Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Blaðsíða 127
gróðurhúsi til að hýsa græðlinga
brauðaldintrjáa (Dening 1992, bls. 19-
20). Tilfærsla Bligh aflaði honum þó
engra vinsælda hjá undirsátum hans og
útkoman um borð í Bounty varð í reynd
þveröfug við Pandóru. Bligh
höfuðsmaður missti vald sitt yfir
áhöfninni og á endanum olli það
uppreisn á skipinu (Dening 1992, bls.
61). Ástæðuna fyrir þessum mis-
munandi útkomum á tilfærslum er
hugsanlega hægt að rekja til ólíkrar
stöðu undirforingjanna og höfuðs-
mannsins í stigveldinu um borð. Bligh
var æðsta yfirvaldið á skipinu en
undirliðsforingjarnir á Pandóru voru
það ekki, en þó kom þar meira til.
Segja má að sama myndlíking hafi
átt við um borð í skipum og á
heimilum. Inni á 18. aldar heimilunum
gat aðeins heimilisfaðirinn verið
sjálfstæður og óháður og að sama skapi
gat aðeins höfuðsmaðurinn verið
sjálfstæður og óháður á skipunum.
Hlutskipti og boðleiðir valdsins um
borð ultu því á hæfni höfuðsmannsins
og getu til að flytja þennan hluta
karlmennskuorðræðunnar og þar hefur
aldurinn einn getað skipt sköpum. Eins
og sagt var frá áðan var höfuðs-
maðurinn yfirleitt elstur um borð. Svo
var því einnig farið um borð í Pandóru
en þannig var málum einmitt ekki
háttað um borð í Bounty því þar voru
nokkrir menn sem voru eldri en Bligh
og varð það til þess að veikja stöðu
hans sem „faðir skipsins“ (Dening
1992, bls. 26). Þegar ofan á það bættist
að Bligh varð að fara úr káetunni sinni
til undirforingjannna einmitt stétt-
bundinn. Hinar íburðarmeiri vistarverur
yfirmannanna um borð hefðu því getað
verið séðar sem skortur á karlmennsku
af sjóliðunum á neðra þilfarinu. Skipið
var svo vel búið vistum þegar það fór
áleiðis til Tahítí að a.m.k. tveir
undirforingjar urðu að yfirgefa sínar
eigin káetur og sofa á meðal óbreyttu
sjóliðanna á neðra þilfarinu svo hægt
væri að nota káetur þeirra sem
birgðageymslur. Læknirinn Hamilton
komst svo að orði að undirforingjarnir
hefðu sýnt „mikla karlmennsku“ með
fórnfýsi sinni (Thomson 2008, bls. 110,
þýð. höfundar). Við það að vera gert að
fara úr káetum sínum og sofa á neðra
þilfarinu ásamt sjóliðunum gafst
þessum undirforingjum tækifæri til að
flytja eiginleika karlmennsku sem
allajafna samrýmdust ekki stétt þeirra
sem yfirmenn, en þeir hlutu fyrir vikið
náð fyrir augum sjóliðanna. Því má
segja að ákveðnir hlutar orðræðunnar
hafi verið bundnir við ákveðna hluta
skipsins. Ef menn flökkuðu á milli
skipshluta urðu þeir að flytja
mismunandi hluta orðræðunnar eftir því
hvar þeir voru staddir, í tilviki
undirforingjanna urðu þeir að flytja
karlmennsku hins grófa vinnumanns og
afsala sér þeim munaði sem fólst í eigin
káetu í borðsal undirforingjanna.
Tilfærslur eins og þessi um borð í
Pandóru voru ekki einsdæmi því ámóta
tilfærslur höfðu átt sér stað um borð í
Bounty. Þar var það hins vegar William
Bligh höfuðsmaður sem færði sig úr
varð enn erfiðara fyrir hann að flytja
hlutverk hins sjálfstæða, óháða
heimilisföður. Eins og áður sagði var __________
126
Að opna öskju Pandóru
Edwards höfuðsmaður um borð í
Pandóru bæði einn í káetu sinni og um
leið elstur um borð. En svo virðist sem
Edwards höfuðsmaður hafi einnig fest
stöðu sína í sessi með öðrum ráðum.
Borðbúnaðnum sem fundist hefur
um borð í Pandóru og ætlaður var til
daglegra nota má skipta gróflega í tvo
flokka, geymsluílát og framreiðsluílát,
en þau eru birt í töflunni hér að framan.
Af geymsluílátunum eru svokallaðar
grenikrukkur stærsti flokkurinn. Þessar
grenikrukkur voru úr jarðleir, tin-
glerjaðar og í þeim var bragðgrunnur,
einskonar síróp, úr greni sem notaður
var til að brugga bjór (Campbell og
Gesner 2000, bls. 107-108). Drykkur
sem Hamilton læknir sagði að væri
„hinn dásamlegasti drykkur“ (Thomson
2008, bls. 94).
Framreiðsluílátin sem fundist hafa
samanstanda af diskum, fötum og
öðrum matarílátum úr hvítum jarðleir,
svokölluðu creamware, sem varð
algengt á síðari hluta 18. aldar. Bollar
og undirskálar sem ætluð voru til
tedrykkju hafa fundist úr jarðleir,
pearlware, sem var tilraun breskra
leirkerasmiða til að herma eftir
kínversku postulíni. Einnig hafa fundist
um borð tebollar og undirskálar úr
postulíni. Stór hluti creamware ílátanna
var í stíl sem kallast Royal Pattern sem
byrjað var að framleiða árið 1783
__________
127
Sindri Ellertsson Csillag
Mynd 3. Efra og neðra þilfarið á Pandóru. Lagfært frá: McKay og Coleman 1992, bls. 52-56
(teikningar D2/5 og D2/8).