Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Síða 111
SKÓLALÖGGJÖFIN FRÁ 1946
269
skólanemandi, hvar sem er á landinu, aðstöðu til að ganga undir próf,
sem veiíir réttindi til náms í menntaskóla í stað þess, að áður var ekki
hœgt að taka slíkt próf nema við annan hvorn menntaskólann, og kost-
aði það oft svo mikla fyrirhöfn og dýrt undirbúningsnám, að fátœkir
unglingar utan af landi voru gjörsamlega útilokaðir frá að afla sér
slíkra réttinda.
Aðfinnslur í garð skólanna og óánaegja með skólalöggjöfina
Ég vil nú taka til athugunar helztu aðfinnslur, sem fram hafa komið
gegn skólalöggjöfinni og skólunum almennt. Mun ég taka fyrir eina
og eina í senn og leitast við að svara þeim með nokkrum orðum.
1. Börnin lcera ekkert. Sú fullyrðing, að börnin læri ekkert þrátt fyr-
ir allt þeirra skólanám, klingir oft við í eyrum okkar. Hafa sumir rök-
stutt þessa skoðun sína með því, að þeir hafi spurt skólabörn, sem þeir
e. t. v. hittu á förnum vegi, spjörunum úr til þess að prófa þekkingu
þeirra, sem hafi þá reynzt harla lítil. Ég efast um, að slík próf séu ein-
hlít í þessum efnum. í fyrsta lagi mun tilviljun ráða því, hvort nem-
andinn, sem spurður er, er sá bezti eða sá lakasti. í öðru lagi eru börn
oft mjög varfærin gagnvart spurningum óviðkomandi manna og kjósa
þá gjarnan að þegja við spurningum þeirra, ef þeir reynast óþarflega
nærgöngulir. í þriðja lagi þykist ég hafa reynslu fyrir því, að þau
börn, sem við útskrifum úr barnaskólum nú, eru almennt miklu betur
að sér í undirstöðuatriðum almennra námsgreina heldur en við, ég og
mínir jafnaldrar, vorum á þeirra aldri.
Nú er auðvitað alls ekki loku fyrir það skotið, að til séu nemendur,
sem lítið læra. En slíkt er alls ekki alltaf skólanna sök. Hér kemur til
greina bæði greindarskortur barnanna og áhrif umhverfisins. Ef t. d.
gatan og kvikmyndahúsin eru aðalathvarf barnsins, hlýtur slíkt að hafa
áhrif á nám þess. Ef heimili barnsins er fullt af andúð gegn skólanum,
skapar það kæruleysi hjá barninu og getur valdið því, að það lœri
ekki neitt.
Ég vil svo að lokum biðja menn í fullri alvöru að hugleiða, livað
börnin mundu lœra, ef allir barnaskólar væru lagðir niður.
2. Skólanámið er of erjitt. Nú koma aðrir og finna skólunum það til
foráttu, að börnunum sé ætlað að læra of mikið. Námsefni skólanna sé
svo erfitt, að ekki sé á færi nema þeirra allra gáfuðustu að melta það.