Morgunblaðið - 20.02.2015, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 0. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 43. tölublað 103. árgangur
FERSKLEIKI,
GÆÐI OG HREINLEIKI
Á MATARHÁTÍÐ
LEIKHÚSVÉL UM-
BREYTIST Í GEIMFLAUG
Í MIÐRI SÝNINGU
32 SÍÐNA BLAÐ UM FOOD & FUN KUGGUR OG LEIKHÚSVÉLIN 47
FORTE
blanda meltingargerla
MÚLTIDOPHILUS
þarmaflóran
hitaþolin
www.gulimidinn.is
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhúsið Mögulegt er að fylgjast
með farsímanotkun borgarfulltrúa.
„Ég vildi fá að vita hvort þetta
væri með svipuðum hætti og í
Hafnarfirði og þess vegna lagði
ég fram fyrirspurn í borgarráði,“
segir Halldór Halldórsson, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík. Fulltrúar flokksins óskuðu í
gær eftir upplýsingum um það
hverjir hefðu aðgang að upplýs-
ingum um farsímanotkun kjör-
inna fulltrúa og starfsmanna
borgarinnar og hvernig farið
væri með slíkar upplýsingar. Í
bráðabirgðasvari sem Halldór
fékk í gær kom fram að vissulega
væri alltaf einhver aðili hjá borg-
inni sem hefði aðgang að þessum
upplýsingum. Upp að vissu marki
væri því hægt að fylgjast með
farsímanotkun hvers og eins.
„Það er hægt að fylgjast með far-
símanotkun kjörinna fulltrúa og
starfsmanna upp að vissu marki,
en hvar það mark liggur veit ég
ekki og þess vegna lagði ég fram
fyrirspurnina,“ segir Halldór.
„Alltaf einhver sem hefur aðgang“
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Stjórn Sorpu bs. ætlar að ganga á
fund Sigrúnar Magnúsdóttur um-
hverfisráðherra til að óska breyt-
inga á lögum þannig að ábyrgð-
arskipting sé skýr í sorphirðu-
málum.
„Það er ekkert skemmtiefni fyrir
okkur að taka fyrir dómsmál og
klögumál á nánast hverjum fundi,“
segir Bjarni Torfi Álfþórsson,
stjórnarformaður Sorpu, en
byggðasamlagið hefur á undanförn-
um árum varið talsverðum tíma og
fjármunum í málarekstur vegna
meintra brota í samkeppnis- og út-
boðsmálum. Dæmi um þetta má sjá
í fundargerð síðasta stjórnarfundar
þar sem þrjú af sjö erindum tengd-
ust málavafstri með einhverjum
hætti. Eitt þeirra mála var að
áfrýja til Hæstaréttar dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur þar sem stað-
fest var 45 milljóna króna sekt
Samkeppniseftirlitsins á hendur
Sorpu fyrir að hafa misnotað mark-
aðsráðandi stöðu sína.
Frá árinu 2001 hefur Sorpa átta
sinnum verið til meðferðar hjá
kærunefnd útboðsmála, auk um-
fjöllunar hjá samkeppnisyfirvöldum
og fyrir dómstólum.
Eitt þeirra fyrirtækja sem ítrek-
að hafa leitað réttar síns í sam-
skiptum við Sorpu er Íslenska
gámafélagið. Jón Þórir Frantzson,
forstjóri félagsins, gagnrýnir Sorpu
harðlega í samtali við Morgunblað-
ið.
„Þetta er orðið mikið bákn sem
þarf að einhverju leyti að breyta,“
segir Jón Þórir og telur vænlegast
að Sorpa verði leyst upp og sveit-
arfélögin bjóði sorphirðuna út.
MMálarekstur Sorpu »16-17
Sorpa vill lagabreytingu
Sorpa stendur ítrekað í málarekstri og vill breytingar á starfsumhverfinu
Átta sinnum hjá kærunefnd útboðsmála „Mikið bákn sem þarf að breyta“
Áformað er að notast við afkomu-
stuðla í nýju veiðigjaldafrumvarpi.
Slíkir stuðlar munu byggjast á hlut-
fallslegri afkomu fisktegunda miðað
við afkomu í þorski.
Í sem stystu máli ganga stuðlarnir
út á að stuðst er við afkomu fiskteg-
unda frekar en hlutfallslegt verð
þeirra. Er horfið frá auðlindarentu
sem síðasta ríkisstjórn innleiddi.
Jón Gunnarsson, formaður at-
vinnuveganefndar, segir hugsað til
langs tíma með frumvarpinu. Nýju
veiðigjöldin eigi að geta verið við lýði
um ókomin ár. „Ég tel að við séum
með allan þann grunn sem þarf til
þess að ganga frá veiðigjöldunum til
lengri tíma,“ segir Jón.
Hann segir tíma málamiðlana
varðandi nýtt fiskveiðistjórnunar-
frumvarp að baki. »14
Veiðigjöldum breytt
Munu byggjast á afkomustuðlum
Sunddeild Ármanns hélt úti frískandi kennslu í
sundlaugapóló í Árbæjarlaug í gær. Er það liður
í fjölbreyttri dagskrá Reykjavíkurborgar fyrir
alla fjölskylduna í frístundamiðstöðvum og
menningarstofnunum borgarinnar í vetrarfríi
grunnskólanema dagana 19.-20. febrúar. Ókeyp-
is aðgangur er fyrir börn og foreldra í sundlaug-
arnar á tilgreindum tímum og meðal annars boð-
ið upp á sundlaugafjör, tónlist og leiki.
Styttu sér stundir í sundlaugapóló í boði borgarinnar
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavíkurborg með fjölbreytta dagskrá í vetrarfríi grunnskólanna
Gylfi Þór Sig-
urðsson spilar
aftur með Swan-
sea í ensku úr-
valsdeildinni í
knattspyrnu á
morgun eftir
mánaðar hlé
vegna leikbanns
en lið hans tekur
þá á móti Man-
chester United.
„Ég held að það yrði mjög gott hjá
okkur ef við næðum stigi á móti
United og ekki yrði leiðinlegra ef
mér tækist að skora,“ segir Gylfi.
» Íþróttir
Gylfi með á ný og
mætir Man. Utd
Gylfi Þór
Sigurðsson
Tvær súlur, sem merktar voru í Eld-
ey árið 1982, fundust dauðar í fyrra,
önnur þeirra var 31 árs og fimm
mánaða, hin 32 ára og þriggja mán-
aða. Fyrra aldursmet var 27 ár og
átta mánuðir.
Aldrei fyrr hafa jafnmargir fuglar
verið nýmerktir hér á landi og í
fyrra, þegar merktir voru rúmlega
19.000 fuglar af 79 tegundum. Af ein-
stökum tegundum var mest merkt af
auðnutittlingum.
Endurheimtur merktra fugla sýna
hversu langförulir þeir geta verið, en
sá langförulasti var sanderla sem
sást við Akranes. Hún hafði verið
merkt í Gana og var því komin tæpa
7.000 km frá merkingarstaðnum. »4
Morgunblaðið/Rax
Súlur Tvær súlur, báðar á fertugs-
aldri, fundust dauðar í fyrra.
Nýmerktu um
19.000 fugla