Dagrenning - 01.12.1952, Síða 31

Dagrenning - 01.12.1952, Síða 31
staddir voru úti við í kaupstaðnum, sterkt ljós í austri hátt á lofti, og færðist það nær með miklum hraða. Þegar það bar yfir kaup- staðinn, líktist þetta glóandi hnetti, eigi rnjög stórum, en aftur úr því lagði breiða ljósrák, hkt og úr rakettu. Bar svo rnikla birtu af þessu, að bjarrna sló á land og loft. Virtist sumunr hin breiða ljósrák vera í þrennu lagi, og varð leiftur- bjart, er loftfari þessi fór yfir. Sýnin varði þó skannna hrið, og ber mönnum ekki fvlli- lega saman um tímann frá því það kom í ljós, þar til það hvarf inn yfir hálendið í vestri, en margir telja það hafa \arað um 5 sek. Mönnum ber heldur ekki alveg saman um lögun þess, en flestir telja það hafa haft lögun kringlu eða kúlu. Virtist loftfarinn geisast nær lárétt vestur á bóginn. Veður var bjart, skýjað með köflum og skýjabakkar í lofti. \'ar sem eldfarinn hyrfi vfir þokubakka yfir hálendinu. Ljósbrigði þessi sáust og greinilega í Loðmundarfirði, en ekki eru fréttir af, að þau hafi sézt norðar. A Stöðvarfirði sáu 10 rnenn þar í kauptún- inu fyrirbæri þetta og segist þeinr svo frá: „Það var klukkan rúmlega fimm, sem menn veittu þ\í athygli, að leifturbjörtunr bjarma sló á jörðina, og er menn litu til lofts, sáu rnenn eldhnött eða kringlu koma hátt á lofti úr austri og dró á eftir sér alllangan eld- hala, sem þó virtist nokkru rauðleitari en sjálf kringlan. Bar þetta hratt yfir og hvarf til vesturs. Himinn var hálfskýjaður og háskýj- að. Miðhluti kringlunnar virtist bera mesta ægibirtu en deyfðist utar. Á Breiðdalsvík sáu ýmsir þenna loffara og virtist sumum þar, sem neistaflug stæði aftur úr. Einnig virtist mönnurn þar, að stefnan væri fremur til suðvesturs." Á Hornafirði sáu fjölda margir þessa furðu- legu ljóskringlu og segist Tímanum svo frá: „Það var laust eftir klukkan fimrn, sem all- margir menn hér á Ilöfn sáu skærurn bjarma slá á jörð og loft og í sama bili sást eldkringla allstór geisast úr austri. Kom hún í Ijós yfir austurfjöllunum og bar hratt vestur vfir. Birti rnjög af þessu. Bílstjóri, sem var á ferð, sá birtuna og fór út til að vita, hverju hún sætti. í sveitunum sáust þessi ljósfyrirbæri víða, s\o sem í Lóni og á Mýrum. Eldfarinn hvarf síðan inn yfir Vatnajökul í vestri, séð úr Ilornafirði. Hirninn var léttskýjaður, þegar þetta gerðist.“ Ekki er talið að ljósfyrirbæri þessi hafi sézt vestan Vatnajökuls þetta kvöld. Veðurfræðingar og aðrir hafa reynt að skýra þetta sem loftsteina, en sú skýring er augsýnilega ah’eg út í bláinn, enda þekkir alnrenningur svo vel vígahnetti að óþarfi er að eyða orðum að þeirri skýringu. Sannleikurinn er sá, að hér hafa verið á ferðinni sömu fyrirbærin og svo mjög hefir orðið vart við erlendis undanfarin ár og þar eru nefnd*„fljúgandi diskar“. Augljóst er, að eldkringlan yfir Austfjörð- um hefir verið geysilega hátt á lofti þar sem hún sést alls staðar á svæðinu frá Loðmund- arfirði til Hornafjarðar á sömu sekúndun- um, að því er virðist. Og þetta sama sunnudagskvöld, 9. nóv. s. ]., telur einn af lögregluþjónunum í Reykjavík, sig hafa séð „einn þessara spor- öskjulöguðu „fljúgandi diska“ hér yfir bæn- um,“ að sögn Morgunblaðsins. Skip á hafi úti hafa einnig orðið vör við þessa furðuhnetti. I Tímanum, 27. nóv., segir frá tveim skip- um sem sáu þessa ljóshnetti og sáu margir menn þá á hvoru skipinu. Frásögnin er svo felld: „Síðastliðinn föstudagsmorgun (21. nóv.) klukkan hálf-sex var togarinn Ingólfur Am- arson á veiðum sextíu mílur norðvestur af Látrabjargi, og skipverjar að vinnu á þilfari. Skyndilega varð bjart sem um dag og litu DAGRENNING 29

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.