Dagrenning - 01.08.1947, Side 5
geisar styrjöldin áfram, sem geisaði á vígvöllum Evrópu og Asíu frá 1939
—191f5. Munurinn er aöenis sá, að Rússar eru komnir í stað Þjóðverja.
Menn hafa gleymt því, að því er virðist, að það voru fyrst og fremst
Rússar, sem hleyptu af stað síðasta ófriði, svo raunverulega var „sam-
starfið“ við þá aðeins stundar blekking. Hverjum glöggskygnum manni
hlýtur að verða það æ Ijósara, með hverjum deginum sem líður, að það
getur ekki dregist lengi enn, að til fullkominnar sundrungar dragi milli
Sovietríkjanna og hinna engilsaxnesku þjóða. En hver verða þá örlög þess-
arar fögru hallar og þeirrar þjóðar — Svisslendinganna — sem gættu
hennar og vernduðu í síðustu styrjöld? Verður hún e. t. v. aðsetursstaður
yfirstjórnar þeirrar, sem Rússar setja á stofn í Evrópu þegar þeir hafa
lagt undir sig allt meginland hennar? Það er haft eftir Stalin, að Sviss
muni ekki „gleymast“ næst. — Eða verður hún e. t. v. lögð í eyði í
sprengjuárás? Verður þessi friðsæli blettur hér — hin undurfagra Genfar-
borg — e. t. v. þurkuð út af jörðunni með atomsprengju.
★
Það var endur fyrir löngu undurfagurt musteri austur í Jerúsalem.
Dag einn gekk Kristur þar um ásamt lærisveinum sínum, sem dáðust að
hinni fögru byggingu og einn þeirra sagði: „Meistari, líttu á, hvílíkir
steinar og hvílík hús.“ En Jesús svaraði: „Sér þú þessi miklu hús?“ Ekki
mun hér verða skilinn eftir steinn yfir steini, er eigi verði rifinn niður."
— Sú spá hans rættist. Eins og allt annað, sem frá hans vörum kom,
reyndist hún sannleikur. Hann hefir engu spáð um þetta veglegasta
musteri, sem mannkynið enn hefir byggt. En hann hefir sagt oss það fyrir,
að á „hinum síðustu dögum“ muni verða „slík þrenging, að engin hefir
þvílík verið frá upphafi.“ Þegar atburðirnir benda til þess, að loka árekst-
urinn sé fyrir dyrum eiga þeir, sem telja sig lærisveina Krists, að vera
viðbúnir: „En þegar þetta tekur að koma fram þá réttið úr yður og lyftið
upp höfðum yðar því lausn yðar er í nánd.“ Og hann sagði þeim líking:
„Gætið að fíkjutrénu og öllum trjám, þegar þau fara að skjóta frjóöng-
um, þá sjáið þér og vitið af sjálfum yður að sumarið er í nánd. Þannig
skulitð þér og vita, að þegar þér sjáið þetta fram koma, er Guðsríki í
nánd.“ Það þarf meira en lítið glámskyggnan mann til þess að sjá það
ekki, að nú þegar hafa „öll trén í skóginum skotið frjóöngum."
DAGRENNING 3