Dagrenning - 01.12.1953, Side 31
„Það verðui' að viðurkenna, að vöxt-
ur K. F. hefir verið með afbrigðum ör
og mikill, einkum þegar þess er gætt, að
flokkurinn ræður ekki yfir neinum telj-
andi blaðkosti, og liefir áreiðanlega ekki
haft yfir að ráða nerna litlu fjármagni
til flokksstarfsenti sinnar og skipulagn-
ingar.
Það er aðeins eitt hinna þriggja kristi-
legu dagblaða landsins — Dagsavisa í
Þrándheimi —, sem opinberlega tilheyr-
ir flokknum, og það blað hefir óveru-
lega útbreiðslu um Þrændalög. Samt sem
áður eykst fylgi hans við hverjar kosning-
ar á saina tíma og Vinstriflokkurinn, sem
styðst við fjölda áhrifaríkra blaða, bíður
binn herfilegasta ósigur. Þessari stað-
reynd er rétt að veita athygli, því hún
er merki þess, að Kristilegi flokkurinn
liafi sérstætt aðdráttarafl á almenn-
ing, þar sem flokkurinn nær miklum
vexti og viðgangi án þess að nota sér
„hið prentaða orð“ (pressen) til út-
breiðslu, og áróðurs skoðunum sínum,
nema að litlu leyti.“
Af blöðum, sem borist hafa frá Oslo
eftir kosningarnar, má sjá, að hinn mikli
kosningasigur hefir lyft undir flokksstarf-
semina. Nú er í athugun t. d. með liverj-
um hætti má styrkja og auka blaðakost
flokksins. Breyting mikil liefir orðið á
jringmannaliðinu, því auk hinna 5 nýju
Jnngmanna báðust fjórir hinna elztu
þingmanna flokksins undan endurkosn-
ingu og voru Jiví ekki í fi'amboði. Erling
Wikborg lögmaður, er tekinn við for-
mennsku flokksins af Nils Lavik, sem
var stofnandi flokksins og formaður allt
til þessa, en Lavik er nú kominn um eða
yfir áttrætt.
Dagrenning hefir aflað sér góðra sam-
banda við Kristilega flokkinn í Noregi
og mun lofa lesendum að fylgjast með
Jrví lielzta sem Jjar gerist.
DAGRENNING 29