Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 ✝ Hjördís SelmaConstance Sig- urðardóttir fædd- ist í Slagelse í Danmörku 12. jan- úar 1924. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 31. desember 2014. Foreldrar Hjör- dísar voru Ólöf Kristjánsdóttir, f. í Reykjavík 29. sept- ember 1902, d. í Reykjavík 6. apríl 1981, hún var ljósmóðir, og Sigurður Arngrímsson, f. í Arnarnesi í Hornafirði 28. ágúst 1885, d. í Reykjavík 10. október 1962, ritstjóri og skáld. Börn Hjördísar voru Björgvin Konráðsson, f. 26.11. 1943, maki Sigurbjörg Árna- dóttir, f. 1948, Jónína Konráðs- dóttir, f. 23.7. 1945, maki Gunnar Gunnarsson, f. 1941, Konný Breiðfjörð Leifsdóttir, f. 26.9. 1947, maki Einar Grétar Einarsson, f. 1945, Hinrik Sig- urjónsson, f. 18.10. 1950, maki Guðlaug Ragnhildur Úlfars- dóttir, f. 1952, d. 1987, Ólafur Jósef Sigurjónsson, f. 30.3. vík á Snæfellsnesi 17.4. 1912 og lést 2.1. 1999. Bræður Hjör- dísar voru þrír, allir fæddir á Seyðisfirði, Bragi, f. 3.9. 1926, d. 13.10. 2000, lögfræðingur, Kristján, f. 19.4. 1930, d. 2.1. 2012, íþróttakennari, og Arn- grímur, f. 11.2. 1933, kennari. Hjördís bjó með Konráði Jónssyni, fyrri manni sínum, að Vatnsholti í Staðarsveit uns hann lést, en flutti síðar að Búðum þar sem hún bjó með seinni manni sínum, Sigurjóni Einarssyni. Þar bjuggu þau hjón til ársins 1953 er þau fluttu til Hellissands þar sem þau áttu heimili til ársins 1967, er flutt var til Eyrarbakka þar sem Sigurjón hafði fengið vinnu sem fangavörður. Á Eyr- arbakka bjuggu Hjördís og Sigurjón meðan hann lifði og að honum gengnum, árið 1999, flutti Hjördís til Reykjavíkur þar sem hún átti heimili að Arahólum 2. Þar bjó Hjördís meðan hún hafði krafta til, en frá miðju ári 2011 var hjúkr- unarheimilið Sóltún heimili hennar og þar lést hún eftir erfiða baráttu við illvígan sjúk- dóm. Útför Hjördísar fer fram frá Seljakirkju í dag, 9. janúar 2015, kl. 13. Jarðsett verður á Eyrarbakka á morgun, 10. jan- úar 2015, og hefst athöfnin þar kl. 13. 1955, d. 1.4. 2009, maki Jessica Sig- urjónsson, f. 1968 og Friðrik Sig- urjónsson, f. 9.3. 1958, maki Þur- íður Gunn- arsdóttir, f. 1960. Barnabörnin voru 14, Brynjar, Hjör- dís Selma og Örn Ingi Björgvins- börn, Hjördís Björg og Pétur Thor Gunn- arsbörn, Leifur Einar og Mar- grét Helga Einarsbörn, Joa- kim, Úlfar og Ruth Hinriksbörn, Jósef Natan Ólafsson og Gunnar Ingi, Sig- urjón og Selma Friðriksbörn. Langömmubörnin voru 26. Hjördís var tvígift og var fyrri maður hennar Konráð Breiðfjörð Jónsson, bóndi, frá Vatnsholti í Staðarsveit á Snæ- fellsnesi. Konráð fæddist 11.8. 1914 í Bjarnarhöfn og lést 24.10. 1946. Seinni maður hennar var Sigurjón Einarsson, lengst af fangavörður á Litla- Hrauni. Sigurjón fæddist í Syðri-Knarrartungu í Breiðu- Síðastliðinn gamlársdag lést tengdamóðir mín, Hjördís Sig- urðardóttir, eftir langa og erf- iða baráttu við illvígan sjúk- dóm. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þar sem hún hafði dvalið undanfar- in þrjú og hálft ár. Það var ljós sem lýsti aðeins skugga veik- indanna að vita til þess að vel var að henni búið og umönn- unin var fyrsta flokks, en því verður ekki gleymt að þar bættu þær systur Jónína og Konný um betur með óbilandi og óþreytandi vinnusemi og al- úð við móður sína. Ég ímynda mér að Almættið líti til slíkra verka þegar að skuldadögunum kemur og þurfa þær systurnar þá engu að kvíða. Hjördís var einhver sá mesti höfðingi heim að sækja og með að gleðjast sem ég get ímyndað mér. Þær eru óteljandi ferð- irnar sem farnar voru í hennar boði austur að Hofi á Eyrar- bakka. Gestrisnin og örlætið voru slík að manni hraus jafn- vel hugur við að þiggja, en á það var að sjálfsögðu ekki hlustað og alltaf var farið á Bakkann. Helst er að minnast ferða þangað um jólin þegar öllu var til tjaldað þannig að helst líktist höfðingjasamkom- um í fornum sögum. Enn þann dag í dag minnast barnabörn Hjördísar ferða sinna til ömmu á Eyrarbakka og þarf ekki lengi að eggja til að fram komi sögur um ánægjulegar ferðir og dvalir. Að baki öllum heimboðunum og áhuga hennar á stórfjöl- skyldunni var ósköp einföld hvöt, en það var áhugi á velferð fjölskyldunnar og öllu mann- legu. Þessi áhugi hafði þá birt- ingarmynd að vilja blanda geði við fólk og deila áhugamálum sínum með öðrum. Þessi áhugi var einlægur þegar kom að fjöl- skyldunni og velferð hennar og ef börn hennar voru ekki nógu fljót við að hafa samband við hana til að láta vita hvað væri að gerast, hikaði hún ekki við að hringja og inna eftir því sem fréttnæmt var hverju sinni. Tengdamóður minni var aldrei rétt neitt á silfurfati, eða neinu fati yfirleitt. Hún varð að hafa fyrir hlutunum, en það var ætíð gert með reisn og án síf- urs. Hún vann við það sem bauðst í venjulegum sjávar- þorpum og var helst þá um að ræða vinnu við fisk. Slíkri vinnu sinnti hún áratugum saman, auk þess að sinna heim- ili sínu. Áhugamál Hjördísar voru söngur og tónlist. Sjálf var hún vel lagtækur píanóleikari og hvergi áði hún án þess að syngja og taka þátt í kórstarfi. Þannig tók hún virkan þátt í starfi kirkjukórsins í Ingjalds- hólskirkju á Snæfellsnesi, hún söng með Samkór Selfoss, með kirkjukórnum á Eyrarbakka og síðasti kórinn, sem varð þeirrar lukku aðnjótandi að fá Hjördísi til liðs við sig var Gerðuberg- skórinn í Breiðholti. Þar stóð hún meðan stætt var og söng Guði sínum til dýrðar og sjálfri sér og öðrum til ánægju og gleði. – Og alltaf var hún jafn óaðfinnanlega fín til fara, þessi flotta kona. En nú skilur leiðir tímabund- ið og það skipti hana tengda- móður mína miklu, að ekki yrði syrgt úr hófi, þetta væri jú bara tímabundið ástand. Við sættum okkur því við þennan tímabundna aðskilnað, en það mun víst, að Hinn Hæsti, sem allt sér, allt veit og öllu ræður mun leiða þennan ötula þjón sinn til sætis þar sem ljósið skín skærast. Gunnar Gunnarsson. Á síðasta degi ársins 2014 fór dásamleg manneskja á betri stað. Amma var stór partur af lífi mínu og allra þeirra sem hún snerti. Margar af mínum kær- ustu æskuminningum urðu til hjá ömmu og afa. Ótal helgar og vikuferðir austur á Eyrar- bakka til hennar og afa, háa- loftið á Hofi þar sem sofið var undir súð, annar í jólum á bakkanum, krabbaleit í fjör- unni, sprangað á innsiglingar- merkinu, hættuferðir í kríu- varpið, gæsirnar í garðinum, bland í poka og húbba búbba hjá Guðlaugi kaupmanni, heimabakaðir kanilsnúðar, smjörkökur og risastór mjólk- urglös. Annarri eins endalausri ást, hlýju og þolinmæði hafði ég og mun ég líklega aldrei aft- ur kynnast. Þegar kom að óumflýjan- legri heimferð frá bakkanum klikkaði amma aldrei á því að vinka manni úr forstofuglugg- anum og síðan úr eldhúsglugg- anum alveg þangað til maður hvarf sjónum þó hún hafi þeg- ar verið búin að knúsa mann og kjassa endalaust við brott- för. Í þetta skiptið ert það þú sem kveður, elsku amma. Ég vildi að ég gæti fengið ömmu- knús og koss á vangann og svo vinkað þér núna, svona eins og þú gerðir alltaf en ég býst við að ég verði að láta ömmu- knúsið duga þegar ég hitti þig aftur. Ég sakna þín meira en orð fá lýst en minnist þín með hjartað fullt af gleðilegum minningum og skilyrðislausri ást. Hvíl í friði, elsku amma. Pétur Thor Gunnarsson. Hjördís Sigurðardóttir ✝ Sigurður Guð-jónsson fædd- ist í Reykjavík 31. maí 1945. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi hinn 25. desember 2014. Foreldar Sigurðar voru Guðjón Jó- hannsson, f. 2.6. 1906, d. 3.2. 1966, verkamaður í Reykjavík, og Sigríður Gunn- arsdóttir húsfreyja, f. 28.6. 1906, d. 9.12. 1990. Alsystkin Sigurðar voru Gyða, f. 29.9. 1926, d. 3.1. 2012; Guðjón, f. 19.11. 1928, d. 8.4. 2014; Ragnheiður, f. 13.9. 1930, d. 17.2. 1939; Haukur, f. 30.1. 1935, d. 22.2. 1935; Ragnar Jó- hann, f. 12.11. 1940, d. 2.2. 2011. Hálfsystir Sig- urðar er Erna Guðjónsdóttir, f. 3.2. 1931. Útför Sigurðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 9. janúar 2015, og hefst athöfnin kl. 13. Siggi var mikið kraftaverk. Hann fæddist á Vesturgötu 10 og vó tæpar þrjár merkur við fæðingu. Þessum ófullburða dreng var vart hugað líf. Vafinn í bómull var hann lagður í skó- kassa við ofninn til að fá yl. Svo agnarsmár en seigur. Með mik- illi umhyggju náði hann að þroskast og verða að tápmiklum prakkara. Þegar Siggi var fimm ára flutti fjölskyldan á Bræðra- borgarstíg 55. Þar bjó hann uns hann keypti sér íbúð á Brávalla- götunni um þrítugt. Öll okkar uppvaxtarár var Siggi nálægur. Hann var barn- góður, mikill sprellari og hafði gaman af að atast með okkur. Fyrstu árin bjuggum við í sama húsi en síðar sem nágrannar og mikill samgangur á milli. Siggi var mikil félagsvera en hafði líka þörf fyrir að vera út af fyr- ir sig. Hann vildi alls ekki fá sér síma og þrjóskaðist við fram til 1990 og þá fóru hlutirnir að breytast. Síðustu árin var hann með þrjá farsíma auk heima- síma, svo það var alltaf hægt að ná í kallinn. Hann var líka dug- legur að hringja í okkur. Á merkisdögum og afmælum hringdi Siggi. Skemmtilegast þótti honum að hitta á fæðing- arstundina og rifja upp daginn. Með sömu hlýju og væntum- þykju fylgdist hann með afkom- endum okkar og urðu böndin milli okkar sterkari með árun- um. Veðrið skráði Siggi sam- viskusamlega kvölds og morgna til margra ára. Veðuráhugi hans tengdist líka öðru áhugamáli, flugvélum og flugi. Hann hóf flugnám og tengdist fluginu órjúfanlegum böndum. Nær alla starfsævina vann hann hjá FÍ/ Flugleiðum á Reykjavíkurflug- velli, í flugfrakt og sem bíl- stjóri. Siggi var einstaklega minn- ugur og hafði gaman af mörgu. Hann fylgdist vel með bæði fréttum og dægurmálum í öllum fjölmiðlum. Siggi var vel liðinn hvar sem hann kom og það sem einkenndi hann var léttleiki, umhyggja og þakklæti. Hann var lungnaveik- ur til margra ára og dagarnir misjafnir. Á erfiðum dögum sagði hann gjarnan „nú er kall- inn alveg sprunginn“. Húmor- inn aldrei langt undan og aldrei gafst hann upp. Hann bar alltaf von í brjósti um að dagurinn á morgun yrði betri. Það var stutt á milli fráfalls systkinanna, tæp fjögur ár. Þeir bræður sem eftir voru á þessu ári, Gaui (pabbi) og Siggi, vissu báðir að degi var tekið að halla. Þeir ræddu saman daglega og var það þeim báðum mikill styrkur. Verulega dró af Sigga á þessu ári. Það var honum mikils virði að vera heima og það gekk með góðu stuðnings- neti. Auk sinna nánustu átti hann trausta vini og góða nágranna. Það leið varla sá dagur hin síð- ustu ár að hann fengi ekki heimsóknir eða símtöl. Í lungnateymi Lsp eru yndislegar manneskjur sem léttu honum lífið í gegnum árin af mikilli hlýju og vináttu. Aðstoðar heimahlynningar naut hann þegar líða fór á og heimahjúkr- unar undir það síðasta. Síðustu vikurnar dvaldi hann á líknar- deild. Hann átti ekki orð yfir góðmennskuna og þjónustuna þar. Honum leið því eins vel og kostur var síðustu dagana. Í dag kveðjum við góðan dreng, vin okkar og frænda, og þökkum honum samfylgdina í gegnum lífið. Blessuð sé minning hans. Tómas, Sigríður og Katrín. Ég þekkti Sigga. Oft á kvöld- in var ljós í íbúð Sigga sem bjó við hliðina á mér. Þá hringd- umst við á. Við töluðum um alls kyns mál. Siggi var vel að sér um hvert stefndi í þjóðfélags- málum og var góður í að sjá hvað var upp og niður í hlut- unum. Hann var verklaginn og vann í mörg ár hjá Flugfélagi Íslands, var eftirsóttur starfs- maður. Siggi var mjög handlag- inn og hafði gott verkvit. Einnig var Siggi mikill prinsippmaður sem stóð með réttlætinu. Ef hann sá að hann hafði rangt fyrir sér, sem var sjaldgæft, þá lét hann undan fyrir sakir prin- sippa um hvað væri réttlátt. Öllum fannst gaman að heim- sækja Sigga og rabba við hann og hann var vinsæll meðal manna. Stundum hrærði Siggi upp í fólki sem grín og hlógu svo báðir aðilar saman þegar þeir sáu grínið. En heilsan lét undan hjá Sigga. Fyrst með bakveiki sem lét hann hætta hjá Flugfélaginu. En síðan kom upp lungnasjúkdómur sem dró hann til dauða. Þrátt fyrir veikindin var Siggi alltaf bjartsýnn og hlakkaði til að lifa drauma sína. Og þótt Siggi lifði af litlum ör- orkustyrk. Þá gaf hann til bág- staddra í þriðja heiminum. Nú er ekki lengur ljós í íbúð Sigga. Svona góðmenni og prin- sippmaður sem stóð með rétt- lætinu mun ekki hafa neitt fyrir að komast inn hjá Lykla-Pétri. Það er heiður að hafa þekkt hann. Hans verður sárt saknað í hverfinu þar sem hann bjó. Sveinbjörn Ólafsson. Ljúfur maður og kær er fall- inn frá. Ég kynntist Sigurði í lok síðustu aldar en þá vorum við Elín Oddný Sigurðardóttur, nú eiginkona mín, að skjóta okkur saman. Oddný, þá ver- andi tilvonandi tengdamamma mín, átti heima á hæðinni fyrir ofan Sigurð á Brávallagötunni og var góður vinskapur þar á milli. Ég varð fljótlega tíður gestur á heimili þeirra mæðgna og svo varð úr að við fluttum í kjallara Brávallagötunnar og áttum heima þar næstu 4 árin. Þá varð Sigurður að Sigga „granna“ – nafnbótina sam- þykkti hann strax með bros á vör. Þó ekki hefði hann heilsu í að hjálpa okkur við flutninginn lagði hann sitthvað til málanna og gaf okkur ómetanlega hluti í búið, hluti sem við eigum enn og þykir mjög vænt um. Við hjónaleysin vorum bæði í námi og hlutastarfi á þessum tíma og áttum því oftar en ekki tíma aflögu að degi til. Á þeim stundum var oftar en ekki kíkt í kaffisopa til Sigga, sem tók okkur fagnandi. Hann hafði frá mörgu að segja og átti ótal sög- ur í farteskinu sem hann hafði greinilega gaman af að rifja upp. Hann var mikill húmoristi og stríðinn mjög, þó alltaf í gamni. En allt tekur breytingum. Við fluttum síðsumars 2002, kvöddum Brávallagötuna og fluttum til Svíþjóðar í 2 ára nám. Þegar heim var komið hittum við Sigga stöku sinnum á förnum vegi. Þá var hann til í að taka upp þráðinn og eiga gott spjall. Við Elín Oddný vottum að- standendum Sigurðar okkar dýpstu samúð. Minningin um hann er samofin ljúfum og góð- um stundum á Brávallagötunni sem við munum minnast um ókomna tíð. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) Haraldur V. Sveinbjörnsson. Sigurður Guðjónsson Ástkær eiginmaður minn, ÁRNI B. SVEINSSON, Hjallaseli 31, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðjudaginn 30. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, . Gréta Sævarsdóttir. Ástkær systir okkar, frænka, mágkona og stjúpdóttir, KRISTÍN ÓSK GUNNARSDÓTTIR, Vallhólma 16, Kópavogi, lést á heimili sínu 1. janúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 16. janúar kl. 13.00. . Hilmar F. Gunnarsson, Ólöf H. Guðmundsdóttir, Kristbjörg L. Hilmarsdóttir, Gunnar Þór Hilmarsson, Berglind J. Hilmarsdóttir, Karen Dögg Gunnarsdóttir, Jack Hrafnkell Daníelsson, Guðmundur Valtýsson. ✝ Áskær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, TRYGGVI ÞÓRHALLSSON rafverktaki, Ystabæ 13, sem lést á Landspítalanum Fossvogi á nýjársdag, verður jarðsunginn frá Grafarvogs- kirkju mánudaginn 12. janúar klukkan 13.00. Þeim sem vildu minnast Tryggva er bent á MND félagið. Kristín Ólöf Björgvinsdóttir, Helga Lilja Tryggvadóttir, Sigurjón Magnússon, Magnús Björgvin Tryggvason, Elsa Maria Alexandrè, Þórhallur Tryggvason, Þórhalla Guðmundsdóttir, Hanna Tryggvadóttir, Torfi Vestmann, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.