Dagrenning - 01.12.1952, Page 36

Dagrenning - 01.12.1952, Page 36
JÓNAS GUÐMUNDSSON: Míkíð vandamál. i. Deilan, sem nú er risin milli íslendinga og Breta út af landhelgislínunni er mikið og hættulegt vandamál. Nú er svo kornið hér á landi, að við liggur að hvert bvggðarlagið af öðru fari í auðn vegna þess að fiskur geng- ur ekki lengur upp á grunnmiðin eins og áður var. Heill hreppur, Sléttuhreppur í Norður-ísafjarðarsýslu, sem fyrir fám árurn hafði um 500 íbúa er nú svo gjörsamlega kominn í eyði að þar bj'r nú enginn maður. Síðustu árin og enn í ár er miklu íé varið úr ríkissjóði til þess að viðhalda byggð á ýmsum afskekktum stöðum og margvísleg lijálp og fyrirgreiðsla veitt af opinberri hálfu til þess að stöðva þann flótta, sem nú þegar er brostinn meðal þess fólks, sem lifað hefir í smáþorpum á Norður-, Austur- og Vestur- landi. Hér skulu þessar ráðstafanir ekki rakt- ar frekar því öllurn eru þær kunnar, sem eitt- hvað vilja um þær vita. N^ið íslendingar erurn nú fyrst að gera okk- ur það ljóst, að ástæðan fyrir því að svona er komið er fyrst og frernst ofveiði sú, sem átt hefir sér stað undanfarna áratugi á fiskimiðunum umhverfis landið, þar sem hundruð togara, innlendra og erlendra, hafa skafið fiskimiðin alveg upp í landsteina. Of- an á þessa ofveiði togaranna bættist svo drag- nótaveðin í landhelginni sjálfri, sem rak smiðshöggið á þessa voðalegu og heimsku- legu rányrkju á fiskimiðunum. Þegar svona var kornið, og eftir að Haag- dómurinn í máli Breta og Norðmanna var genginn Norðmönnum í vil, var loks hafist handa um að færa landhelgina smávegis út og banna alla dragnótaveiði innan hennar. Það var vitað, að sú ráðstöfun mundi mælast misjafnlega fyrir hjá þeim þjóðum, sem senda togara á íslandsmið, en þess var vænst að sá ágreiningur yrði útkljáður með samn- ingi eða af dómstóli eins og siðuðum vina- þjóðum sæmdi. Það var og vitað, að Bretar mundu verða þar í fyrirsvari fyrir öðrurn þjóðurn, sem veiðar stunda hér við land, þar sem floti þeirra mun stærstur allra þeirra þjóða, er hingað sækja til fiskjar. Fæstir rnunu hins vegar hafa gert ráð fyrir því, að svo mundi til takast, sem raun hefir þó á orðið, að bresk stjórnarvöld létu mál- ið svo til afskiptalaust, og létu sig það engu skipta að illvígur flokkur manna þar í landi, útgerðarmenn í Hull og Grimsby, tækju að sér rekstur málsins gagnvart ís- lendingum og beitti ofbeldisaðgerðum og rógburði málstað sínum til framdráttar. Þessi atburður í viðskiptasögu tveggja nágranna- þjóða, sem um aldir hafa átt vinsamleg sam- skipti, er svo einstæður, að enginn fær höf- und þessarar greinar til að trúa því, að héi liggi ekki miklu dýpri orsakir tiJ, en látið er í veðri vaka þegar mál þetta er rætt manna í milli. Mun því reynt að skvgnast nánar urn á þessum vetNangi. II. Eins og rnenn vita, og að framan segir, hófst þessi deila með þeim hætti, að þegar íslendingar höfðu fært út landhelgina og Bretastjóm mótmælt því, en ekki aðhaftst 34 dagrenning

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.