Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Ég held að vandræðin, sem hafa
skapast undanfarið, eigi eftir að
versna á næstu árum ef kerfinu
sem dýralæknar vinna eftir verður
ekki breytt,“ segir Hákon Hansson
dýralæknir á suðurfjörðum Aust-
fjarða sem þjón-
ar svæðinu frá
Lónsheiði í suðri
að Reyðarfirði í
austri.
Hann hefur
unnið samkvæmt
þjónustusamn-
ingi við Mat-
vælastofnun frá
árinu 2011. Há-
kon hefur starfað
sem dýralæknir frá árinu 1977 og
var héraðsdýralæknir á fyrrgreindu
svæði fram til ársins 2011.
Óhóflegar kvaðir á dýralækna
Fyrsta nóvember árið 2011 var
tekið upp núverandi kerfi. Það fól
m.a. í sér að gerðir voru þjónustu-
samningar við dýralækna á dreif-
býlum landsvæðum, en þeir eru
samt sjálfstætt starfandi. Landinu
var þá skipt niður í 9 þjón-
ustusvæði.
Hákon bendir á að frá því að
kerfið var tekið upp hefur það ekki
verið endurskoðað. Slíkt þurfi að
gera og fara yfir reynsluna eftir
þessi þrjú ár. Hann hefur ekki góða
reynslu af kerfinu og segir hrein-
lega ekki nógu marga dýralækna á
vakt í dreifðari byggðum landsins.
Það leiði til þess að í sumum til-
fellum sé einn og hinn sami dýra-
læknir á vakt allan sólarhringinn.
„Kvaðir á þessa dýralækna eru
óhóflegar, í 6 af 9 svokölluðum
þjónustusvæðum er einn dýralækn-
ir á vakt allan sólarhringinn, alla
daga ársins. Annars staðar eru
vaktsvæði svo stór, að jafnvel þó
tveir eða fleiri dýralæknar skipti
með sér vöktum er alltaf bara einn
á vakt á stóru svæði og um langa
vegu að fara. Og þeir dýralæknar
sem gera svokallaðan þjónustu-
samning eru skuldbundnir sam-
kvæmt samningi að útvega sjálfir
afleysingu og þeir greiða sjálfir öðr-
um dýralækni að fullu fyrir afleys-
inguna, hyggist þeir taka sér frí.“
Hákon segir það geti reynst
þrautin þyngri að finna afleysingu
og það hefur m.a. valdið því að
sumir dýralæknar komast vart í frí
jafnvel árum saman, því þeim tekst
ekki að útvega staðgengil.
Endast ekki lengi í starfi
„Þetta er auðvitað ótækt og mun
leiða til þess fyrr en síðar, að enn
erfiðara verður að fá dýralækna í
dreifðar byggðir. Það hljóta allir að
sjá, að dýralæknir sem er á vakt
allan sólarhringinn og kemst auk
þess varla í sumarfrí, endist ekki
lengi í starfi,“ segir Hákon.
Morgunblaðið/RAX
Búskapur Dýralæknar með þjónustusamning við Matvælastofnun þurfa
sjálfir að útvega annan dýralækni í sinn stað hyggist þeir taka sér frí.
Dýralæknar á sólarhrings-
vakt og komast ekki í frí
Hákon Hansson
Ástandið mun versna ef kerfinu verður ekki breytt
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Við fengum beiðni frá Matvæla-
stofnun um aukið fjárframlag, þegar
vinna við fjárlög var langt komin.
Það var erfitt að bregðast við þá. Við
erum meðvituð um þennan vanda og
höfum verið að skoða hvernig við
getum komið til
móts við ólík
sjónarmið til að
leysa þessa stöðu
sem er komin
upp. Það hefur
sumstaðar reynst
erfitt að fá fólk til
starfa og einnig
til að sinna þess-
um hluta af dýra-
læknaþjónust-
unni. Við eigum væntanlega fund
með Matvælastofnun í næstu viku og
skoðum allar færar leiðir til að
tryggja eðlilega dýralæknaþjónustu
þar sem annars staðar á landinu,“
segir Sigurður Ingi Jóhannsson sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Fleiri þjónustustusvæði
Í desember óskaði Matvælastofn-
un eftir að reglugerð um dýralækna-
þjónustu í dreifðum byggðum yrði
breytt svo unnt væri að gera þjón-
ustusamning við þrjá dýralækna á
Norður- og Austurlandi í stað
tveggja. Þrátt fyrir að 50% þjónustu-
samningur á Austurlandi hafi verið
auglýstur í þrígang hefur ekki tekist
að fá dýralækni til starfa eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær.
Breytingin sem Matvælastofnun
leggur til er að fjölga þjónustusvæð-
unum. Þau eru nú níu talsins en yrðu
10. Það væri gert með þeim hætti að
svæðum sem ná frá svæðinu í kring-
um Húsavík og að Egilsstöðum yrðu
breytt úr tveimur í þrjú. Á þessum
tveimur svæðum eru 50% þjónustu-
samningar en á öllum hinum svæð-
unum er 100% þjónustusamningur.
Matvælastofnun leggur til að
gerður yrði 100% þjónustusamn-
ingur við dýralækna á þessu svæði.
Samkvæmt reglugerðinni, um
dýralæknaþjónustu í dreifðari
byggðum, sem tók gildi 1. nóvember
árið 2011 voru gerðir þjónustusamn-
ingar við dýralækna til þriggja ára.
Þeir runnu út 1. nóvember síðastlið-
inn. Eingöngu hefur verið gerður
50% þjónustusamningur á svæð-
unum frá Húsavík til Egilsstaða. Þá
á því eftir að fá dýralækni til að taka
hin 50%. Gengið hefur verið frá
þjónustusamningum á öðrum stöð-
um á landinu.
Erfitt að manna
stöður úti á landi
Funda með Matvælastofnun
Morgunblaðið/Eggert
Dýralæknaþjónusta Erfitt reynist
að manna stöður úti á landi.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Agnes Bragadótti
agnes@mbl.is
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að
margvísleg vinna sé hafin innan Vegagerð-
arinnar, sem verður í samráði við Ríkiskaup
og Ríkisendurskoðun, til þess að bæta verk-
ferla í sambandi við innkaup Vegagerðarinn-
ar. „Það er margt mjög vel gert hjá okkur, en
við vitum af ákveðnum atriðum sem við þurf-
um að bæta og erum að vinna að þeim umbót-
um. Þetta tekur einhvern tíma, en markmiðið
er að verða eins góð og bestu ríkisfyrirtæki í
innkaupum,“ sagði Hreinn í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Hreinn sagði stjórnendur
Vegagerðarinnar sammála því sem komið
hefði fram í umræðunni upp á síðkastið, að
með útboði kæmust fleiri að borðinu og líkur
á því að hagstæðari kjör fengjust væru að
sama skapi meiri. Hreinn sagði að Vegagerðin
byði t.d. reglulega út það sem tengdist fjar-
skiptamálum. „Vegagerðin er mjög stór not-
andi, með mikið af mælum meðfram öllu
vegakerfi landsins og veðurstöðvar og mynda-
vélar um land allt, sem nota gagnaflutninga.
Það hefur því verið mikið í það að sækja, að
bjóða það út reglulega,“ sagði Hreinn.
Obbinn af innkaupum í gegnum útboð
„Obbinn af okkar innkaupum er í gegnum
opinber útboð. Allar stórar framkvæmdir á
okkar vegum og annað slíkt. En auðvitað eru
alltaf einhver smáverk og vörukaup sem fara
eftir öðrum leiðum, eins og rammasamningum
eða verðkönnunum,“ sagði Hreinn. Hann seg-
ir að Vegagerðin fái töluvert aðhald frá Rík-
isendurskoðun, sem sl. haust hafi veitt Vega-
gerðinni mjög jákvæða umsögn, þar sem fram
hafi komið að verkferlar Vegagerðarinnar
varðandi innkaup væru mjög góðir og um
undantekningar væri að ræða ef hlutirnir
væru ekki í lagi.
„Við höfum tekið ákvarðanir um ýmislegt
til úrbóta upp á síðkastið, m.a. vegna þeirrar
gagnrýni sem kom fram í Kastljósi nýverið.
Við erum með gæðakerfi sem er í stöðugri
endurskoðun, þar með talið verklagsreglur.
Við höfum sett af stað nokkuð stóran starfs-
hóp hérna innanhúss, sem í samráði við Rík-
isendurskoðun og Ríkiskaup mun fara yfir
alla verkferla í sambandi við kaup fyrirtæk-
isins á vörum og þjónustu. Það er til þess að
tryggja tvennt: að það séu ekki hagsmuna-
tengsl og að hagstæðustu kjörin náist á hverj-
um tíma. Þar erum við ekki síst að horfa á
smærri verk, sem eru undir útboðsskyldu-
mörkum. Þar gætu örútboðin innan ramma-
samninga Ríkiskaupa hentað okkur vel í
mörgum tilvikum,“ sagði Hreinn.
Vegagerðin er með 20 starfsstöðvar um
land allt. Hreinn segir að yfirmönnum á
hverju svæði hafi verið falið að fara yfir það
hvernig viðskiptum er háttað varðandi kaup á
vöru og þjónustu. „Það er gert til þess að
tryggja hæfi starfsmanna og að engin tengsl
séu á milli þeirra og verksalans og sömuleiðs
hvernig staðið er að viðskiptum í sambandi
við hin smærri verk, sem eru ekki útboðs-
skyld,“ sagði Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri.
Vegagerðin hyggst bæta verkferla
Vegamálastjóri segir að breytingar verði gerðar
í samráði við Ríkiskaup og Ríkisendurskoðun
Vegagerðin Vegagerðin er með tuttugu
starfsstöðvar, sem dreifast um land allt.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
AUDI A3 SPORTBACK
11/2007, ekinn 83 Þ.km, DIESEL,
sjálfskiptur. Verð 2.490.000.
Raðnr.253014 áwww.BILO.is
SUZUKI SWIFT GL
06/2010, ekinn 78 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 1.580.000.
Raðnr.285257 á www.BILO.is
VW CADDY LIFE
10/2006, ekinn 162 Þ.km, bensín,
5 gíra. Verð 1.390.000.
Raðnr.285361 á www.BILO.is
CITROEN BERLINGO VAN DIESEL
01/2008, ekinn 81 Þ.km,
5 gíra. Verð 1.280.000.
Raðnr.252750 áwww.BILO.is
RENAULT KANGOO EXPRESS
03/2006, ekinn 98 Þ.km, diesel,
5 gíra. Verð 1.090.000.
Raðnr.310728 áwww.BILO.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is