UTBlaðið


UTBlaðið - 03.03.2007, Qupperneq 37

UTBlaðið - 03.03.2007, Qupperneq 37
37 Verkefni sem efla eiga Þjóðskrána Nú er verið að setja af stað nokkur verkefni á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytis sem ætlað er að efla Þjóðskrána á ýmsa lund. Þar má nefna möguleika borgaranna á því að senda inn flutningstilkynningar rafrænt yfir Netið að því gefnu að slíkar tilkynningar séu auðkenndar á tilhlýðilegan máta. Fljótlega ætti því að vera óþarfi að mæta í afgreiðslu Þjóðskrár eða sveitarfélags til að skrásetja nýtt lögheimili. Annað sem lengi hefur verið beðið eftir er möguleikinn á því að skrá í rafræna Þjóðskrá og fletta upp á löngum (fullum) nöfnum einstaklinga. Þetta verður nú mögulegt ásamt því að sækja ýmis vottorð á Netinu, t.d. fæðingarvottorð og búsetuvottorð. Árlega fæðast 4-5.000 nýir Íslendingar og fæðingar og skírnarskýrslur ættu eðlilega að berast til Þjóðskrár með rafrænum hætti. Á sama hátt þarf Þjóðskrá að fá sendar dánartilkynningar. Allir þessir möguleikar krefjast róttækra endurbóta á gagnagrunnskerfum Þjóðskrár og m.a. skráningar á gögnum sem nú eru einungis til á pappír. Þessir möguleikar krefjast einnig þess að unnt sé að auðkenna þann sem nálgast þjónustu Þjóðskrár (þ.e.a.s. að viðkomandi sanni á sér deili t.d. með notkun á notendanafni og lykilorði eða með rafrænu skilríki) og jafnframt að unnt sé að taka við greiðslum rafrænt, þegar það á við. Þessir þættir verða leystir með tilkomu rafræns þjónustulags. Rafrænt þjónustulag – að gera hlutina sjálfur Svokallað rafrænt þjónustulag hefur verið tilraunaverkefni um tíma hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og er unnið í nánu samráði við önnur ráðuneyti. Í rafræna þjónustulaginu eru tölvukerfi ráðuneytisins tengd við ytri notendur ásamt tölvukerfum annarra stofnana ríkisins. Þar er einnig haldið utan um samræmdar aðgangsstýringar, notendaauðkenningar og opnað fyrir greiðslumiðlun og þar með rafrænar bókanir til Tekjubókhalds ríkisins. Endurnýtanleiki auðkenningar- og greiðslumiðlunarvirkni í þjónustulaginu fyrir einstakar ríkisstofnanir flýtir verulega fyrir þróun vefþjónustu fyrir borgarana. Rafræna þjónustulagið styður notkun á rafrænu skilríki við auðkenningu en jafnframt munu veflyklar RSK verða notaðir við auðkenningu fyrst um sinn. Fyrsta verkefnið sem nýtir sér rafræna þjónustulagið er Leyfisveitingakerfi Ríkislögreglustjóra, en þar mun borgaranum verða gert kleift að sækja um leyfi og fylgjast með leyfisumsókn sinni, greiða fyrir viðkomandi leyfi og taka loks við því á „rafrænan hátt“, allt á sinni heimavinnustöð. Rafræna þjónustulagið gegnir lykilhlutverki í aukinni þjónustu Þjóðskrár en einnig í ýmsum öðrum upplýsingatækniverkefnum ráðuneytisins sem lúta að aukinni gagnvirkri vefþjónustu. Nauðsynleg þjónusta sótt beint til viðkomandi stjórnsýslu Með rafræna þjónustulaginu er verið að auka möguleika borgarans á því að reka erindi sitt eða sækja nauðsynlega þjónustu beint inn til viðkomandi stjórnsýslu, þannig að þegar það á við, miðað við viðkomandi verklagsreglur, sé hann í raun að gera alla hluti sjálfur, frá þeim stað og á þeirri stundu sem honum hentar. Rafræna þjónustulagið er hugsað sem almennt samþættingarkerfi. Það verður rekið sem sjálfstæð eining á vegum forsætisráðuneytisins og möguleikar þess til að opna á aðgengi að stjórnsýslukerfum almennt séð eru ekki bundnir við kerfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins heldur eru þeir öllum opnir. Þætti dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í rafræna þjónustulaginu verður fyrst og fremst sinnt af Þjóðskrá en ástæða er til að hvetja aðrar stofnanir til að kynna sér möguleikana sem rafræna þjónustulagið býður. Vegabréf – skírteini – rafrænt nafnskírteini Nýir möguleikar í samskiptum eru sífellt að koma fram sem geta aukið sjálfvirkni og skilvirkni upplýsingakerfa. Fjöldi opinberra verkefna er í vinnslu og tengslum við Þjóðskrá þar sem hagnýting og samþætting á upplýsingakerfum á tvímælalaust eftir að auka skilvirkni. Þáttur Þjóðskrár bæði sem rekstrareiningar og sem miðlægs gagnasafns við slíka samþættingu er alltaf að verða mikilvægari og um leið tæknivæddari. Nýlega tók Þjóðskrá við allri útgáfu á vegabréfum af Útlendingastofnun og nú er verið að hefja útgáfu á svokölluðum dvalarleyfisskírteinum útlendinga fyrir Útlendingastofnun. Þá mun framleiðsla ökuskírteina sem gefin eru út af Ríkislögreglustjóra væntanlega flytjast til Þjóðskrár í vor en hún hefur undanfarið farið fram erlendis. Undirbúningsvinna er hafin við fyrirhugaða útgáfu á rafrænu nafnskírteini sem mun taka við af gamla nafnskírteininu. Þetta nýja skilríki mun gagnast handhafa sem ferðaskilríki innan Schengen-svæðis Evrópu og kemur þannig í stað vegabréfs en jafnframt innihalda rafrænt skilríki sem nota má til auðkenningar í rafheimum, t.d. þegar nálgast á þjónustu Þjóðskrár svo sem þegar senda á inn flutningstilkynningar eða til að undirrita tölvupóst. Umhverfisvæn upplýsingakerfi – græna leiðin Það þarf ekki að fjölyrða um hagræðinguna eða jákvæðu umhverfisáhrifin þegar 25-30.000 flutningstilkynningar innanlands til Þjóðskrár taka að berast rafrænt til gagnagrunnsins. Í þessum tilvikum er vægt áætlað miðað við 30 mínútna ferðalag með flutningstilkynningarvottorð á pappírs- formi til næstu sveitarstjórnarskrifstofu eða á skrifstofu Þjóðskrár, að hægt væri að spara um 2.000 vinnudaga á ári auk ýmiss annars hagræðis. Hjá flestum stofnunum og fyrirtækjum innan sem utan stjórnsýslunnar er reglu- lega krafist ýmissa opinberra vottorða sem fylgigagna viðkomandi erinda. Með tilkomu rafrænna skilríkja og almennrar notkunar á rafrænu þjónustulagi er orðið enn auðveldara að flytja nauðsynleg og samnýtanleg gögn á milli upplýsingakerfa. Þjónusta hins opinbera er í raun opin allan sólarhringinn og borgarinn ekki háður því að mæta í eigin persónu á ákveðna starfstöð viðkomandi stofnunar eða fyrirtækis. Verulegur beinn og óbeinn fjárhagslegur sparnaður af hinu almenna og þverfaglega hagræði, að ógleymdum ómælanlegum tímasparnaði hjá öllum hlutaðeigandi, verður ein af árangursríkustu og umhverfisvænstu aðgerðum samfélagsins gegn pappírs- og möppuflæði. Höfundar vinna hjá Ásverk verkfræðistofu. Í þessum tilvikum er vægt áætlað, miðað við 30 mínútna ferðalag með flutningstilkynningarvottorð á pappírsformi til næstu sveitar- stjórnarskrifstofu eða á skrifstofu Þjóðskrár, að hægt væri að spara um .000 vinnudaga á ári. Sigurður Jónasson. Þorsteinn Helgi Steinarsson.

x

UTBlaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: UTBlaðið
https://timarit.is/publication/1121

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.