Fréttablaðið - 15.08.2015, Side 120
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Ísland ullaði á Pútín. Pútín kýldi okkur í magann. Nú vilja
sumir að við segjum: „Vó! Sorrý!
Eigum við ekki að tala saman um
þetta?“ Viðskiptaþvinganirnar
sem Íslendingar tóku þátt í gegn
Rússlandi gengu út á að selja
ekki vopn. Síðan voru settar tak-
markanir á viðskipti í orku- og
bankageirunum, ferðabann var
sett á 150 einstaklinga og eignir
þeirra frystar. Þátttaka Íslands í
þessum aðgerðum hefur auðvitað
hverfandi áhrif á rekstur og líf
þar í landi. Þær viðskiptaþving-
anir sem við fáum í bakið eru
mun alvarlegri.
VESTRÆN samvinna var lengi
kjarninn í stefnu íslenskra hægri-
manna. En nú hefur Morgunblað-
ið ásamt hluta Sjálfstæðisflokks-
ins blásið til sóknar og vilja þau
rjúfa samstöðu vestrænna ríkja
vegna hagsmuna útgerðarinnar
sem má ekki lengur selja fisk til
Rússlands. Það má hafa samúð
með fyrirtækjum sem missa við-
skipti en málið snýst um þjóðar-
hag, þjóðarhag til lengri tíma
litið.
MEÐ þessum aðgerðum, sem
beinast að fjórum smáríkjum,
er stórveldið að þreifa fyrir sér.
Aðgerðunum er að sjálfsögðu
ætlað að breyta stefnu Íslands.
Ef það gengur eftir þá koma
öfgahægrimennirnir í Frakk-
landi og Ungverjalandi og fara
að þrýsta á um svipað. Samstað-
an mun hrynja og Pútín getur
haldið áfram að tálga í sundur
nágrannaríki Rússlands með her-
valdi.
UMHVERFIS Ísland er 200
mílna landhelgi. Okkar fáu varð-
skip geta vitanlega ekki varið
þessa eign okkar að ráði, nema
hugsanlega fyrir einstaka veiði-
þjófi á furðufána. Við eigum allt
okkar undir því að borin sé virð-
ing fyrir alþjóðalögum og land-
helgi ríkja sé virt. Í ýtrustu neyð
þurfum við síðan að reiða okkur á
það að aðrar þjóðir verði tilbúnar
til að leggja líf eigin borgara í
hættu til þess að við fáum áfram
að eiga okkar fisk í friði. Við
getum ekki ætlast til að þær geri
það umhugsunarlaust ef við sjálf
erum ekki til í að færa neinar
fórnir.
Nei, Pútín
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
&vor
Haust
2015-2016
vetur
Bæklingurinnfylgir blaðinu í dag
BAKÞANKAR
Pawels
Bartoszek
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-4
0
2
0
1
5
C
8
-3
E
E
4
1
5
C
8
-3
D
A
8
1
5
C
8
-3
C
6
C
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K