Morgunblaðið - 28.02.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.02.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015 Undirskriftir vantaði Í minningagrein um Unni Jón- asdóttur í blaðinu í gær, 27. febrúar, bls. 15, vantaði undirskrift barna hennar, en þau eru Sigurjón Ragn- ar, Guðmundur, Rúnar Þór, Fanney Dóra og Guðrún. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. Eitt safn vantaði Í umfjöllun um uppbyggingu á Granda á bls. 65 í blaðinu í gær, láð- ist að geta Norðurljósasafnsins í upptalningu á söfnum á svæðinu. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. LEIÐRÉTT Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Miðað við fjölgun erlendra ferða- manna til Íslands og áætlanir flugfélaganna þyrfti að ráðast í framkvæmdir á Keflavíkurflug- velli fyrir um 50 milljarða króna á næstu 5-7 árum, með frekari stækkun flugstöðvarinnar og við- haldi á flugbrautum og öðrum búnaði. Þetta segir Elín Árnadóttir, að- stoðarforstjóri Isavia, en hún var formaður valnefndar í hönnunar- samkeppni um þróun og upp- byggingu Keflavíkurflugvallar næstu 25 árin. Eins og kom fram í Morgunblaðinu var það norska hönnunarstofan Nordic-Office of Architecture sem bar sigur úr býtum í keppninni. Elín segir næstu skref í kjölfar tillagna Nordic að velja ráðgjafa til að vinna verkefnið áfram. „Þetta eru fyrst og fremst til- lögur, byggðar á okkar farþegas- pám í útboðsgögnum. Þær virðast stórtækar en það er vel hægt að búta þessa áfanga niður eftir að- stæðum hverju sinni. Núna þurf- um við að setjast niður með öllum hagsmunaaðilum, flugfélögunum þar á meðal, til að ræða útfærslu á tillögunum. Í haust verður komin áætlun um hvað við mun- um ráðast fyrst í,“ segir Elín. Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Keflavíkurflugvelli og inni í Leifsstöð. Endurbætt flugstöð verður tekin í gagnið í vor og þá bætast við tvö flughlið. Á næsta ári mun þessum framkvæmdum ljúka og þá bætast við fjögur hlið, en þau eru alls 16 í dag. Elín segir að þetta muni auka afkastagetu flugvallarins veru- lega. Á síðasta ári fóru nærri 3,9 milljónir farþega um Leifsstöð en til samanburðar má rifja upp að árið 2009 var fjöldinn um 1,8 milljónir. Til ársins 2040 er því spáð að farþegafjöldinn fari í 8 milljónir. Framkvæma þarf fyrir 50 milljarða á næstu árum  Ákveðið í haust með næstu framkvæmdir í Leifsstöð Mannanafnanefnd hefur á und- anfarinni viku úrskurðað um sex nöfn. Kvenmannsnöfnin Eivör og Júlína voru samþykkt af nefnd- inni og verða færð á manna- nafnaskrá. Þá voru karlkyns- nöfnin Tíbor og Antóníus einnig samþykkt sem og millinafnið Úlf- dal. Kvenmannsnafnið Eilithya var ekki samþykkt þar sem engin kona ber nafnið í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði mannanafna- nefndar fyrir hefð. Þá kemur nafnið heldur ekki fyrir í mann- tölum frá árunum 1703-1910, og telst þar af leiðandi ekki vera hefð fyrir nafninu Eilithya. Eivör samþykkt en Eilithya ekki Glæsilegur fatnaður fyrir fermingarnar Engjateigur 5 | Sími 581 2141 | www.hjahrafnhildi.isBæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Túnikur Opið 10-16 í dag 7.900 kr. 3 litir gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn í Reykjavík Kynningarfundur á ferðum ársins verður haldinn á Hóteli Natura (Loftleiðahóteli) þriðjudaginn 3. mars nk. kl. 20:00 Kaffiveitingar verð 2.500 kr. Orlofsferðir árið 2015 Þjórsárdalur dagsferð 20. júní Akureyri, Mývatn, Hrísey 09.-­‐11.okt. Færeyjar 15. -­‐18. maí Þýskaland-­‐Passau 04. -­‐09.júní Ítalía-­‐St. Tropez 06. -­‐13 .júní England-­‐Wales 21. -­‐27. ágúst Aðventuferð-­‐Heidelberg 27. -­‐30. nóv. Skrifstofa Orlofsnefndar að Hver�isgötu 69 er opin mánud.-­‐miðvikud. kl.16:30-­‐18 sími 551 2617 Í lögum um orlof húsmæðra segir svo: „Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof.“ Stjórnin Húsmæðraorlof Gullbringu- og Kjósarsýslu 2015 Álftanes, Garðabær, Garður, Grindavík, Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sandgerði, Seltjarnarnes,Vogar. Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Franska Rívíeran, Mónakó o.fl. .............................. 30. maí–6. júní Ítalíuferð til Gardavatnsins, Feneyja o.fl................ 3.–10. október Aðventuferð til Innsbruck í Austurríki ............26. – 29. nóvember Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á móti pöntunum í síma á milli kl. 17:00 og 19:00 á virkum dögum frá 2.–11. mars. Svanhvít Jónsdóttir.................................................. 565 3708 Ína Dóra Jónsdóttir .................................................. 421 2876 Guðrún Eyvindsdóttir .............................................. 422 7174 Valdís Ólafsdóttir ..................................................... 566 6635 Sigrún Jörundsdóttir................................................ 565 6551 Orlofsnefndin Nudd Sportmassage – Refreshmassage –Medicalmassage 30min: 2.500kr. 60min: 5.000kr. nudd@bluemarshal.com — www.bluemarshal.com FISLÉTTARDÚNÚLPUR Margir litir Verð frá 29.900,- FISLÉTTDÚNVESTI Margir litir Verð 12.900,- Laugavegi 63 • S: 551 4422 www.laxdal.is SKOÐIÐ VORYFIRHAFNIRNAR Á LAXDAL.IS/YFIRHAFNIR Vertu vinur okkar á Facebook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.