Dagrenning - 01.08.1947, Qupperneq 17

Dagrenning - 01.08.1947, Qupperneq 17
gefur tvær einfaldar en jafnframt augljósar og órækar sannanir fyrir því, að lok þessa „yfirstandandi örðuga tímabils" og upphaf þúsund ára ríkisins, er yfirvofandi. Verum þess rninnug, að þessa atburði, sem nú eru að gerast fyrir augum okkar, sáu rannsak- endur spásagnanna fyrir fyrir mörgum árum, og svo að vitnað sé í einn af mörgum: Fvrir 55 árum, þ. e. árið 1878, sagði dr. H. Grat- tan Guinness: „Við höfum veitt athygli ýms- um fyrirbrigðum í sambandi við Palestínu og ísrael og pólitiska viðburði vorra tíma, sem virðast benda til þess, að hreinsun helgi- dómsins og endurreisn ísraels sé ekki langt framundan. Þegar þetta verður, þegar Múha- meðstrúarmenn, sem nú eru reknir út úr Búlgaríu, verða líka reknir út úr Sýrlandi, þegar þjóðir Evrópu, af hvaða ástæðum, sem það verður, koma sér saman um að koma Gyðingum aftur fyrir í landi forfeðra sinna, þá liefir klukkan slegið í síðasta sinni, þá hefir hinn síðasti spádómur ritningarinnar viðvíkjandi atburðum h rir hinn mikla Surt- arloga rætzt, þá mun hinn brottrekni Messias ísraels koma bráðlega aftur til ríkis og stjóma allri veröldinni ásarnt postulum sínum. Þá mun leyndardómur guðdómsins opinber- ast.' Aínám valds og sjálfstæðis tyrkneska heimsveldisins mun láta sem lúðuiþytui í eyrum kiistinna manna og boða það, að dag- ur Kiists sé í nánd.“ Þegar Bretar ráku Tyrki brott úr Palestínu og Sýrlandi árin 1917—1918, var það sam- kvæmt spádómi, eins og áður hefur verið bent á. Og fljótt á eftir, 7 árum seinna, kom algret hrun hins víðlenda Tyrkjaveldis. Að- faranótt 6. marz 1924 leið tvrkneska heims- veldið undir lok og tyrkneska lýðveldið var stofnað í Konstantinopel. Með liruni tvrk- neska heimsveldisins var síðasta táknið gefið, sem boðaði það, að Harmageddon væri í nánd, og við endurtökum orð dr. Guinness, sem hann skrifaði fyrir meir en hálfri öld síðan: „Afnám valds og sjálfstæðis tyrkneska heimsveldisins mun láta sem lúðurhljómur í evrum kristinna manna.“ Endalok tímabils- ins eru vfirvofandi. Allir þeir spádómar, sem áttu að rætast, áður en tímabili þessu lyki, hafa nú rætzt, nema sá, sem snertir lielgun dýrlinganna og hástig hinna miklu jarðnesku þrenginga. Bæði Kristur og Daniel spámaður spáðu því, að þessu tímabili lyki með „þreng- ingum meiri en nokkru sinni áður hefðu ver- ið lagðar á þjóðirnar.“ (Matt. 24, 21. Dan. 12, 1.) Árið 1914 drógust þjóðimar inn í tímabil þyngri þjáninga, en nokkru sinni áður hafa yfir mannkynið dunið, því að frá því ári hefir orðið (1) mesta stríð, sem heimurinn þekkir, heimsstyrjöldin 1914—1918, (2) mesta stjórnarbylting, sem nokkru sinni hef- ir verið, rússneska stjórnarbyltingin 1917— 1918, (3) útbreiddasta plága, sem yfir heim- inn hefir dunið, spánska veikin, sem geisaði heimskautanna á milli og feldi fleiri í val en heimsstyrjöldin, (4) mesti jarðskjálfti, sem komið hefir í veraldarsögunni, jarð- skjálftinn í Japan 1923, (5) heimskreppa meiri en nokkru sinni áður, sem hófst árið 1928. Svo að við notum orð brezka forsætisráðherrans, Ramsay Mac Donald: „Það er hvorki meira né minna en það, að jörðin virðist skriðna undir fótum okkar.“ Hinar raunverulegu lokaþrengingar þjóð- anna, sem eru í aðsigi, munu ná hámarki með „styrjöldinni á hinum mikla degi Drott- ins“ — Harmageddon. Líkt og fall síðustu kynslóðarinnar af hinum tólf kynkvíslum ísraels í Landinu helga fyrir tilstilli heiðins valds skeði á árunum 607—580 f. K., þannig mun, sjö tíðum — eða 2520 árum — seinna, eða á árurium 1914—1941, koma hrun hins heiðna valds og lokaendurreisn ísraels (allra kynkvíslanna tólf). Orð Esaja 7, 8. svohljóðandi: „Innan sex- DAGRENNI NG 15

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.