Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 110
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 70
365.is Sími 1817
ÚRSLITALEIKUR
BORGUNARBIKARSINS
Ekki missa af stærsta leik ársins þegar Reykjavíkurveldin KR og Valur
takast á í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2.
Í DAG KL. 15:30
HANDBOLTI Íslenska U-19 ára liðið vann síðasta leik
sinn í riðlakkepni HM í gær, 47-19, gegn Venesúela.
Strákarnir unnu þar með sinn sterka riðil með
fullu húsi stiga. Óðinn Ríkharðsson átti ótrúlegan
leik fyrir Ísland í gær en hann skoraði fimmtán
mörk úr nítján skotum. Hákon Styrmisson kom
honum næstur með ellefu mörk í tólf skotum.
Einar Baldvinsson átti einnig mjög góðan
leik í markinu en hann var með rúmlega
44 prósent markvörslu og gaf einnig sjö
stoðsendingar í leiknum.
Úrslitakeppnin hefst síðan á morgun en þá
leikur Ísland við liðið sem varð í fjórða sæti
í A-riðli. Það er landslið Suður-Kóreu. Strák-
arnir eru vonandi ekki hættir. - hbg
Strákarnir í 16-liða úrslit með látum
SPORT
Emil Hallfreðsson vantar
bara fimm leiki til að
ná því að spila hundrað
leiki í efstu deild á Ítalíu
fyrstur Íslendinga. Hellas
Verona mætir Internazio-
nale á Giuseppe Meazza-
leikvanginum í fimmtu
umferðinni.
Eins og sjá má hér
fyrir neðan þá er Emil í
nokkrum sérflokki meðal
þeirra íslensku leikmanna
sem hafa reynt fyrir sér í
Seríu A í gegnum tíðína.
FLESTIR LEIKIR ÍSLENDINGA
Í SERÍU A
EMIL HALLFREÐSSON - 95
28 með Verona 2014/15
33 með Verona 2013/14
13 með Reggina 2008/09
21 með Reggina 2007/08
BIRKIR BJARNASON - 38
14 með Sampdoria 2013/14
23 með Pescara 2012/13
ALBERT GUÐMUNDSSON
- 14
14 með AC Milan 1948/49
HÖRÐUR BJÖRGVIN
MAGNÚSSON - 12
12 með Cesena 2014/15
FLEST MÖRK ÍSLEDNINGA Í
SERÍU A
EMIL HALLFREÐSSON - 4
1 með Verona 2014/15
2 með Verona 2013814
1 með Reggina 2008/09
ALBERT GUÐMUNDSSON
- 2
2 með AC Milan 1948/49
BIRKIR BJARNASON - 2
2 með Pescara 2012/13
➜ Fyrstur í
hundrað
leiki í vetur?
FÓTBOLTI Emil Hallfreðsson, leikmað-
ur Hellas Verona, er að fara að leika
sitt sjötta tímabil á Ítalíu en hann
gæti leikið sinn 100. leik í Serie A í
haust. Er hann með töluvert forskot á
næsta Íslending í leikjum á Ítalíu en
fjórir íslenskir leikmenn hafa leikið á
Ítalíu. Lék Albert Guðmundsson fyrst-
ur Íslendinga á Ítalíu í eitt ár í herbúð-
um AC Milan en síðastliðin ár hafa þrír
Íslendingar verið á Ítalíu. Emil verður
hins vegar líklegast sá eini sem leikur í
Serie A á næsta tímabili.
Okkur líður afskaplega vel á Ítalíu
Birkir Bjarnason sem hefur leikið á
Ítalíu undanfarin ár gekk til liðs við
Basel í Sviss á dögunum og þá er tölu-
verð óvissa um framtíð Harðar Björg-
vins Magnússonar. Hörður er samnings-
bundinn Juventus en ólíklegt er að hann
fái mörg tækifæri hjá firnasterku liði
ítölsku meistaranna á næsta tímabili.
„Þessi tími er búinn að líða afskap-
lega hratt, þetta er búið að vera ótrúlega
skemmtilegt og mér líður vel hérna á
Ítalíu. Ég hef ekkert farið í felur með
það að okkur fjölskyldunni líður afskap-
lega vel á Ítalíu,“ sagði Emil, sem er
orðinn sleipur í ítölskunni.
„Ég er bara mjög fínn, ég er búinn að
vera hérna í sjö ár og ef maður getur
ekki tjáð sig eftir það þá ertu eitthvað
örlítið týndur. Ég þurfti að læra strax
ítölsku til að komast inn í menninguna
og ég lagði mikið á mig strax til að kom-
ast betur inn í menninguna hérna.“
Uppgangur síðustu ár
Verona leikur þriðja árið í röð í ítölsku
úrvalsdeildinni í ár en félagið var tvö
tímabil Emils hjá félaginu í 1. deild-
inni. Verona hefur lent um miðja deild
undan farin tvö tímabil og segir Emil
markmiðið að festa klúbbinn í sessi sem
efstu deildar klúbb.
„Markmiðið var þegar við komum
upp að festa okkur í sessi og verða þessi
Serie A klúbbur sem þessi klúbbur er
miðað við fylgi stuðningsmannanna.
Borgin og stuðningsmennirnir eiga það
skilið að við séum í efstu deild, það er
alltaf fullt á leikjunum hjá okkur.“
Aukin pressa fyrir nágrannaslaginn
Emil var ánægður með síðasta tíma-
bil en félagið lenti einu sæti fyrir ofan
nágrannana í Chievo.
„Í ár er það sama markmið og alltaf,
halda sætinu í deildinni og svo sjáum
við hvert við getum komist. Í fyrra var
okkur sagt að algengt væri að ná ekki
sama árangri á öðru tímabilinu í deild-
inni. Núna er komið að því þriðja og ég
er spenntur að sjá hvernig þetta mun
ganga, hvert við erum að stefna. Ég hef
fulla trú á verkefninu og við erum búnir
að styrkja okkur vel í sumar.“
Verona og Chievo deila velli í Verona
en Emil sagði að það væri alltaf aukin
pressa fyrir nágrannaleikinn.
„Við verðum að stefna að því að vera
fyrir ofan Chievo og vinna leikina gegn
þeim. Þótt þeir séu með fáa stuðnings-
menn þá er þetta nágrannaliðið og við
fáum alveg að heyra það ef við töpum
gegn þeim. Það er mikil pressa á okkur
fyrir þá leiki og menn eru ekki sáttir ef
það tapast.“
Emil og félagar eiga leik gegn Foggia
úr C-deildinni í ítalska bikarnum um
helgina en ítalska deildin hefst svo viku
seinna.
„Við megum alls ekki við því að van-
meta þetta lið, þeir slógu út Bari sem er
í B-deildinni í síðustu umferð.“
Marquez og Toni eru flottir
Chievo hefur styrkt sig myndarlega
undanfarin ár en í liðinu má finna
reynslubolta á borð við Luca Toni, Rafa-
el Marquez og Giampaolo Pazzini sem
gekk til liðs við félagið í sumar.
„Rafa og Luca eru ótrúlega flottir
þrátt fyrir aldurinn. Luca er enn þá
með frábært markanef og Marquez sem
hefur leikið með Barcelona og verið
fyrir liði Mexíkó í rúmlega áratug hlýt-
ur að vita eitthvað um boltann. Svo ef
Pazzini tekst að skora jafn mörg mörk
og Toni verðum við í góðum málum í
vetur.“ - kristinnpall@365.is
Þessi tími hefur liðið ótrúlega hratt
Emil Hallfreðsson er að hefj a sitt sjötta tímabil í ítölsku úrvalsdeildinni en hann mun að öllum líkindum leika sinn 100. leik í ítölsku
úrvalsdeildinni í vetur. Hann hefur komið sér vel fyrir á Ítalíu og segir að það sé mikil pressa á leikmönnum fyrir nágrannaslaginn.
LYKILMAÐUR Emil
Hallfreðsson átti
níu stoðsendingar á
félaga sína á síðustu
leiktíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Harpa Þorsteinsdóttir og félagar
hennar í Stjörnunni spila á sunnudaginn
hreinan úrslitaleik á móti Apollon frá Kýpur
en í boði er sæti í 32 liða úrslitum Meistara-
deildarinnar.
Bæði lið hafa unnið örugga sigra í tveim-
ur fyrstu leikjum sínum í riðlinum en það er
mikill hiti og mikill raki á Kýpur.
„Það er mjög heitt hérna og mjög mikil
molla. Þetta er allt annað en þegar maður
er á Spáni eða eitthvað. Þessar aðstæður eru
því svolítið þrúgandi þótt leikirnir séu spil-
aðir á kvöldin. Það er mikið vökvatap þann-
ig að við erum eiginlega mest inni á hóteli,“
segir Harpa og bætir við: „Við erum skyn-
samar. Þetta er klárlega engin sólbaðsferð,“
segir hún.
Stjörnustelpurnar sáu liðsmenn Apollon
vinna 8-0 sigur á liði frá Möltu í fyrrakvöld.
„Þær eru mjög kvikar á boltann og láta
hann ganga hratt. Þær virka ekki líkamlega
sterkar og ég held að við höfum forskot þar,“
segir Harpa. „Þær eru ekki vanar að mæta
jafn sterku liði og við erum. Ég held að það
skili okkur forskoti fyrir þennan leik að
við erum búnar að spila fleiri erfiða leiki í
sumar,“ segir Harpa og Stjörnustelpur ætla
að gefa tóninn strax í byrjun leiks.
„Ég held að við leggjum upp með að keyra
svolítið yfir þær í byrjun leiks. Það er ekkert
leyndarmál að hitinn tekur svolítið frá okkur.
Jafntefli dugar þeim þannig að við verðum
að setja mörk á þær,“ segir Harpa, sem
skoraði tvö mörk í síðasta leik.
„Við setjum mikla pressu á okkur
sjálfar að komast upp úr þessum riðli
og allt annað væru mikil vonbrigði,“
segir Harpa. Hún er spennt fyrir
samvinnunni við hina nýju brasil-
ísku leikmenn liðsins, þær Fran-
cielle og Poliönu.
„Það er mjög gaman að spila með þess-
um brasilísku og þær eru mjög flinkar í fót-
bolta. Ég held að þær eigi heilmikið inni og
það kemur fram þegar við kynnumst hver
annarri betur. Ég vonast eftir því að þær
komi með einhver töfrabrögð á móti þessu
Apollon-liði,“ segir Harpa að lokum. - óój
Vill sjá smá brasilísk töfrabrögð
Harpa Þorsteinsdóttir og félagar í Stjörnunni spila úrslitaleik á Kýpur á morgun.
ÆTLA SÉR
ÁFRAM Harpa
Þorsteinsdóttir.
FÓTBOLTI Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum á fimmtudag að ráða Klöru
Bjartmarz sem framkvæmdastjóra sambandsins. Hún er fyrsti kvenkyns
framkvæmdastjóri KSÍ. „Það var einhugur um þessa ráðningu hjá stjórninni,“
segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.
Klara hefur gegnt starfinu síðan í mars á þessu ári er Þórir Hákonarson lét
af störfum. Hún var þá ráðin tímabundið. Hún er enginn nýgræðingur hjá KSÍ
enda starfað fyrir sambandið síðan 1994. Klara hefur lengst af starfað við
mótamál og kvennalandsliðið. Klara var einnig skrifstofustjóri KSÍ um árabil
og hefur starfað fyrir UEFA sem eftirlitsmaður á alþjóðlegum leikjum.
„Klara hefur staðið sig vel í störfum fyrir sambandið á löngum ferli og verið
traust í sínum störfum. Hún hefur síðan vaxið í þessu nýja starfi,“ segir Geir
en það vakti nokkra athygli að starfið var ekki auglýst. Hvernig stóð á því?
„Það var ekki auglýst þegar ég var ráðinn í þetta starf á sínum tíma og ekki
heldur þegar Þórir var ráðinn. Stjórnarmenn voru ánægðir með hennar störf
og tóku í kjölfarið þá ákvörðun að ráða hana.“ - hbg
Klara er fyrsta konan sem er ráðin framkvæmdastjóri KSÍ
KLARA BJARTMARZ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-6
C
9
0
1
5
C
8
-6
B
5
4
1
5
C
8
-6
A
1
8
1
5
C
8
-6
8
D
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K