Dagrenning - 01.08.1947, Blaðsíða 16
ADAM RUTHERFORD:
Tímabíl endalokanna
i.
Lok tímabilsins.
Orðtakið „heimsendir“ (Matt 24,3.) í
hinni viðurkenndu þýðingu brezku Biblíunn-
ar, fylgir ekki nákvæmlega upprunalega text-
anum gríska, en nákvæmara væri að leggja
þetta út „fylling tímans“, eins og það er í
athugasemdum hinnar endurskoðuðu þýð-
ingar. Lokaþáttur tíniabilsins, sem nú stend-
ur yfir, hófst með byrjun hins rnikla upp-
gangs og útþenslu Brezka heimsveldisins og
U. S. A. í lok átjándu aldar. í Biblíunni er
þetta tímabil á spámannlegan hátt kallað
„tímabil endalokanna“ (Dan. 12, 44.). Sann-
anirnar fyrir því, að við lifum nú ekki ein-
asta á „tímabili endalokanna", heldur einnig
á endalokum tímabils endalokanna, eru yfir-
fljótanlegar.
Eins og áður hefir verið bent á, hafa öll
þau heimsveldi, sem Daníel spáði að myndu
rísa upp og tortímast áður en hið ævarandi
veldi ísraels hæfist, risið og fallið í duftið
(veldi Babyloníumanna, Medo-Persa, Grikkja
og Róinverja og áframhald Rómaveldis, Hið
„heilaga“ rómverska ríki), og nú þegar hefir
ísrael (brezka heimsveldið) risið upp og orð-
ið stærra en öll hin fyrri heimsveldin sanr-
anlögð. Hinn garnli heimur hins heiðna valds
er að hverfa og við erum í dögun nýrrar akl-
ar. Endalok hins rnikla tímabils „sjö tíða“
(2520 ára) ísraels (Efraim) er samtímis hruni
hins „heilaga" rómverska heimsveldis, en
með tilliti til Júda leið það tímabil undir
lok á heimsstyrjaldarárunum (1914—1918).
Við lirun rómverska páfaveldisins varð Bret-
land stærsta heimsveldið, en á heimsstyrjald-
arárunum lenti Jerúsalem undir yfirráð Breta
og frá þeim tíma hafa Gyðingar verið að
byggja sér upp heimkynni í Palestínu undir
eftirliti Breta. Þannig hefir „sjö tíða skeið-
ið“ fullkomlega rætzt með tilliti til ísrael.
Þetta þýðir það, að heimsveldistími annarra
Jijóða en ísraelsmanna er liðinn að eilífu.
Jesús lét í Ijós sérstakan spádóm, og þcgar
liann rættist átti það að vera tákn þess að
heimsveldistími annarra þjóða (en ísraels)
væri liðinn og þes$i spádómur er bæði ein-
faldur og staðbundinn, hann sagði:
„Heiðingjarnir munu fótumtroða Jerúsal-
em, þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.“
(Lúkas 21, 24.) Er Jiað satt, að heiðingjarn-
ir fótumtroði Jerúsalem nú? Nei! Núna er
Jerúsamlem ekki lengur undir járnhæl heið-
ingjanna. Einmitt hið gagnstæða. Jerúsalem
og Landinu helga hefir verið lyft úr duftinu
af ísrael (Bretum) og Júda (Gyðingum) í
sameiningu. Þess vegna, samkvæmt hinni
augljósu spásögn Jesú Krists, eru tímar heið-
ingjanna liðnir. Þessi viðreisn Palestínu fyrir
tilstilli Breta og Gyðinga liófst strax eftir að
Palestína var leyst undan áþján Tyrkja í síð-
ustu styrjöld, vegna þess, að „tímum heið-
ingjanna“ lauk á heimsstyrjaldarárunum 1914
—1918, en það var nákvæmlega „sjö tíðum“
(2520 árum) eftir að heimsveldi Babyloniu-
manna stóð með mestum blóma á árunum
607—603 f. K.
Hrun Tyrkjaveldis og endurreisn Palestínu
14 DAGRENNING