Dagrenning - 01.12.1948, Side 7

Dagrenning - 01.12.1948, Side 7
sögn af krossfestingu hans. Hann sagði að frásögn þessi bætti litlu við það, sem áður væri vitað frá kristnum ritum um þessa at- burði. Hann taldi víst, að hæglega mætti fá tekin afrit af skjölum þessum. Það er skemmst frá því að segja, að séra Mahan fylltist slíkri löngun til þess að sjá skjöl þessi með eigin augum og leita ann- arra slíkra skjala, sem segðu frá atburðum. er snertu ævi Krists, svo sem málsskjöl eða opinberar skýrslur, að hann tókst ferð á hendur í þessu skyni til Evrópu og dvaldi bæði í Róm og Konstantínópel við athug- anir í þessu skyni árum saman. Árið 1895 gaf hann svo út bók um þessar rannsóknir sínar og heitir bókin á ensku: „Caesars Court. From Records found in the Vatican in Rome and in Constantinople". (Þ. e.: Keisaradómur. Úr skýrslum, sem fund- izt hafa í Vatikaninu í Róm og í Kon- stantínópel.) Alls er bók þessi í tiu köflum, 152 bls. í fremur litlu broti og er þar safnað saman ýmsum skýrslum, er allar varða á einhvem hátt líf eða dauða Jesú frá Nazaret. Þriðji kapítuli þessarar bókar fjallar um undrin í Betlehem, sem frá er sagt í Lúk- asarguðspjalli. Virðist svo, sem Æðstaráð Gyðinga hafi sent sérstakan erindreka sinn að nafni Jónatan Hesielsson til Betlehem í því skyni að afla upplýsinga um þessa at- burði, sem þá hafa verið mjög umtalaðir. Hann tekur skýrslu af hirðunum og leggur hana fyrir Æðstaráðið, en jafnframt skrifar presturinn í Betlehem, Melker að nafni, langt bréf til ráðsins út af atburðum þess- um, sem hann telur þá merkilegustu, er nokkru sinni hafi gerzt hér á jörðu. Dagrenning hefir aflað sér þessarar bókar og mun það eintak, sem hún á, líklega vera eina eintakið, sem til er hér á íslandi. Hefir þótt rétt í tilefni jólanna nú, að þýða þessar skýrslur Jónatans Hesielssonar og Melkers prests í Betlehem, svo að íslenzkum lesend- um gæfist kostur á að kynnast þeim. Hvað sem öllu öðru líður, er hér um að ræða æva- fomar skýrslur, skýrslur, er vel geta verið frá þeim tíma, er atburðir þessir gerðust, því að mörg skjöl em til miklu eldri en þess- ir atburðir. Mjög getur reynst örðugt að sanna uppruna þeirra, og skeð gæti að þau væru tilbúningur einn, en það álíta ýmsir fræðimenn nú guðspjöllin einnig vera. En þrátt fyrir það eru þau athyglisverð mjög og er bréf Melkers prests eitthvert skelegg- asta innlegg, sem til er fvrir gildi og þýð- ingu spádóma Biblíunnar. Vera má að Dagrenning geti síðar meir birt aðra kafla þessarar merku bókar. Þýðingamir fara nú hér á eftir, en þær hefir gert Kristmundur Þorleifsson. III. Skýrsla JÓÉiatans Hesielssonar og hréf \Ielh.ers ftrests í Betlehem 1. FRAMBURÐUR HIRÐANNA í BETLEHEM. Jónatan Hesielsson yfirheyrði hirðana og fleiri menn í Betlehem, vegna þeirra furðu- legu atburða, sem sagt er að þar hafi gerzt, og skýrir ráði þessu þannig frá: Jónatan til Æðstaráðs ísraelsmanna, þjóna hins sanna Guðs: Ég hlýðnaðist fyrirskipun vðar og fann tvo menn, sem sögðust vera fjárhirðar og gæta hjarða sinna í nánd við Betlehem. Þeir sögðu mér, að þeir hefðu staðið hjá fé sínu að næturlagi; veður var kalt og napurt, og höfðu sumir hirðamir DAGRENNING 5

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.