Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Síða 147
i
Ný bók
SÖGUR OG SMÁLEIKRIT
eftir HALLDÓR STEFÁNSSON
Það er hverju sinni viðburður þegar kemur ný bók eftir Halldór Stefánsson.
Hann er fyrir löngu orðinn þjóðkunnur fyrir smásögur sína og bafa áður
komið út eftir hann þrjú smásagnabindi og ein skáldsaga. Nú hefur hann
bætt við smásögur sínar nokkrum stuttum leikritum og er á þeim sama snjalla
handbragðið. Það mun mega segja um leikritsþættina og smásögurnar í
þessari bók hið sama og Arni Hallgrímsson, ritstjóri Iðunnar, sagði um sög-
urnar í Dauðinn á þriðju hœð: „Eiginlega er bara eitt um þessar sögur að
segja: Þœr eru hver annarri betri“. Ami sagði þá í sama ritdómi um Hall-
dór: „Sennilega er Halldór þaullesinn í heimsbókmenntunum og semur sig
að háttum heimsmeistara í sagnagerð sinni. Kunnátta hans og leikni er mikil,
vandvirknin og sjálfsgagnrýnin á háu stigi. Hann lætur ekki móðan mása eða
allt fjúka, sem í hugann kemur, heldur vegur hann hvert orð og setningu og
fellir á sinn rétta stað. Fyrir því er bygging sagna hans fastari, samþjappaðri
og markvísari en tíðkazt hefur um íslenzka sagnasmiði“.
Allmargar af sögum Ilalldórs Stefánssonar eru þýddar á ensku, þýzku og
Norðurlandamálin og hafa fengið hina beztu dóma.
Bókabúð Máls og menningar
Laugavegi 19 . Sími 5055
Eftir nýjan höfund JÓN SIGURÐSSON skólastióra
kemur út jyrir jólin
Sagan af Birni Arinbirni * Klukkan
Ilún er lýsing á hugmyndum og sálarlífi drengs sem elst upp í sveit um síð-
astliðin aldamót og á áhrifum þeim sem daglegir viðburðir og fólkið, sem
hann umgengst, hefur á hann.
Bókin er rituð af næmum skilningi á sálarlífi barns, með sérkennilegum stíl,
fögur, litrík, en þó blæmild.
Þetta er ein af þeim barnabókum sem er skrifuð jafnt fyrir böm og fullorðna
og allir hafa sömu ánægju af að lesa.
Bókin er prýdd fögrum og listfengum teikningum eftir Asgeir Júlíusson.
Bókaútgáfan Heimskringla