Dagrenning - 01.12.1948, Side 34

Dagrenning - 01.12.1948, Side 34
inn í land þeirra. Og ég vil gjöra þá að einni þjóð í landinu, á ísraels fjöllum, og einn konungur skal vera konungur yfir þeim öllum og þeir skulu eigi fram- ar vera tvær þjóðir og eigi framar vera skiptir í tvö konungsríki.“----„Og ég mun gjöra við þá friðarsáttmála; það skal vera eilífur sáttmáli við þá.“ Það er sú sameining, sem hér er lýst, sem nú er fram að fara, enda er hún nauðsyn- legur undanfari þeirra átaka, sem brátt munu hefjast. „Vegir þjóðanna" eru ákveðnir af Guði með svipuðum hætti og vegir stjarnanna, en um ákvörðun þeirra efast nú enginn, þótt hin svokölluðu vísindi vilji ekki gefa Guði dýrðina, heldur kalli þá ákvörðun hans „nátt- úrulögmál". Fyrir mörgum þúsundum ára birti hann einum spámanna sinna þá fyrirætlan sína, að sameina ísrael á ný og gefa honurn ríki, sem skyldi verða svo voldugt, að ekkert fengi fyrir því staðizt. Um það geta menn lesið í spádómsbók Daníels, en þar eru bæði í 2. kapítula og 7. kapítula spádómar um þá tíma, sem nú standa yfir. í 2. kapítula, þar sem Daníel ræður draum Nebukadnesars, endar ráðningin með þess- um orðum: „En á dögum þessara konunga (þ. e. Rómaríkis) mun Guð himnanna hefja ríki, sem aldrei skal á grunn ganga, og það ríki skal engri annarri þjóð í hend- ur fengið verða. Það mun knosa og að engu gjöra öll þessi ríki, en sjálft mun það standa að eilífu.“ Hér er sögð fyrir stofnun hins engilsaxn- nesk-norræna þjóðabandalags — bandalags hins nýja ísraelsríkis —, sem hefir verið í snríðum síðustu aldirnar, og sem aldrei skal neinni „annarri þjóð í hendur fengið“ en ísraelsmönnum. Hið sama verður uppi á teningnum, ef við lesum skýringuna, sem Daníel fékk á draurni sínum um dýrin í 7. kapítula bókar hans. Þar segir: „En ríki, vald og máttur allra kon- ungsríkja, sem undir himninum em, mun gefið verða heilögum lýð hins 'hæsta. Ríki hans mun verða eilíft ríki, og öll veldi munu þjóna því og hlýða.“ Hér er greinilega sagt, að það muni verða „heilagur lýður hins hæsta“ — þ. e. ísraels- menn —, sem stofni framtíðarríkið, og auð- vitað verður þá ísraelsþjóðin — ísraelsætt- kvíslimar — kjami þess. Og í hinum mikla spádómi Jesú Krists um endalok þessa tímabils kemur fram ná- kvæmlega sama fyrirheitið. Þegar hann hefir lýst því, hvernig þjóð muni rísa gegn þjóð og konungsríki gegn konungsríki, og hvemig hallæri, drepsóttir og landskjálftar muni eyða löndin, og bræður og systur og foreldrar hafi „framselt" hvert annað til lífláts, „lögmáls- brotin hafi magnazt" og hatrið flæði yfir þjóðimar, segir hann, að mannssonurinn muni senda út engla sína og að þeir muni „safna saman hans útvöldum (þ. e. ísraels- mönnum) frá áttum fjórum, heimsendanna milli“. Það er lokaþátturinn að stofnun þessa bandalags, sem hófst á „skrín-tímabilinu“ frá 25. júní 1941 til 11. nóvember 1948. Þetta bandalag hefir verið að myndast síð- ustu 200 árin án þess þjóðimar viti af því, og nú er lokaþátturinn hafinn, þegar Guð sviptir skýlunni frá augum ísraelslýðs og safnar honum saman til stofnunar þess ríkis, sem „aldrei skal á grunn ganga“. Pýramidinn mikli segir, að sameining Isra- elsþjóða verði fullkomnuð 20. ágúst 1953, — það er næsti mikli spádómsdagur hins nýja bandalags ísraelsþjóðarinnar. 32 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.