Morgunblaðið - 20.02.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2015
Þessi frétt birtist á Mbl.:
Sigmundur Davíð Gunnlaugssonforsætisráðherra hyggst mæla
fyrir því á Alþingi
að gerð verði óháð
rannsókn á skýrslu
Brynjars Níels-
sonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins,
um erindi Víglundar
Þorsteinssonar
vegna stýrinefndar
stjórnvalda um
samninga við erlenda kröfuhafa
bankanna árið 2009 og fleira.
Þetta sagði Sigmundur Davíð ímorgunútvarpi Bylgjunnar í
morgun.
Hann sagði að Brynjar hefði tek-ið að sér að afla gagna fyrir
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis og í kjölfar þess hefði hann
lagt til að málið yrði rannsakað
áfram enda ýmislegt sem þyrfti að
skoða.
Ég held að það sé æskilegt ogmjög nauðsynlegt að fylgja því
eftir með þeim hætti,“ sagði Sig-
mundur Davíð.“
Lítill vafi getur ríkt á að tillögurforsætisráðherrans um þessi
efni fái góðan hljómgrunn á
Alþingi.
Núverandi stjórnarandstaða stóðí ríkisstjórn fyrir margvís-
legum rannsóknum og hótaði enn
fleiri rannsóknum, en virtist stund-
um eiga jafn erfitt með að standa
við hótanir eins og að efna loforð og
fyrirheit og er þá langt til jafnað.
Þessa rannsókn hlýtur hún aðgeta stutt þótt ekki sé um
nornaveiðar að ræða.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Sjálfsögð
rannsókn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.2., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík -5 alskýjað
Akureyri -1 alskýjað
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló 3 alskýjað
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 6 skýjað
Helsinki 2 alskýjað
Lúxemborg 0 þoka
Brussel 3 skýjað
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 7 skúrir
París 5 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 3 léttskýjað
Berlín 7 heiðskírt
Vín 5 skýjað
Moskva -3 léttskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg -27 heiðskírt
Montreal -7 snjókoma
New York -6 alskýjað
Chicago -17 léttskýjað
Orlando 7 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:07 18:17
ÍSAFJÖRÐUR 9:21 18:13
SIGLUFJÖRÐUR 9:04 17:56
DJÚPIVOGUR 8:39 17:44
Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun
MRR fyrir frétta-
miðilinn Eyjar.-
net eru 51,9%
íbúa í Vestmann-
eyjum mjög
óánægð með nú-
verandi fyrir-
komulag sjósam-
gangna milli lands og Vestmanna-
eyja og 36,2% frekar óánægð.
Símakönnunin fór fram 11.-17.
febrúar. Í 500 manna úrtaki voru 18
ára og eldri íbúar í Vestmannaeyjum
valdir handahófskennt úr þjóðskrá.
318 svöruðu eða 63,6%.
54,6% þeirra sem svöruðu telja að
Herjólfur anni flutningum á fólki
mjög illa eða frekar illa en 31,4%
segja ferjuna anna fólksflutningum
frekar vel eða mjög vel.
Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja
sl. þriðjudag var samþykkt að
bæjarráð fæli „bæjarstjóra að láta
þegar vinna vandaða skoðana-
könnun meðal bæjarbúa þar sem
m.a. verður kallað eftir áliti þeirra á
samgöngum á sjó og framtíðar-
möguleikum“.
Óánægja í
Eyjum með
samgöngur
Um 88% óánægð
með fyrirkomulagið
Þinglýsing skjala hjá Sýslumann-
inum á höfuðborgarsvæðinu tekur
yfirleitt þrjá virka daga, eins og fyr-
ir sameiningu embættanna þriggja.
Ef ekki næst að ljúka vinnslunni inn-
an þessa tíma eru skjölin þó yfirleitt
afgreidd á meðan fólk bíður.
Eftir sameiningu embættanna er
tekið við skjölum til þinglýsingar á
starfsstöðvunum í Hafnarfirði,
Kópavogi og Reykjavík og getur fólk
valið á hvaða stað það fer. Bergþóra
Sigmundsdóttir, sviðsstjóri þinglýs-
inga- og leyfasviðs, segir að álagið
hafi dreifst ójafnt á milli af-
greiðslustaða. Fyrstu dagana hafi
verið meira álag í Skógarhlíð og þá
hafi safnast upp hali þar og síðustu
daga hafi verið unnið að því að vinna
upp hala í afgreiðslunni í Kópavogi.
Hún segir að tíminn sem embættið
ætlar sér til vinnslu þinglýsing-
arskjala hafi þó ekki verið lengdur.
Fólk geti í flestum tilvikum komið á
þriðja degi og fái afgreiðslu á meðan
það bíði. Fasteignasalar og lána-
stofnanir sem séu með mörg skjöl og
geti ekki beðið, hafi yfirleitt getað
gengið að þeim á fjórða degi.
Vegna álagsins í Kópavogi hefur
verið bætt við hálfu starfi þinglýs-
ingarfulltrúa. Bergþóra segir að
skjölum sem koma til þinglýsingar
hafi fjölgað verulega á síðasta ári og
sú þróun virðist halda áfram á þessu
ári. helgi@mbl.is
Afgreitt á meðan fólk bíður
Þinglýsing tekur enn þrjá daga Álagið dreifst ójafnt á afgreiðslustaði
Byggingar Fólki liggur oft á að fá
skjölum þinglýst hjá sýslumanni.