriði rafmagnsfræð- innar eru útskýrð í gegnum einfaldar, skemmtilegar og fallegar tilraunir sem hafa leitt til mikilvægra skrefa í raf- magnssögunni. Ljósafossstöð var gangsett árið 1937 og stendur við útfall Úlfljótsvatns. Með tilkomu stöðvarinnar var fram- boð rafmagns fjórfaldað á höfuðborg- arsvæðinu sem gerði íbúum kleift að nota rafmagnseldavélar í stað kolavéla. Þáttur í því að auka raforkunýtingu frá Ljósafossstöð var að bjóða íbúum höfuðborgar svæðisins að fá eldavél frá Rafha í áskrift með rafmagninu. Sig- urður Guðmundsson arkitekt teiknaði Ljósafossstöð í fúnkisstíl og hana prýð- ir verk eftir Ásmund Sveinsson mynd- höggvara. Gagarín og Tvíhorf arkitekt- ar eru hönnuðir sýningarinnar og fjöldi fyrirtækja og sérfræðinga kom að upp- setningunni. Rafmagnið færði ljós í bæinn og létti störfi n Orka til framtíðar er heiti gagnvirkrar orkuvísindasýningar sem var opnuð í gær í gestastofu Ljósafossstöðvar í Grafningi í tilefni 50 ára afmælis Landsvirkjunar. VIÐ OPNUNINA Unga fólkið er fljótt að tileinka sér tækni sýningar- innar og leita sér þekkingar um orkuna. Nýr safnstjóri tók við lyklunum að safngeymslum Lista- safns Reykjavíkur í gær. Ólöf K. Sigurðardóttir tók þá formlega við sem safnstjóri þess víðfeðma safns af Haf- þóri Yngvasyni sem gegnt hefur stöðunni síðustu tíu ár. Ólöf hefur verið forstöðumaður Hafnarborgar, menn- ingar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar, frá árinu 2008. Þar var hún listrænn stjórnandi og bar ábyrgð á sýninga- dagskrá og annarri faglegri starfsemi, ásamt fjármálum, rekstri og stjórnsýslu. Ólöf er samt ekki ókunnug Listasafni Reykjavíkur því hún var um árabil deildarstjóri fræðsludeildar þess og sat í sýningarnefnd auk þess að vera sýningarstjóri á annan tug sýninga. Listasafn Reykjavíkur er á þremur stöðum í borginni, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, Kjarvalsstöðum á Klambra- túni og Ásmundarsafni við Sigtún. - gun Fékk lykla að Lista- safni Reykjavíkur Ólöf K. Sigurðardóttir tók við sem safnstjóri Listasafns Reykjavíkur af Hafþóri Yngvasyni. SAFNAFÓLK Þau voru kampakát, Hafþór og Ólöf, þegar lyklarnir skiptu um hendur. 1 4 -0 8 -2 0 1 5 2 1 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 C 8 -5 D C 0 1 5 C 8 -5 C 8 4 1 5 C 8 -5 B 4 8 1 5 C 8 -5 A 0 C 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 1 2 0 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.