Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 ✝ SveinbjörnIngimundarson fæddist að Yzta- Bæli, A-Eyjafjöll- um, 1. september 1926. Hann and- aðist á Hrafnistu í Reykjavík 30. des- ember 2014. Foreldrar hans voru Ingiríður Eyj- ólfsdóttir frá Efra- Hrútfellskoti, A- Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu, f. 19.6. 1889, d. 25.8. 1968, og Ingimundur Brandsson frá Yzta-Bæli, f. 9.8. 1889, d. 16.7. 1973. Systkini hans voru: Elín Guðrún Ingibjörg, f. 16.9. 1914, d. 25.10. 1984, Sigríður Sigurlín, f. 11.10. 1917, d. 7.5. 1997, Tóm- as Ólafur, f. 22.7. 1919, d. 18.7. 2010, og Karolína Kristbjörg, f. 27.2. 1925. Sveinbjörn giftist Eygló Markúsdóttur frá Borgareyrum, V-Eyjafjöllum, 10.7. 1933, þann 27. desember 1952 og eignuðust þau átta börn. 1) Örn, f. 30.9. 1951, maki Guðrún Ólöf Guð- mundsdóttir, f. 10.3. 1954, þeirra börn a) Björk, f. 30.11. 1977, maki Jónas Bergmann Magnússon, f. 21.11. 1975, þeirra börn 1a) Magnús Berg- mann, f. 9.10. 1998, 2a) Birgitta Saga, f. 12.8. 2002, 3a) Örn Vik- ar, 5.6. 2007, 1b) Hrönn, f. 30.3. Selmu Filippusdóttur, f. 10.9. 1961, þeirra synir eru 4a) Fann- ar Freyr, f. 21.8. 1985, 4b) Ísak, f. 8.11. 1995, 4c) Ívar, f. 8.11. 1995. 5) Ingimundur, f. 4.1. 1960, börn hans og Guðrúnar le Sage deFontenay, f. 18.9. 1962, eru 5a) Guðrún Birna, f. 3.12. 1981, maki Áki Hermann Bark- arson, f. 30.10. 1978. Þeirra dóttir er 5a) Sigríður Sjana Áka- dóttir, f. 12.7. 2013, 5b) Jóhann Jean, f. 20.4. 1988. 5c) Ólöf Sess- elja, f. 13.8. 1994. 6) Hrafn, f. 22.12. 1961, maki Anna Dóra Pálsdóttir, f. 7.7. 1964, þeirra börn eru 6a) Leó Páll, f. 9.4. 1985, maki Eva Hrund Heim- isdóttir, f. 31.8. 1981. 6b) Þór- hildur Margrét, f. 15.11. 1990, maki Haukur Hermannsson, 4.7. 1990, 6c) Eygló Ýr, f. 5.10. 1992. 7) Ester, f. 9.9. 1963, synir henn- ar og Óskars Jónssonar, f. 4.6. 1960, d. 19.2. 1990, eru: 7a) Markús, f. 15.9. 1986 og 7b) Jón Sveinbjörn, f. 22.2. 1990. Sam- býlismaður Magnús Sigurðsson, f. 4.11. 1964, þeirra sonur er 7c) Bjarki Snær, f. 8.1. 1999. 8) Helga Sif, f. 7.3. 1972, maki Haukur Örn Jónsson, f. 27.5. 1972, þeirra synir eru 8a) Davíð Þór, f. 18.4. 1996, 8b) Ásmundur Helgi, 13.6. 2000, 8c) Arnar Pét- ur, f. 10.3. 2003, 8d) Björn Egg- ert, f. 17.12. 2004. Sveinbjörn starfaði sem bóndi í Ysta-Bæli, A-Eyjafjöllum, flutti þaðan á Seltjarnarnes og var síðast búsettur í Hafnarfirði. Útför Sveinbjörns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9. janúar 2015, og hefst athöfnin kl. 13. 1984, maki Haukur Ísfeld Ragnarsson, f. 20.8. 1984. 2) Óskírður sonur, f. 3.4. 1953, d. 4.4. 1953. 3) Sigurður Ingi, f. 9.4. 1954, hans börn og Heiðu Bjargar Scheving, f. 20.6. 1960 eru 3a) Hrund, f. 12.2. 1978, maki Har- aldur Pétursson, f. 17.6. 1979, börn hennar og Jóns Helga Sveinssonar, f. 28.3. 1979, 1a) Selma Rún, f. 8.9. 2004 og 2a) Magnús Heiðar, f. 29.5. 2007, 3b) Eygló, f. 4.11. 1983, dóttir hennar og Kjartans Arnald Hlöðverssonar, f. 12.2. 1980, er 1b) Sveinbjörg Júlía, f. 11.7. 2004, maki Guðmundur Már Einarsson, f. 24.4. 1982, þeirra dóttir Anna Leyla Scheving Guðmundsdóttir, f. 13.2. 2014, Dætur Sigurðar Inga og Katr- ínar Guðjónsdóttur, f. 7.7. 1964, eru: 3c) Sunna, f. 26.5. 1987; hennar sonur og Davíðs Þórs Vilhjálmssonar, f. 5.8. 1985, er 1c) Þór, f. 7.6. 2005; maki Þór- arinn Ágúst Pálsson, f. 3.3. 1983, þeirra börn 2c) Ronja Margrét, f. 11.5. 2009, 6c) Katrín Una Þórarinsdóttir, f. 24.5. 2012, 3d) Sigrún, f. 14.3. 1989, 3e) Hrefna, f. 15.7. 1990. 4) Markús Gunnar. f. 6.12. 1956, börn hans og Hlusta eftir æðri ómum, eignast frið á kaldri jörð. Flyt til himins bæn með blómum, berðu drottni þakkargjörð. (SI) Sveinbjörn Ingimundarson, faðir minn, var leystur frá margra ára erfiðum veikindum og heldur á vit nýrra ævintýra sem enginn sögumaður hefur fengið að flytja okkur eftirlif- endum. Pabbi var rammur að afli og lyfti og dró til heyvagnana hlaðna, stökk heljarstökk rétt fyrir 70 ára afmælið. Sveinbjörn var þúsundþjala- smiður, hann lærði bókband og batt m.a. inn fyrir bókasafnið að Skógum. Hann dúk- og teppalagði og var mjög laginn við viðgerðir á vélum, átti log- suðu- og rafsuðuvélar, svo var smíðað bæði úr járni og viði. Þessi vinna átti miklu betur við hann en umhirða skepnanna. Hann elskaði blómin, smá- fuglana og landið sitt Ísland. Þrátt fyrir miklar annir gaf hann sér tíma til að sinna menningu, leika hjá leikfélag- inu, semja skemmtiefni og samdi alla tíð mikið af vísum, var félagi í kvæðamannafélag- inu Iðunni. Allt sem hann las mundi hann og gat flutt með tilþrifum. Það var mjög skemmtilegt að tala við pabba, því hann var víðlesinn og fylgd- ist vel með því sem var að ger- ast í kringum hann. Hann var mjög pólitískur og varð aldrei svo veikur að hann treysti sér ekki til að nýta kosningarétt sinn. Hann var mjög næmur á mannlega líðan og alltaf tilbú- inn að leggja sitt af mörkum til að láta öðrum líða betur. Síðari ár var heyrnin léleg og sjónin nær farin en hann kom á óvart því sýn hans var opin á tíðnir og strengi sem bærast í brjóst- um og sá því oft og tíðum það sem öðrum var hulið. Hann hafði mikla ánægju af fjölskyldunni og var okkur börnunum sínum vinur og fé- lagi alla tíð. Áramótin voru hans tími, þar sem álfar og huldufólk voru á ferli og söng hann áramótalögin með mikilli gleði. Safnað var í brennu og dansað í kringum bálið, en þeg- ar við fórum tóku álfarnir við og gátum við börnin séð þegar eldurinn blossaði upp aftur þeg- ar álfarnir bættu brenni á eld- inn. Ekki er hægt að tala um pabba nema að minnast á mömmu því tenging þeirra var svo sterk og falleg. Þau voru bæði mjög trúuð og oft leitað til þeirra með fyr- irbænir. „Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig, mun einnig gjöra þau verk, sem ég gjöri. Og hann mun gjöra meiri verk en þau, því ég fer til föðurins. Og hvers sem þér biðjið í mínu nafni, það mun ég gjöra, svo að faðirinn veg- samist í syninum.“ (Jóh. 14:6- 13) Föður minn og móður kveð ég ekki, heldur lifa þau í minn- ingunni með mér í daglegu amstri. Bæði uppeldið og arf- berinn leggja mér línur og minnsta hreyfing færir mér minningar um ljúfa vegferð þessara heiðurshjóna. Í hjarta mér ríkir þakklæti fyrir gæsku og gleðinnar stund- ir. Hátt var oft hlegið, djúp sú viska sem miðluð var af kær- leika, en mest um vert er mér sú vissa að sólina þína, „Eyg- lóina“, finnur nú aftur er augun ljúkast að kveldi. Vonir glæðast, vinir sjást, vekjast nýir eldar, verður allt sem áður brást, aukast ljós er kveldar. (SI) Kveðja frá Markúsi G. og fjölskyldu. Guð ykkur geymi gegnum ár og aldir. Ester Sveinbjarnardóttir. Afi var einn af þessum mönn- um sem voru ef til vill fjötraðir af sínum tíma og aðstæðum. Hann var bóndi en hefði sómt sér vel sem fræði- og mennta- maður á hvaða menntastofnun sem er enda fjöllesinn og góð- um gáfum gæddur. Þannig man ég best eftir honum. Lesandi við hvert það tækifæri sem hon- um gafst á milli bústarfa og auðfús til að miðla af þekkingu sinni á fólki, landi og sögu. Hann sagði sögur og fór með ljóð með þessari séstöku hrjúfu rödd sem átti einhvern veginn svo vel við hann svona lítinn, grófan og veðraðan. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að kynnast afa mín- um og ömmu á þann hátt að geta sagt að þau hafi sann- arlega kennt mér mikið og mót- að mig sem persónu. Á hverju sumri frá því að ég man eftir mér ferðaðist ég um langan veg eins og farfuglarnir til að heim- sækja ömmu og afa í sveitina. Yzta-Bæli var mér sannkölluð paradís, full af ævintýrum á hverjum degi og reyndist vistin mér alltaf góð. Þetta var heldur engin venjuleg vist. Afi og amma voru ekki mikið að þræla þessum barnabörnum sínum út við sveitastörfin og þrátt fyrir að við værum fús til að rétta þeim hjálparhönd einkenndist sumarið mest af töfrum og gæsku afa og ömmu. Afi samdi mikið af ljóðum og kunni fleiri ljóð, stökur, vísur og kvæðabálka en ég hef tölu á. Hann fór afar vel með kveð- skap og alltaf voru ljóð svo fal- leg og kraftmikil í hans flutn- ingi. Oft lauk þeim með brosi eða hlátri sem virtist koma svo djúpt úr sálinni að manni vökn- aði um augun. Eftir að hann fluttist úr sveitinni í Álfaskeiðið með ömmu kynntist ég svo nýjum manni. Manni sem gat loksins gefið sér tíma til að njóta og gefa. Þegar við komum í heim- sókn til ykkar ömmu sast þú oftast við skrifborðið um- kringdur bókum frá lofti og niður á gólf. Þá var svo gaman að tala um allt á milli himins og jarðar. Frásagnir frá liðnum tíma, draugum, álfum og yf- irnáttúrulegum öflum. Það bjó svo margt í honum og í kring- um hann sem ekki öllum er gef- ið að sjá og skilja. Hvernig hann las í veður og náttúruna. Hvernig hann hjálpaði fólki á öllum tilverustigum með fyrir- bæn og visku. Hvernig hann virtist sjá inn í sálina á manni en fór samt svo vel með það. Svo margt sem gerir bónda á litlum bæ undir Eyjafjöllum að minnisstæðasta og magnaðasta manni sem ég hef kynnst. Þeg- ar við hittumst var alltaf eins og ég væri komin heim og eftir að við misstum ömmu var eins og hún lifði í honum. Traust faðmlag, Yzta-Bælis-koss og ánægjulegt murr var svo þægi- lega kunnugt og gott. Mér fannst við oft tengjast á ein- hvern óútskýranlegan hátt, sér- staklega núna seinni ár. Gott dæmi um það er þegar við hitt- umst í allra síðasta sinn á þessu tilverustigi. Þegar ég var lítil var ég nefnilega vön að segja að fyrst kæmi lóan, svo kæmi spóinn og svo kæmi ég og þá væri sumarið komið hjá afa og ömmu. Þegar ég kom þennan dag sátum við saman á rúmstokknum og ég var að rifja upp tímana á Yzta-Bæli og varð mér þá hugsað til þessara orða. Þú varst orðinn eins og skugg- inn af sjálfum þér; veikur, kval- inn, máttvana og þreyttur. Ég hafði varla sleppt þessari hugs- un minni um orð mín um vor- boðana þegar hann reisir sig upp og segir: „Hvernig var það aftur sem þú sagðir: Fyrst kemur lóan, svo kemur spóinn, svo kemur þú og þá er vorið komið hjá okkur.“ Með þessum orðum kveð ég þig og ömmu. Guð hefur geymt hana nógu lengi fyrir þig og ég veit að endurfundirnir verða ljúfir. Núna er þínum vetri lokið og vorið verður eilíft hjá ykkur ömmu. Ég vona bara að vor- boðarnir beri ykkur kveðju mína. Þín afastelpa, Björk Arnardóttir. Það eru engin höf nógu djúp, enginn dagur nógu bjartur og ekkert ljóð nógu dýrt kveðið til að lýsa Sveinbirni afa mínum. Hans hlýja faðmlagi. Hans ein- staka skopskyni. Hans hafsjó af visku. Afi vissi nefnilega allt og kunni allt. Hann var alvitur. Enda sérlega víðlesinn maður og fróðleiksþyrstur. Hann las allt sem bar fyrir augu. Íslend- ingasögurnar og Konungasög- urnar allar. Skáldskap og ævi- sögur. Ljóða- og vísnabækur. Svo þegar sjónin brást honum notaðist hann við hljóðbækur, sem í seinni tíð voru stilltar á hæstu stillingu svo ekki fór á milli mála fyrir gesti. Það var alltaf gott að heimsækja afa og ömmu. Þau komu alltaf til dyr- anna eins og þau voru klædd með opinn arminn og buðu upp á heimagerðar flatkökur, mjólk og fyrsta flokks samtöl um lífið og heimsmálin. Afi og amma voru kannski ekki víðförul, en þau voru heimsborgarar engu að síður. Afi átti það til að bresta í kveðskap þegar hann talaði, máli sínu til stuðnings. Hann var hnyttinn með ein- dæmum og vísur hans hittu alltaf beint í mark. Hann kunni hundruð, ef ekki þúsundir vísna og rímna. Hann var með djúpa og flauelsmjúka röddu og bassi hans fyllti herbergið og hverja frumu þess sem hlustaði. Það var enginn honum líkur. Og verður aldrei. Elsku yndislegi afi. Ég skrif- aði þér eitt sinn í bréfi að ég hefði klifið fjall eitt í Japan og aldrei séð stjörnurnar skærari. Fegurðin var alger og engri lík. Það andartak leitaði amma svo sterkt á mig að ég átti erfitt með að halda aftur af tárum. Nú hugsa ég til þín þegar ég lít upp til stjarnanna. Ég mun aldrei gleyma þér. Þín Hrönn. Það eru góðar minningar sem ég á um elskulegan frænda minn Sveinbjörn í Yzta-Bæli, sem hefur nú kvatt okkur. Minningarnar eru samofnar æsku og uppvexti á næsta bæ, Bökkunum, þaðan sem trítlað var ótt og títt að leika við frændsystkin í Yzta-Bæli. Kær- leikur og viska eru orð sem mér eru efst í huga um hann frænda minn. Hann var fróð- leiksbrunnur um sögu, menn og málefni, fyrr og síðar og var óspar á að segja okkur krökk- unum sögur og miðla fróðleik milli kynslóða. Þakkir fyrir allt og allt á lífs- ins vegferð og hin miklu og góðu samskipti æskuára í Yzta- Bæli hjá Sveinbirni og Eygló standa eftir. Ég og bræður mínir, Jón Ingvar og Steinar, vottum börnum, barnabörnum og að- standendum öllum dýpstu sam- úð. Guðrún María Óskarsdóttir. Í dag er til moldar borinn sómamaðurinn og frændi okkar Sveinbjörn Ingimundarson frá Ysta-Bæli. Sveinbjörn var nágranni okkar fjölskyldu allan búskap foreldra okkar í Berjanesi og var mikill og einlægur vinur þeirra og hjálparhella. Þeir vin- irnir, Sveinbjörn og Andrés, hjálpuðu hvor öðrum þegar þess þurfti með eins og gengur í sveitinni og gott var að leita til Sveinbjarnar þegar á bját- aði. Ekki voru þær síðri vin- konur Eygló og Marta. Þær voru ófáar ferðirnar sem hann átti að Berjanesi til aðstoðar og þegar foreldrar okkar voru orðin öldruð þá komu börn hans einnig og að- stoðuðu þau. Sú aðstoð verður seint full- þökkuð, sem þau heiðurshjón Sveinbjörn og Eygló veittu for- eldrum okkar í þeirra búskap. Heimsóknir þeirra hjóna að Berjanesi voru alltaf gleði- stundir og margar góðar stund- ir áttu þeir saman Sveinbjörn og faðir okkar, þar sem sögur voru sagðar, liðnir atburðir rifj- aðir upp og vísur settar saman. Með þessum orðum langar okkur að þakka honum fyrir vinskap, hjálpsemi og allt sem hann gerði til að létta þeim líf- ið. Betri nágranna er vart hægt að hugsa sér. Blessuð sé min- nig Sveinbjarnar. Við sendum fjölskyldunni allri samúðarkveðjur. Páll, Kristín Hlíf og Katrín Þorbjörg frá Berjanesi og fjölskyldur þeirra. Óðum fækkar í þeirri fylk- ingu æskufólks sem óx á legg undir Eyjafjöllum á þriðja tugi 20. aldar og þar er allra góðs að minnast. Nú hefur Svein- björn frá Ystabæli kvatt land og lýð eftir gifturíkt ævistarf. Heimili foreldra hans, Ingi- mundar og Ingu, er mér fast og kært í minni. Ingimundur fræddi mig manna best um ættir og mann- líf 19. aldar undir Eyjafjöllum, hress í bragði og skorinorður. Inga var allra kvenna glöðust, létt í máli og skemmtin á öllum samfundum. Deyfð og drungi áttu aldrei samleið með henni. Öll börn þeirra báru með sér blæ góðrar heimilismenningar. Sveinbjörn og Eygló lágu hvergi á liði sínu, hýstu býli sitt af stórhug og vegsemd og ræktuðu víða túnvelli. Ekki gleymist hve gott var að sækja þau heim. Hverjum gesti var fagnað með hlýrri gleði og gamanmálum. Margur átti hjá þeim athvarf alúðar og auðnu. Bæði prýddu samfélag sitt með fagurri söngrödd. Glöggt man ég hve bassarödd Sveinbjarnar fór vel í söng. Eygló leiddi hjá mér millirödd í kór Eyvindar- hólakirkju, enda komin af bestu söngætt í Rangárþingi, frá Hlíðarenda í Fljótshlíð. Þau hjón eru nú horfin sýnum en góðar minningar geymast. Síðustu ár urðu Sveinbirni erfið en traust minni og hlýr hugur héldu velli. Hann sleit ekki velvild til mín í fjarlægðinni, jólakort bár- ust að Skógum uns yfir lauk. Eyfellingar minnast Svein- bjarnar og Eyglóar í þökk. Ættarsetrið Ystabæli minnir á verk þeirra og gengnar gleði- stundir. Umhverfið er óbreytt með einni fegurstu fjallasýn byggðarinnar og brimhljóðið er rétt við bæjardyr. Ég sendi börnum Ystabæl- ishjóna og Kristbjörgu systur Sveinbjarnar, samhuga honum í góðvild, innilegar samúðar- kveðjur og óskir um framtíð- arheill. Minningar um gott fólk eru guðsgjöf. Þórður Tómasson. Þegar fregn berst um andlát góðs vinar þá leitar hugurinn til baka. Svo er nú þegar Sveinbjörn Ingimundarson í Yzta- Bæli er genginn. Með þakklæti minnist ég Sveinbjarnar, þakklæti fyrir fölskvalausa vináttu við okkur í Berjanesi gegnum árin. Fátt er betra en góðir grannar og það voru þau svo sannarlega hjónin Sveinbjörn og Eygló í Yzta- Bæli. Sveinbjörn var barngóð- ur og nutu börnin mín þess í ríkum mæli. Sveinbjörn var fróður um sögu lands og þjóð- ar. Í þann sjóð var oft gott að leita. Hann var ljóðelskur og gat vitnað í þau við hvaða atvik sem upp komu. Tíminn leið oft hratt við eldhúsborðið í Yzta- Bæli í samræðum við Eygló og Sveinbjörn og ætíð fór maður fróðari þaðan. Sveinbjörn og Eygló var gott heim að sækja og til að leita. Blessuð sé minning þeirra. Samúðarkveðjur til allra að- standenda. Vigfús Andrésson, Berjanesi. Þegar ég heyrði að Svein- björn hefði kvatt þessa tilveru á síðasta degi ársins flæddu fram minningar frá upphafi vináttu okkar, þegar ég fyrst hitti Sveinbjörn og konu hans Eygló, sem lést árið 2009. Frá fyrstu kynnum okkar í kart- öflugörðunum ofan við Hval- eyrarvatn fyrir rúmum fimm- tán árum fannst mér ég eiga athvarf hjá þessum nýju vinum mínum á Álfaskeiðinu, þar sem við gátum setið tímunum sam- an í eldhúsinu og rætt um hvað sem okkur datt í hug hverju sinni. Eftir fráfall Eyglóar, lífsförunautar og innilegs vinar Sveinbjarnar, varð mikil og þung breyting á tilverunni. Sveinbjörn sagði mér þó oft að hann fyndi fyrir nærveru henn- ar, í vöku sem draumi, sem gladdi hann mikið. Samtöl mín við Sveinbjörn héldu áfram með árunum og voru enn jafn fjölbreytt og full áhuga. Fróð- leiksþorsti og forvitni gamla bóndans frá Yzta-Bæli, Austur- Eyjafjöllum, var mikil og ein- læg, sama hvar bar niður í mannkynssögunni. Hann hafði þann eiginleika að geta á ein- lægan hátt upplifað þá furðu, hrifningu eða húmor sem hann skynjaði í löngu liðnum atburð- um nær eða fjær eigin tilveru, enda vel lesinn. Ég heillaðist af þessari tilveruskynjun Svein- bjarnar, sem gat lyft huga hans langt yfir stað og stund og fjarlægt hann oft frá erf- iðum veruleika aldraðs manns sem var á síðari árum bundinn blóðskilun vegna nýrnabilunar. Það var einstakt að geta rætt við Sveinbjörn um dýpri og oft erfiðari þætti tilveru mann- anna, um hið óútskýranlega og kraftinn sem á sér ótrúlegustu birtingarmyndir. Þó svo við- fangsefni okkar væru oft á dýpri enda tilverunnar var sjaldan langt í einstakan hlátur Sveinbjarnar, sem kom jafnan auga á húmor aðstæðna, sagna eða minninga. Það er stór hóp- ur fólks kominn frá Sveinbirni og Eygló og söknuðurinn nær víða á þessari stund. Fráfall Sveinbjarnar í mesta skamm- deginu felur í sér ljós þeirra minninga sem þessi kæri vinur hefur skilið eftir handa okkur sem hann þekktu. Með söknuð og þakklæti í huga kveð ég vin minn Sveinbjörn Ingimundar- son. Svavar Jónatansson. Sveinbjörn Ingimundarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.