Dagrenning - 01.12.1953, Blaðsíða 45
þjóðir. Dómur framtíðarinnar yfir þessu
ógæfuliði, sem mikið illt mun stafa af
verður þyngri en svo að þeir, sem til þess
hafa stofnað fái undir risið.
Um leið og Bandarikin hættu fégjöf-
um og „lánum“ til Vestur-Evrópuríkj-
anna hófu þær allar (nema Vestur-hjóð-
verjar) stórfelld viðskipti við Sovíetrík-
in og leppríki þeirra, en áður höfðu mest
öll viðskiptasambönd verið lokuð austur
þangað. Svo hart leggja Sóvietríkin að
sér um þessi viðskipti, að þau flytja gull
og aðra góðmálma úr landi til að greiða
með varninginn frá Vesturlöndum. Vafa-
laust er orsökin til þessarar breytingar
stjórnmálalegs eðlis. Á sama tíma, sem
þetta gerist, draga Bandaríkin saman segl-
in. Þau hafa tilkynnt, að þau nruni
minka eða hætta með öllu ýmsri starf-
semi, sem þau hafa haldið uppi undan-
farin ár, og þess verður sennilega ekki
langt að bíða, að dollaraskortur fari aft-
ur að gera vart við sig í Vestur-Evrópu.
Einu þjóðir Vestur-Evrópu sem sýnast
vilja liafa vinsamleg samskipti við Banda-
ríkin eru Vestur-Þjóðverjar, Spánverjar
og Portugalir. Sama fjandskapar og gæt-
ir í stjórnmálaflokkunum íslenzku í garð
Bandaríkjanna, gætir einnig nú nokkuð
bæði á Norðurlöndum og í Bretlandi.
Það eru einkum nýkommúnistar, sem
þar eru að verki. Það er ekki ólíklegt að
samstarf Bandaríkjanna og Vestur-Ev-
rópuþjóða minnki mjög á árinu 1954,
en jafnframt verði tekin upp aukin við-
skipti og nánari samvinna við Rússa og
leppríki þeirra og eru Bretar — undir
sívaxandi áhrifum Bevanismans — lík-
legir til að hafa forustu þar um, en sósíal-
demókratar á Norðurlöndum fylgja
dyggilega á eftir. Stefnan, sem kommún-
istar fylgja nú er sú, að einangra Banda-
ríkin og slíta sambandið milli þeirra og
Vestur-Evrópuþjóðanna. Þegar brjóst-
vörn lýðfrelsisins, sem nú er í Banda-
ríkjunum, hefir verið veikt með Jress-
um hætti, verða vestrænar Jajóðir auð-
tekið herfang fyrir Sovíetríkin. F.kki er
ólíklegt að fyrir árslok 1955 verði „járn-
tjaldið“ komið út að Atlantshafi og
Norðurlönd, Frakkland, Holland, Belgia
og Vestur-Þýzkaland öll innan þeirrar
girðingar. Verði Bretland og ísland þar
ekki, verður það vegna miskunnar Drott-
ins, en ekki fyrir eigin aðgerðir eða eigin
verðleika.
#
Sameinuðu þjóðirnar hafa reynzt jafn
máttlausar á þessu ári sem að undan-
förnu. Það kemur æ betur og betur í
ljós að frá þeim er einskis að vænta um
að tryggja frið í heiminum. Þær eru að-
allega áróðussamtök fyrir Rússa og fylgi-
ríki þeirra og þeir nota hvert tækifæri
sem gefst til, að smána vestrænar, kristnar
þjóðir, og bera þeim á brýn allskonar
vammir og skammir. Hinar heiðnu aust-
rænu áróðurs- og undirhyggju ríkisstjórn-
ir hafa ekkert takmark né tilgang með
veru sinni í samtökum Sameinuðu þjóð-
anna annað en það, að sundra vestrœnum
þjóðum og eyðileggja þann grundvöll,
sem lýðfrelsi og menning þeirra byggist á.
Þrá vestrænna Jrjóða eftir friði notfæra
hinar heiðnu, austrænu árásar- og undir-
hyggjustjórnir sér út í æsar til þess að
ná þessu takmarki sínu. Er ekki kominn
tími til Jress fyrir vestrænar Jrjóðir að at-
huga hvort afstaða þeirra til „Sameinuðu
Jrjóðanna“ — sem ættu að heita „Sundr-
aðar þjóðir" — er rétt, og hvort ekki er
nauðsynlegt að breyta alveg grundvelli
þeirra samtaka? Um þetta verður nánar
rætt síðar.
DAGRENN I NG 43