Dagrenning - 01.12.1948, Síða 35
draiMniur,
Merkílegur
AÐ var einhvem tíma á árinu 1940, að
ég heyrði frá því sagt, að konu eina
austur í Fljótshlíð hefði dreymt draum, sem
almennt þætti allmerkilegur austur þar. Ég
reyndi að komast að því hjá þeim, sem kunn-
ugir voru þar eystra, hvemig draumur þessi
hefði verið, en það fór eins og venjulega, að
ýmsar „útgáfur" gengu manna á milli og var
engu treystandi af því, sem þannig barst frá
einum til annars. Loks aflaði ég mér upplýs-
inga um konu þá, sem hér var um að ræða,
og fékk að vita nafn hennar og heimili, en
hún heitir Katrín Sigurðardóttir og er kona
Halldórs Sölvasonar, kennara í Fljótshlíð. Ég
skrifaði þeim hjónum í desember 1942 og
fékk svar frá þeim í janúar 1943 og þar með
drauminn skrifaðan með eigin hendi frúar-
innar og vottfestan af þeim, er hún hafði
fvrst sagt hann.
Frú Katrínu segist þannig frá:
„Draurn þann, sem hér fer á eftir, dreymdi
mig um miðjan desember 1939.
Mér þótti eiga að sýna mér, hvemig for-
ráðamenn og þjóðhöfðingjar Norðurálfunnar
mundu líða undir lok.
Ég þóttist stödd í stórum, hringmynduð-
um sal, sem mér fannst að helzt mundi líkj-
ast réttarsal. í honum voru stórir, hring-
mvndaðir bekkir. Salurinn var alskipaður
mönnum og þótti mér sem það mundu vera
þjóðhöfðingjar og forráðamenn Norðurálf-
unnar. Einnig vissi ég, að þar var Roosevelt
Bandaríkjaforseti. Ég leit í kringum mig og
sá mér til undrunar, að allt i einu hafði
fækkað í salnum. Þótti mér þá sem menn-
irnir hyrfu á þann hátt, að ef einn færði sig
nær öðrurn, eyddist hinn og hvarf smám
saman, ýmist gegnum veggi eða gólf.
Þannig smáfækkaði, þar til aðeins fjórir
voru eftir. Það voru þeir Chamberlain for-
sætisráðherra Breta, Hitler, Roosevelt og
Stalín. Ég þóttist heyra rætt um Chamber-
lain, góðmennsku hans sem manns, en stjóm-
arhæfileikar hans og stefna hans léttvægt
fundið og mundi hann því hverfa, enda fór
svo.
Næst er ég leit í kringum mig, var Hitler
horfinn og vissi ég ekki með hvaða hætti
hann hvarf. Enn litaðist ég um og sá þá að
Roosevelt og Stalín voru einir eftir. Varð
ég þá gripinn skelfingu og þóttist hrópa upp
yfir mig: Hvemig fer þetta? Hvernig verður
þetta? Hvor vinnur? Þá sá ég, að fyrir aftan
mig stóð vera. Þótti mér þá að hún mundi
hafa sýnt mér allt þetta. Veran svaraði:
„Það verður Roosevelt, sem stígur á háls-
inn á Stalín.“
Draumurinn var ekki lengri, og ég hrökk
upp og vaknaði.“
Það er tekið fram í bréfi þeirra hjónanna
til mín, að vorið 1940 hafi frú Katrín sagt
draum þennan Bimi Bjömssyni, sýslumanni
Rangæinga, og Guðmundi hreppstjóra Er.
lendssyni og síðar á sama ári Jóni Oddgeir
Jónssyni. Auk þess vottar Oddgeir Guðjóns-
son, bóndi í Tungu, að frú Katrín hafi sagt
sér „ofanritaðan draum“ hinn „17. desem-
ber 1939“.
Mér þykir þessi draumur frú Katrínar Sig-
urðardóttur því merkilegri, því meira sem ég
velti honum fyrir mér og því lengra sem
líður. Nú eru um það bil níu ár síðan frú
Katrínu dreymdi drauminn og þó er hann
enn ekki kominn fram að öllu leyti.
Framhald á bls. 36.
DAGRENNING 33