Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Síða 40
Tíska
AFP
*Fatahönnuðurinn Anthony Vaccarello hefur verið ráðinntil starfa hjá ítalska tískuhúsinu Versace. Anthony mungegna starfi listræns stjórnanda Versus Versace sem erundirlína Versace ætluð yngri kúnnum. Anthony Vaccar-ello hannaði áður bæði fata- og aukahlutalínu fyrir VersusVersace sumarið 2015 og sló þar heldur betur í gegn.
Anthony mun nú hanna bæði kvenfata- og herralínur
Versus Versace.
H
vað er það sem heillar þig við tísku? Mér finnst tíska alveg ótrúlega
áhugavert fyrirbæri, hvernig eitthvað getur verið súperflott á einum tíma-
punkti og hrikalega hallærislegt á öðrum. Hvernig tíska getur breytt hugs-
uninni okkar og þjálfað augað í að finnast eitthvað fallegt eða ljótt. Tíska
getur líka sagt svo mikið og fólk getur notað tísku til þess að segja svo mikið. Það er
ómögulegt að vera ekki með „statement“ þegar kemur að tísku, ef þú ert nakin þá er
það ákveðið „tískustatement“.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgihlut myndirðu
kaupa? Ég held að ég myndi kaupa mér einhvern sjúkan pels, sem ég sæi fram á að
fá aldrei leið á og gæti gengið í á veturna þangað til ég dey.
Áttu þér uppáhaldshönnuð? Ég skipti um skoðun í hvert skipti sem tískuvikan er í
gangi. Þeir sem eiga samt alltaf stað í hjarta mínu eru Alexander McQueen, Hubert
Givenchy, Halston, Rei Kawakubo, Stella McCartney og Drees Van Noten. Ég kaupi
hins vegar mest frá Filippu K, Won Hundred og Cos.
Hvað er þitt uppáhaldstískutrend þannan veturinn? Ég get ekki beðið eftir því að
slabbið fari svo ég geti farið að vera í strigaskóm aftur alla daga. Ég á samt eftir að
sakna húfunnar sem ég er búin að vera með á hausnum síðan í byrjun október.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að fatakaupum? Ekki
kaupa hræódýr föt. Það að föt séu hræódýr þýðir einfaldlega að þau endast ekki lengi,
eru ekki vel hönnuð, eru gígantískt fjöldaframleidd og þú veist ekkert hvaða mann-
eskja eða náttúra er búin að líða fyrir það að þau séu svona ódýr en líklega er það
hvort tveggja. Ég er sjálf að reyna að venja mig af þessari kaupgleði og það hefur
gengið ágætlega. Mér þykir miklu vænna um þau föt sem ég hef hugsað mikið um og
pælt í notagildi á til þess að réttlæta verðmiðann sem á fullkomlega rétt á sér oftar en
ekki.
Hvert er þitt eftirlætistískutímabil og hvers vegna? Tíðarandalega séð elska ég
þriðja áratuginn því þá nenntu konur ekki lengur þessu
lífstykkjabulli og fóru að dansa tryllta dansa. Fag-
urfræðilega séð elska ég framtíðina. Mér finnst fátt
skemmtilegra en að horfa á framtíðarbíómyndir og skoða
fatnaðinn í þeim.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Afslappaður, stíl-
hreinn og skandinavískur. Ég vel gæði umfram magn og
kaupi mér föt í klassískum litum, svörtum, gráum og ljós-
um. Ég elska munstur en á mjög erfitt með að kaupa mér
munstruð föt því ég fæ oftast leið á þeim frekar fljótt. Ég
er alltaf að minnka og minnka fataskápinn minn og kom-
ast bet- ur að því hvað virkar fyrir mig og hvað ekki. Ég
er búin að þjálfa upp sterkt innsæi hvað
varðar hvað ég nota og hvað ekki.
Hvað kaupir þú þér alltaf þótt þú eig-
ir nóg af því? Buxur sem kærastinn
minn kallar rónabuxur. Frekar víðar og
mjög þægilegar buxur með teygju neðst. Ég þakka
fyrir það á hverjum degi að vera ekki að vinna á
skrifstofu þar sem ég þyrfti að uppfylla reglur um
klæðnað, mér finnst það vera brot á mannrétt-
indum að þurfa að klæða sig svona upp alla daga.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl?
Samkvæmt instagramminu mínu eru það Miroslava
Duma, Pernille Teisbaek og Olivia Palermo. Svo
er Tilda Swinton flottari en allt.
Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut?
Fölbleika Stellu McCartney-
blazerinn minn sem ég keypti notaðan
en samt nýjan á spottprís í New
York, refapelsinn minn sem ég keypti
af pínulítilli og mjög svo æstri músl-
imakonu í París og glimmersamfest-
ing sem ég saumaði mér fyrir út-
skriftina mína úr Listaháskólanum.
Svo er ég alltaf með þríhyrnt háls-
men sem ég fékk frá kærastanum
mínum, ég gæti alveg eins verið með
þríhyrning húðflúraðan á bringuna
því það er alltaf þar.
BROT Á MANNRÉTTINDUM AÐ KLÆÐA SIG UPP ALLA DAGA
Ragna segir tísku geta
breytt hugsun okkar og
þjálfað augað í að finnast
eitthvað fallegt eða ljótt.
Morgunblaðið/Kristinn
Best að vera
í strigaskóm
RAGNA SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR, AÐSTOÐARHÖNNUÐUR
HJÁ EYLAND OG STARFSMAÐUR VERSLANANNA GK REYKJAVÍK
OG SUIT, ER MEÐ FREMUR AFSLAPPAÐAN STÍL OG VELUR
GÆÐI UMFRAM MAGN VIÐ FATAKAUP.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Ragna elskar framtíðarbíómyndir
og að skoða fatnaðinn í þeim.
Klassískur og hlýr
pels er ofarlega á
óskalista Rögnu.
Miroslava
Duma
hefur ein-
stakan
fatastíl.
Verk breska fatahönnuðarins
Alexanders McQueens eru í
miklu eftirlæti hjá Rögnu.
Anthony Vaccarello hannar
fyrir Versus Versace