Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Blaðsíða 150

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Blaðsíða 150
kumlin. Það á til dæmis við um kumlin á Kornsá, Enni og Stafni þar sem fundaraðstæður voru flóknar og kumlin mikið röskuð. Eins eru nokkur kuml sem e.t.v. ættu að teljast til stakra hrosskumla eins og hestkumlin tvö á Hrífunesi (Kt-155:1 og 4) þar sem aðstæður voru þannig að ekki var unnt að útiloka að mannskuml hefði áður verið til staðar í námunda við hestkumlin. Almennt séð er ekki að sjá neinn greinilegan mun á umbúnaði eða umgjörð hestkumla og mannskumla. Bæði eru að jafnaði einföld, niðurgrafin og grafarrýmin orpin jarðvegi (haug). Oftast er að finna eitthvað grjót í grafar- fyllingunnin, í eða við kumlið, og þótt misjafnt sé hve mikið er af grjóti virðist sem gjarnan hafi verið einskonar grjótkjarni í haugnum eða fyllingunni. Hrein grjótdys tíðkast þó ekki. Hestkuml sem fannst í Hrífunesi (Kt- 155) í Vestur-Skaftafellssýslu var óvenjulegt að því leyti að umhverfis niðurgrafið grafarrýmið var einföld grjóthleðsla, úr fremur smáum vatns- sorfnum steinum. Við annan enda hennar var grjóthella reist upp á rönd (Kristján Eldjárn, 1966, 59-62). Þótt upplýsingar um þau séu ekki jafn ítarlegar er sambærilegra hleðslna einnig getið við hestkumlin á Kálfborgará (Kt-112:4) og á Núpum (Kt-121), en í báðum kumlum hvíldu tvö hross saman í hringmyndaðri gröf (Kristján Eldjárn 2000, 195-197, 207). Slíkur umbúnaður er e.t.v. ekki óvenjulegur í íslensku samhengi en engu að síður verður Hrífuneskumlið að teljast óvenju vandað bæði meðal hest- og mannskumla. Margt má vissulega segja um fundarskilyrði Hrífunes- kumlanna en jarðvegseyðing af vatnsaga leiddi þau í ljós og olli því jafnframt að óvíst er hvert umfang kumlateigsins og fjöldi kumla hefur verið. Hvað sem því líður er umgjörð þessa vandaða hestkumls afar áhuga- verð og draga fundarskilyrðin á engan hátt úr þeim íburði eða þeirri virðingu sem dýrinu virðist hafa verið sýnd við greftrun. Sama íburð (eða e.t.v. virðingarvott) má einnig greina í því að hesturinn er oft búinn eigin haugfé, reiðtygjum og/ eða söðli. Þetta á bæði við í sameiginlegum kumlum manns og hests og stökum hestkumlum. Af ofan- greindum stökum hestkumlum var haugfé að finna í kumlunum á Kálfborgará (Kt-112:4), Glaumbæ (Kt- 120:6), Árskógi (Kt-91), Enni (Kt-77) og báðum kumlum á Hemlu (Kt-5:1), eða í helmingi tilfella. Í öllum tilvikum, þar sem það er greinanlegt, er um muni eða brot að ræða sem tengja má reiðtygjum eða búnaði hestsins, s.s. mél, gjarðahringjur, málmdoppur eða kingur. Þar sem reiðtygi eru greftruð með hestinum virðast þau gjarnan hafa verið spennt á hestinn. Því má e.t.v. fremur líta á reiðtygin eins og klæðnað eða skart manna – þ.e. þau eru ekki lögð í gröfina sem fylgihlutir, heldur er hesturinn búinn eða klæddur þeim. Þetta síðasttalda atriði eitt og sér, og það hversu algengt það virðist vera, hrekur í sjálfu sér þá tilgátu að efnahagslegar aðstæður búi að baki __________ 150 Fé og frændur í eina gröf fjölda kumlhesta. Hafi íhaldssemi við efnisleg verðmæti og takmörkun efnahagslegs tjóns verið aðal- drifkraftarnir hefðu menn líklega ekki fórnað „dýrum“ málmum eða öðrum búnaði á þennan hátt. Hið sama virðist vera gefið í skyn með öðrum þáttum greftrunarinnar. Almennt virðist tilviljun alls ekki ráða því hvernig hlutum er raðað í gröfina og almennt bera bæði hlutir og dýr þess merki að hafa verið lögð í gröfina en ekki kastað í hana í hirðuleysi. Eins og ég sagði áður má segja að haugféð myndi einskonar umgjörð um hinn látna þar sem nándin á milli manns og hluta eða dýra verður afar áberandi þáttur og gerir að verkum að erfitt er að slíta hina einstöku þætti í sundur. Segja má að mengið sem kumlið myndar krefjist þess að vera lesið sem ein órofin heild, því jafnframt því að undirstrika nálægðina á milli hinna einstöku þátta er gefið í skyn að mikilvægt hafi verið fyrir eftirlifendur að varpa fram einmitt þessari mynd. Þegar nánar er að gáð eru kumlin því allt annað en einsleit og upplýsinga- snauð, og greinilegt að efniviðurinn býður upp á ýmsa túlkunarmöguleika. Það er staðreynd að kumlasafnið er í mörgu frábrugðið kumlasöfnum annarra norrænna svæða, en sú staðreynd ætti fremur að vera útgangspunktur túlkunar. Það virðist t.d. vera að stórir haugar hafi ekki verið aðalatriði við greftrun og að almennri ásýnd kumlsins hafi fremur verið ætlað að samlagast greftrunarstaðnum og umhverfinu fremur en að skara fram úr því með áberandi hætti. Eins virðist sem menn hafi ekki lagt megináherslu á fjölda gripa, og má þá hugsa sér að val þeirra fáu gripa sem mynduðu haugféð hafi skipt þeim mun meira máli. Það er áhugavert að velta því fyrir sér hvað býr að baki þessum raunverulegu einkennum kumlasafnsins, fremur en að reyna sífellt að svara því af hverju einkenni þess er ekki einhver allt önnur. Af gripum og mönnum Lítið sem ekkert ber á því í sögu kumlarannsókna hér á landi að menn hafi af alvöru reynt að draga af kumlunum ályktanir um hugarheim, átrúnað eða helgiathafnir landnáms- manna. Þannig fullyrðir Adolf Friðriksson að „[f]átt annað en ferðalag til framandi heima virðist mega ráða af vitnisburði grafanna um trú forn- manna“ (Adolf Friðriksson, 2004a, 59; 2004b, 20). Það er auðvelt að færa rök fyrir því að sá siður að leggja haugfé og jafnvel fararskjóta í grafir styðji frásagnir ritheimilda af trú á líf handan dauða. Engu að síður getur verið áhugavert að velta fyrir sér hvað varð til þess að þeir hlutir sem lagðir voru í kumlin enduðu sem haugfé. Hvað réði því að ákveðnir hlutir voru valdir og aðrir ekki? Til þess þarf fyrst að skoða kumlin með það markmið í huga og reyna að lesa í þau eins og þau koma fyrir, þ.e. hvert og eitt sem merkingarbæra heild eða mengi í sjálfu sér. Enda þótt ritaðar heimildir gefi lítið upp um greftrunarsiðinn, og jafnframt __________ 151 Þóra Pétursdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.