Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Side 18

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Side 18
176 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR anna, sökum þess að nýi tíminn leiddi á engan hátt til meira einstakl- ingsfrelsis og lífshamingju fyrir Islendinga. Hann losaði ekki um nein fersk, framsækin þjóðfélagsöfl, heldur var hann valdboðinn af erlend- um konungi og jók áþján og arðrán hér á landi. Þegar á síðara hluta 16. aldar fundu Islendingar, að alls staðar kreppti að, og þeir litu með söknuði til áranna fyrir siðskipti. Það voru ekki athafnaglaöir út- gerðarmenn, gróðafíknir mangarar, erlendur kaupmannalýður, hand- verksmenn og smábændur, sem fylktu hér liÖi gegn yfirgangi og auð- drottnun kaþólsku kirkjunnar. Þess vegna hafa okkur gleymzt íhalds- mennirnir Jón Arason og Ari, sonur hans. Aftur á móti munum við vel baráttumennina og þjóÖhetjurnar Jón biskup og Ara lögmann. Menntavinurinn Jón Arason Það væri fljótfærnisleg ályktun að telja það næga skýringu á Jóni Arasyni, að hann liafi verið íhaldsmaður. Hann er íhaldssamur sem íslenzkur höfðingi en ekki sem biskup og menntamaður. Hann hefur eflaust ekki verið mjög lærður á sinnar tíðar vísu, því að starfsgleði hans og stórmennska hafa jafnan beint orku hans að veraldlegum við- fangsefnum. Við höfum enga heimild til að ætla, að hann hafi langað til að geta sér orðstír sem lærdómsmaður. Hann hafði lilotið í vöggu- gjöf snilligáfu skáldsins, sem margir vísinda- og lærdómsmenn vildu gefa þekkingu sína fyrir. Jón er svo heill maður og gáfaÖur, að van- máttarkenndar gætir ekki hjá honum. Hann er jafnan með spaugs- yrði á vörunum og hendir gaman að vankunnáttu sinni, en sér glöggt, hvað til mestra framfara horfir í menningarmálum. Um miðja 15. öld var farið að prenta bækur í Þýzkalandi, og barst sú þekking til Eng- lands 1476, til Danmerkur 1481 og Svíþjóðar 1483. Til Noregs barst prentlistin ekki fyrr en um miðja 17. öld. Nú er talið, að prentsmiðja hafi verið sett niður á Hólum um 1530, og það er víst, að Jón Arason á frumkvæðið að því að koma prentverkinu á laggirnar. Hann fékk hingað sænskan prentara, Jón Matthíasson að nafni, hinn lærðasta mann. Við vitum fátt um það, hvaða bækur Jón biskup hefur látið gefa út, því að siöskiptamennirnir fóru um þær ómildum höndum. All- öruggar heimildir eru þó fyrir því, að hann hefur látið prenta tvær bækur: bænakver, Breviarium Holense (prentað 1534?) og þýðingu á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.