Dagrenning - 01.08.1947, Blaðsíða 23
minna á orð Jesú: „Fagnaðarerindið urn rík-
ið mun fyrst verða boðað um allan heim sem
vitnisburður til allra þjóða, og þá rnunu enda-
lokin koma.“ Vér höfurn því orð Krists fvr-
ir því, að lok tímabilsins nálgast rnjög. Þann-
ig gerast nú margir vitnisburðir á vorurn tím-
um, sem ættu að geta fullvissað oss um að
vér lifum ekki aðeins á „Undirbúningsdegi
Hans“ heldur á sjálfum lokum „tímabils
endalokanna."
IV.
Eítiimáli.
Kaflar þessir eru þýddir úr hinu mikla
ritverki A. Rutherfords: Israel-Britain. Þeir
eru þar 19., 20. og 21. kapítuli og hefi ég
leyft mér að gefa þeim öllum sameiginlega
fyrirsögnina: Tímabil endalokanna, því þeir
fjalla allir um það liver á sinn hátt. Undir-
fyrirsagnirnar eru fyrirsagnir kafla þessara í
bók Rutherfords. Greinar þessar eru ritað-
ar alllöngu fyrir síðustu styrjöld eins og
þær bera með sér og eru þýddar úr útgáfunni
frá 1939 af Israel-Britain. Höf. mundi vafa-
laust vilja bæta ýmsu við nú, en frá rnínu
sjónarmiði hafa þær rniklu meira gildi nú en
þær höfðu þegar þær voru ritaðar, því nú hafa
þau 10 ár, sem liðin eru síðan þær voru skráð-
ar, sannað svo vel sem verða má, skarpskvggni
höfundarins og það, að rétt er skilið í aðal-
atriðum hvert nú stefnir. Allar tilvitnanir í
Biblíuna eru þýddar úr ensku Biblíunni og
geta þær því stundum verið eitthvað öðru-
vísi en í hinni íslenzku enda ber textum
þeirra ekki allsstaðar saman.
Þýðingarnar gerði, samkvæmt beiðni
minni, og fyrir alllöngu síðan, Karl ísfeld
ritstjóri. — Dagrenning mun leitast við að
birta smátt og smátt fleiri kafla úr þessu
rnerka riti, sem með sanni má kalla eitt af
höfuðritum hinnar brezk-ísraelsku hreyfingar.
J. G.
Plááur E^iptalands.
Allir kannast við plágur þær, sem sagt er
frá í Biblíunni, að gengu yfir Egiptaland endur
fyrir löngu og urðu upphaf þess að ísraelsmenn
losnuðu úr ánauð þeirri, er þeir höfðu verið
hneptir í þar af faróum Egiptalands. Ymsir
eru þeir, sem lítinn trúnað hafa viljað leggja
á þær sögusagnir og talið að miklu meira sé
úr þessu gert í Biblíunni en rök standa til.
Ekki alls fyrir löngu gerðust atburðir í
Frakklandi sem minna óþægilega á eina af
þessum plágum Egiptalands. Greinlegar frá-
sagnir af ,,plágu“ þessari eru enn ekki fyrir
hendi svo notast verður við fregnir blaða og
útvarps. Um miðjan ágúst birtist eftirfarandi
frétt í blöðum víða um heim:
„Uppskeran í Frakklandi er í mikilli hættu
vegna skordýrafaraldurs. Skordýrafylkingin er
margra kilómetra löng og eyðileggur allt, sem
á vegi hennar* verður. Tveir menn létu lífið
í gær, vegna þess að þeir lentu í fylkingunni
í myrkri. Flugvélar hafa verið notaðar til þess
að dreifa fylkingunni og eyða þessum vágesti.
í gær tókst að eyða skordýrunum á sjö kiló-
metra svæði.
I fréttum frá Frakklandi eru skordýr þessi
aðeins kölluð bjöllur."
Lengri er frásögnin ekki en hún ber það
með sér Jtó stutt sé, að hér er um meira en
lítið alvarlega plágu að ræða. Skordýrin eru
svo aðgangshörð, að þau drepa jafnvel fólk og
grípa verður til hinnar fullkomnustu tækni —
flugvélanna — til þess að ráða niðurlögum
þeirra. Nú hafa stjórnarvöld Frakklands til-
kvnnt opinberlega, að verulegur uppskerubrest-
ur muni verða í Frakklandi, en ástæðurnar
fyrir honum eru ekki tilgreindar. Vafalaust
tekst, með hinni miklu tækni nútímans, að
bjarga einhverjum verulegum hluta uppskeru
Suður-Frakklands úr klóm Jtessara vágesta. En
efni hvernig farið hefði í Frakklandi nú, ef
Frakkar hefðu átt að mæta þessari plágu með
frumstæðum áhöldum og lítilli tækni, ef þjóðin
hefði nú staðið á svipuðu stigi tæknilega og
Egiptaland stóð á dögum Móse þegar skor-
dýraplágur þær gengu yfir, sem sagt er frá í
2. Mósebók.
DAGRENNING 21