Dagrenning - 01.08.1947, Qupperneq 9

Dagrenning - 01.08.1947, Qupperneq 9
V. Af því, sem nú hefir sagt verið, er það augljóst, að 6. ágúst táknaði ekki fullnaðar slit milli austurs og vesturs, heldur merkti Jrann upphafið á hruni fjárhagskerfis vest- rænna þjóða. Hann er fyrsti dagur Jn'nnar miklu fjárhagskreppu, sem nú er að skeJJa yfir öJJ þau lönd, sem tengd eru sterling og doJJara svæðunum. Þær ráðstafanir, sem brezka stjórnin gríp- ur til, stefna allar í þá átt að leggja hömlur á frelsi einstaklinganna til þess að revna að verja ríkisheildina falli. Örlagaríkustu ráð- stafanir hennar verða þó þær, sem snerta afvopnun lrersins í Þýzkalandi og brottfultn- ing hersins frá Ítalíu. Allar eru eða verða þessar ráðstafanir vatn á myllu Rússa, því þær koma til með að veikja aðstöðu Breta á meginlandinu, en Rússar stefna nú markvist að því að lirekja bæði Breta og Bandaríkjamenn af meginlandi Evrópu til þess þeir eigi hægara um vik, við að leggja það, sem eftir er af því, undir Sovietríkin. Ekki er ólíklegt að þessunr þætti ljúki með því, að Bandaríkjamenn neiti að bera einir kostnaðinn við lrersetu Þýzkalands og liverfi þaðan og láti Evrópuríkin sigla sinn sjó und- ir „verndarvæng“ Rússa, en búist til varnar á eigin spýtur á vesturhveli jarðar gegn þeirri styrjöld er koma mun. Ég benti áður á þá athyglisverðu tillögu Clrurshills að fresta málinu í 3 mánuði. Sú tillaga er sýnilega borin fram til þess að sjá lrvernig samkomulagið verður um Marshall- áætlunina, sem nú er verið að undirbúa. Líklegt þykir, ef sú áætlun kemst í fram- kvæmd, að Bretar mundu þá fá nrikið rýmri aðstöðu hvað dollara snerti. Virðist því svo, sem brezka stjórnin búist ekki við rniklu af Marshall-áætluninni. Ennþá er einnig allt í óvissu um hvernig framkvæmd þeirra fjár- hagsráðstafanana verður, og víst er það, að eigi þar aðeins að verða um bráðabirgða- hjálp að ræða til Evrópuþjóðanna verður hún að sára litlu gagni. Verði hún hins vegar upphafið að nýju fjárhagskerfi fyrir öll þau ríki, sem verða í hinu vestræna sambandi, er hún byrjunarspor nýs tíma í fjármálum þjóðanna. VI. Einhverjum kann nú að finnast það næsta undarlegt, að ekki skuli nrega sjá það glögg- lega fvrir af umhverfi mælinganna í Pýra- midanum Iivort t. d. er urn að ræða stór- fellda fjárhagskreppu eða samvinnuslit milli þjóða eða jafnvel styrjöld. En við því er það svar, að fjárhagskrepp- an er í eðJi sínu sfyrjöld, og því mjög lítill rnunur á henni og beinni styrjöld með skot- vopnum og sprengjum. Tökum dærni: Það fyrsta, sem brezka stjórnin gerði í upphafi síðustu lieimstyrjaldar var að út- vega sér rnjög víðtækar heimildir hjá þinginu og láta það fela sér því nær ótakmörkuð völd. Nákvæmlega hið sama gerir brezka verka- mannastjórnin nú þegar kreppan er að skella yfir. í styrjöld er valdinu beitt fyrst og fremst til þess að útiloka andstæðinginn frá sam- skiptum við sem flest lönd og þjóðir. Ná- kvæmlega liið sama er gert þegar fjárhags- kreppan kemur. Innflutningsliömlur eru settar og útflutningstakmarkanir látnar ná meira og minna til allra landa. Svona rnætti nefna fjölmörg önnur dæmi þess, að fjár- hagskreppa er í eðli sínu stórstyrjöld, og því sýnd á táknmáli Pýramidans sem slík. í því sambandi má minna á fjárhags- kreppuna miklu frá 1928 til 1936. Urn það tímabil segir í bók minni „Vörðubrot" (bls. 55): „Hér erum vér þá komin að þriðja tímabilinu, sem spádómarnir auðkenna livað greinilegaít en það er tímabilið frá 29. maí 1928 til 16. september 1936. Fyrir „ísraeJs- þjóðirnar“ — þ. e. engilsaxneskar þjóðir — DAGRENNING 7

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.