Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015
✝ Guðjón Einarssonfæddist í Hafn-
arfirði 13. febrúar
1921. Hann lést að
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund
25. desember 2014.
Foreldrar hans voru
Einar H. Sigurðsson
klæðskeri, f. 1882, d.
1961, og Þórunn Jóns-
dóttur, f. 1888, d. 1973.
Systkini Guðjóns
voru: Valur, f. 1909, d. 1980,
Kristbjörg, f. 1914, d. 2003, gift
Benjamín H.J. Eiríkssyni, f. 1910,
d. 2000, Jón, f. 1926, d. 2008, Egg-
ert, f. 1926, d. 1999, kvæntur
Rannveigu Þórólfsdóttur, f. 1929,
þau skildu.
Hinn 13. febrúar 1946 átti Guð-
jón Eddu G. Ólafsdóttur með
Höllu Sigríði Jónsdóttur, f. 21.
júní 1921.
Edda er gift Árna Sófussyni, f.
31. maí 1946. Þeirra börn eru: 1)
Gunnar Örn, f. 21. desember
1965, kvæntur Karólínu Ósk Val-
geirsdóttur, f. 4. febrúar 1966.
Þeirra börn eru Guðbjörg Rut,
Steinar Örn og Edda Rún. 2) Guð-
rún Elísabet, f. 17. febrúar 1967,
hún er gift Vilbergi Flóvent
Sverrissyni, f. 14. júní 1967.
Þeirra börn eru Kristín Helga og
sem stofnuðu Orku. Um þrítugt
fór hann í matreiðslunám hjá
Tryggva Þorfinnssyni á Gilda-
skálanum í Aðalstræti. Að loknu
námi vann hann á Skovrider-
kroen í Kaupmannahöfn og hjá
Ragnari Þórðarsyni móður-
bróður sínum í Glaumbæ.
Þaðan fór hann í Múlakaffi þar
sem hann var bryti við góðan
orðstír. Í litla eldhúsinu fram-
leiddu þeir mat sem saddi hungur
yfir þúsund verkamanna á dag.
Að loknum árunum í Múlakaffi
fékk Jón Einarsson hann til
starfa og nú fyrir verslunina
Vogue sem Jón hafði stofnað
nokkrum árum áður. Þar var
Guðjón gjaldkeri um árabil. Síð-
asti vinnustaðurinn var Bún-
aðarbanki Íslands.
Auk þessara starfa gegndi
Guðjón ýmsum öðrum störfum.
Hann fékkst við leiklist um árabil,
fyrst sem ungur maður og eftir
að hann fór á eftirlaun þá var
hann með í nokkrum kvikmynd-
um sem aukaleikari. Hann var
ungur að árum sendur til Evrópu
til þess að leita viðskipta-
sambanda fyrir Ísland að afloknu
stríðinu og fór meðal annars all-
oft til Póllands.
Auk þess var hann hirðkokkur
hjá Halldóri og Auði á Gljúfra-
steini.
Útför Guðjóns fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 9. janúar 2015,
kl. 13.
Árni Flóvent.
Hinn 17. júní
1950 kvæntist
Guðjón Kristínu
Eiríksdóttur, f.
29. september
1925, d. 15. jan-
úar 2014. For-
eldrar hennar
voru séra Eiríkur
Helgason, f. 16.
febrúar 1892, d.
1. ágúst 1954, og
Anna Elín Oddbergsdóttir, f. 11.
júlí 1893, d. 5. maí 1953.
Börn Guðjóns og Kristínar: 1)
Eiríkur Guðjónsson Wulcan, f. 15.
janúar 1954, kvæntur Ingibjörgu
Haraldsdóttur, þau skildu. Dóttir
þeirra er Kristín, f. 3. nóvember
1981. Síðari kona hans er Anna
H. Wulcan, f. 23. júní 1956. 2)
Anna Þ. Guðjónsdóttir, f. 23. júní
1957.
Guðjón gekk í Miðbæjarskól-
ann og var sendisveinn hjá Pönt-
unarfélagi verkamanna en var 15
ára gamall tekinn inn á skrifstof-
una þar sem hann starfaði undir
leiðsögn Jens Figved og Jóns Ein-
arssonar. Pöntunarfélagið
breyttist í Kron 1937 og þar starf-
aði Guðjón þangað til Kron féll í
hendur framsóknarmanna. Þá
fór hann með þeim félögunum
Þegar afi var lítill uxu honum
náttúrulegir slöngulokkar.
Langamma fékkst engan veginn til
þess að klippa þá og því var hann
eins og lítill prins í búningamynd.
Það er til mynd af honum þar sem
hann stendur á stól og horfir opn-
um augum í linsu myndavélarinnar.
Lokkarnir hringa sig fullkomlega
niður á bak.
Afi hló meira og innilegar en
gengur og gerist. Húmorinn var
hans fyrsta viðbragð. Viðkvæðið:
Upplagt! Amma stingur upp á að
þau keyri út á Nef og viðri
hundana. Upplagt! Viðkvæðið:
Flott! Ég segist ætla að flytja til
Tsjetsjeníu eða Trékyllisvíkur.
Flott!
Nærvera hans aldrei frek en allt-
af stór og hlý og rúmaði ófáar
veislur. Amma lagði á borðið og
hann galdraði fram veitingarnar.
Félagsverurnar sem þau voru og
höfðingjar heim að sækja. Ég er
með mynd af þeim á litla borðinu
sem Nonni smíðaði í Bjarnanesinu.
Þau eru yngri en ég er núna, skæl-
brosandi andlit á litlum vængjuð-
um kerúbum í Tívolíinu í Kaup-
mannahöfn.
Gjafmildi húmoristi, hógværa
sjarmatröll, afbragðskokkur,
ljúflingur. Ég er þakklát fyrir að
hafa átt afa sem fyrirmynd í mínu
lífi og ég ætla að reyna að vera
meira eins og hann, hlæja oftar og
miklu fyrr. Ég veit líka að það var
ekki fyrr slokknað á ljósinu hans
en kviknaði á því hinumegin, hjá
ömmu og Tínu og Snót og Óðni. Ég
sé fyrir mér veisluhöldin, heyri
hlátrasköllin, hundgána. Heyri að
afi talar af sér við matarborðið.
Sparkarðu í mig, kona? bætir hann
við. Amma hlær.
Kristín Eiríksdóttir.
Fyrir mig hafa hjónin Guðjón
og Stína verið samofin lífi fjöl-
skyldu minnar svo lengi sem ég
man eftir. Stína Eiríks eins og við
kölluðum hana lést fyrir um ári og
nú hefur Guðjón kvatt okkur, tæp-
lega 94 ára gamall.
Mamma og Stína Eiríks kynnt-
ust í Svíþjóð árið 1946 þegar þær
voru báðar í handiðnaðarskóla í
Sätergläntan í Dölunum í Svíþjóð
til að læra vefnað. Bakgrunnur
þeirra var ólíkur en þær smullu
saman. Heimkomnar 1948 settu
þær vinkonur upp vefstofu í kjall-
aranum í Barmahlíðinni. Einn dag-
inn þar sem þær voru að vefa kom
Guðjón til að hitta mömmu og eiga
við hana spjall. Heimsóknin leiddi
til þess að hann fékk þær stöllur
með sér á bæjarrölt og sameigin-
leg örlög Guðjóns og Stínu voru
ráðin frá þeirri stundu. Pabbi kom
stuttu seinna inn í líf mömmu og
grunnur var lagður að áratuga
langri vináttu fjölskyldnanna sem
aldrei hefur borið skugga á.
Fjörutíu árum seinna komu
þær vinkonur, mamma og Stína,
ásamt Guðjóni, í heimsókn til mín
og fjölskyldu í Stokkhólmi. Auðvit-
að var farið til Sätergläntan í Dal-
arna og góðar æskuminningar rifj-
aðar upp. Það var „svensk
midsommar“ eins og best getur
orðið á svæði þar sem hefðir hátíð-
arinnar eru í hávegum hafðar.
Eins og áður var einstaklega ljúft
að umgangast Guðjón og Stínu og
hver dagur sem glaðvær veisla.
Það var aldrei leiðinlegt þar
sem Guðjón var. Hlátur hans var
smitandi og hann sá alltaf það
skemmtilega og spaugilega í til-
verunni. Mér eru minnisstæðar
útilegur og ferðalög í æsku þegar
fjölskyldurnar fóru saman út á
land. Ég minnist einnig þeirrar
gleði sem fylgdi heimsóknum Guð-
jóns og Stínu á æskuheimilið í
Vesturbrún eða heimsóknum okk-
ar til þeirra eftir sunnudagsbíltúr-
inn. Alltaf voru börnin hluti af
þeim gleðskap, á einn eða annan
hátt, og lagði grunn að vinskap
fram á þennan dag.
Guðjón lærði til kokks, enda
þurfa allir að borða eins og hann
sagði sjálfur. Meistarakokkur var
hann og m.a. oft kallaður til að-
stoðar af vinum sínum á Gljúfra-
steini. Góður matur hæfði jú Nób-
elsskáldi og gestum þeirra hjóna.
Þær hafa einnig verið margar
krásirnar sem hann hefur borið á
borð fyrir okkur í fjölskyldunni.
Þar skipti engu hvort um var að
ræða máltíð í útilegu eða veislu-
borð. Kræsingar voru fallega
bornar fram og ávallt stutt í hlát-
ur. Þegar ég og fjölskylda höfðum
seinna hug á því að bjóða upp á
þorramat í Stokkhólmi þá var ekk-
ert sjálfsagðara en að leita til Guð-
jóns. Hjálpsemi hans brást okkur
ekki, þá fremur en endranær.
Guðjón var mikill bókamaður
og las mikið. Mamma og vinir
þeirra hjóna nutu iðulega upplest-
urs hans þegar þau hittust til að
gleðjast saman, ásamt góðri mál-
tíð sem hann að sjálfsögðu eldaði
sjálfur. Þannig var Guðjón, ein-
staklega elskulegur og skemmti-
legur í daglegri umgengni við vini
og kunningja – og börn vina sinna.
Fyrir hönd mömmu og okkar
allra í fjölskyldunni sendum við
börnum Guðjóns og Stínu, Eiríki
og Önnu, Stínu „litlu“ sonardóttur
þeirra og öðrum ættingjum inni-
legar samúðarkveðjur. Eftir lifir
minning um góðan mann og sam-
heldin og skemmtileg hjón.
Geir Gunnlaugsson.
Guðjón Einarsson
✝ Sif Jónsdóttirfæddist í
Reykjavík 20. des-
ember 1964. Hún
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 1. janúar
2015.
Foreldrar hennar
eru Jón Bjarnar
Sigvaldason, f.
1941, og Þórunn
Ellertsdóttir, f.
1944. Bræður Sifjar eru: Sig-
valdi Hafsteinn, f. 1961, maki
Kristjana Jóhannesdóttir. Börn
þeirra eru Jóhannes, Skúli og
Elsa. Ellert, f. 1966, maki Kol-
brún B. Snorradóttir. Börn
þeirra eru Karen, Eyþór og
Bjarki. Bjarnar, f. 1979, maki
Noreen Jónsson.
Sif giftist árið 2007 Guðmundi
Ármanni Eggertssyni, f. 1965.
Börn þeirra eru: 1) Arnar Jón, f.
2001. 2) Katrín Ósk, f. 2006. For-
eldrar Guðmundar: Eggert Guð-
mundsson, f. 1931, og Ásdís
Skúladóttir, f. 1936, d. 1982.
Systkini Guðmundar eru: Óli
Már, f. 1962, maki Eydís Dögg
Sigurðardóttir.
Börn: Anna Mar-
grét, Ása Októvía
og Þórunn Una.
Vignir, f. 1963,
maki Lilja Björk
Kristjánsdóttir.
Börn: Hrefna Rún,
Kristján Páll, Ásdís
Huld og Heiðrún
Arna. Birna, f.
1969, maki Rúnar
Hrafn Ingimars-
son. Börn: Freyja og Fjóla.
Sif bjó fyrstu æviárin í
Reykjavík en fluttist svo til Ísa-
fjarðar og bjó þar til sjö ára ald-
urs og fluttist svo til Keflavíkur
og lauk sinni grunnskólagöngu
þar. Um tíma bjó hún í Dan-
mörku, Bandaríkjunum og Ítal-
íu. Bjó svo á höfuðborgarsvæð-
inu. Sif var lærður nuddari og
stundaði þá starfsgrein um
margra ára skeið og allt til ævi-
loka, samhliða því starfaði hún
einnig hjá póstinum og við
heimaþjónustu.
Útför Sifjar fer fram frá Ár-
bæjarkirkju í dag, 9. janúar
2015, kl. 13.
Það er með sárum söknuði að
við kveðjum Sif, sem á nýársdag
yfirgaf hið jarðneska líf og hélt til
hærri heima ljóss og fegurðar.
Sifjar verður sárt saknað en hún
hefur um nokkurra ára skeið tek-
ið þátt í starfi Guðspekisamtak-
anna í Reykjavík og lagt sitt af
mörkum við að skapa betri heim
með ljósi, kærleika og heilun. Sif
tók örlögum sínum með miklu
æðruleysi. Það voru ekki margir
sem vissu að heilsu hennar hrak-
aði vegna veikinda því ekki bar
hún líðan sína á torg. Umhyggja
hennar, greiðvikni og hlýlegt við-
mót fór þó ekki fram hjá þeim
sem áttu í samskiptum við Sif og
varpa birtu á minningu hennar.
Við biðjum góðan Guð að veita
Guðmundi, eiginmanni Sifjar, og
ungum börnum þeirra styrk og
hugarró í þeirra djúpu sorg nú
þegar Sif hefur kvatt þennan
heim alltof fljótt.
F.h. Nýju Avalonmiðstöðvar-
innar og Guðspekisamtakanna,
Eldey Huld Jónsdóttir.
Sif Jónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HJÖRDÍS SELMA SIGURÐARDÓTTIR,
frá Hofi, Eyrarbakka,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík
31. desember.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju í Reykjavík föstudaginn 9.
janúar kl. 13:00.
Jarðsett verður í Eyrarbakkakirkjugarði 10. janúar.
.
Björgvin Konráðsson, Sigurbjörg Árnadóttir,
Jónina Konráðsdóttir, Gunnar Gunnarsson,
Konný Breiðfjörð Leifsdóttir, Grétar Einarsson,
Hinrik Sigurjónsson,
Jessica Sigurjónsson,
Friðrik Sigurjónsson, Þuríður Gunnarsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR NÍELS ELÍASSON,
Siggi El.,
Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili,
Akranesi,
lést laugardaginn 27. desember.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
mánudaginn 12. janúar kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Höfða.
Sveinsína Andrea Árnadóttir,
Árni Sigurðsson, Hrefna Grétarsdóttir,
Klara Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Gunnar Sigurðsson, Margrét J. Birkisdóttir,
Gylfi Sigurðsson, Arndís Baldursdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg systir mín og frænka okkar,
KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR,
Grænumýri 18,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð
mánudaginn 5. janúar.
Hún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
16. janúar kl. 10.30.
.
Ólöf Ingunn Ingólfsdóttir,
Jakob Hjaltalín, Hómfríður Arnbjörnsdóttir,
Kristín Hjaltalín, Sigurður Líndal Arnfinnsson,
Ingólfur Hjaltalín, Dóra Hafliðadóttir.
✝
RAGNHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Kolsstöðum,
lést mánudaginn 15. desember á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni.
Útför hennar fer fram frá Reykholtskirkju
laugardaginn 10. janúar kl. 13.00.
Jarðsett verður á Gilsbakka.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Ásgeir Sigurðsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÍSA PÉTURSDÓTTIR
áður til heimilis að Hafnarstræti 47,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð
föstudaginn 2. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Aðstandendur þakka af heilum hug þeim sem veitt hafa henni
aðstoð undanfarin ár.
Sigrún Helga Guðjónsdóttir,
Pétur Örn Guðjónsson,
Kristján Jón Guðjónsson,
Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Oddgeir Eysteinsson
og fjölskyldur.
✝
Elsku sonur okkar, faðir og bróðir,
NÚMI MAGNÚSSON
sem andaðist föstudaginn 2. janúar,
verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju
miðvikudaginn 14. janúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
styrktarsjóð sonar hans, Arons Óla
Öddusonar, 151210 3250 - 0347 - 18 - 950074.
Útförinni verður útvarpað á Trölla 103.7 og á netvarpi trolla.is
Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð og vinarhug.
Agnes Númadóttir, Magnús G. Ólafsson,
Aron Óli Ödduson,
systkini og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
SVERRIR EINARSSON
tannlæknir,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
7. janúar.
Margrét Þóroddsdóttir,
Ingibjörg H. Sverrisdóttir,
Einar Albert Sverrrisson, Ásthildur Dóra Kristjánsdóttir,
Jónas Sturla Sverrisson, Margrét H. Hansen,
Sigríður Vilhjálmsdóttir,
Pia Hansson, Þór Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRHILDUR ÞÓRARINSDÓTTIR
Helluvaði 9,
lést á Vífilsstöðum laugardaginn 3. janúar.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 13. janúar kl. 13.00.
Þórarinn Óskarsson, Þorbjörg Jósepsdóttir,
Guðjón Óskarsson,
Snjólaug Soffía Óskarsdóttir, Hrafn Þórir Hákonarson,
Ragna Fanney Óskarsdóttir, Kristján Steingrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.