Morgunblaðið - 28.02.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Hvammstanga
Fæðingarorlofssjóður hefur starfað
á Hvammstanga frá árinu 2007. Þá
leigði sjóðurinn stærstan hluta efri
hæðar Kaupfélags Vestur-Húnvetn-
inga. Nýlega kom stjórn KVH og
forsvarsmenn Vinnumálastofnunar,
en Fæðingarorlofssjóður er í vörslu
stofnunarinnar, saman í starfsstöð
sjóðsins til undirritunar framhalds
samnings um leigu húsnæðisins til
ársins 2023. Einnig var nú bætt við
hið leigða rými og hefur sjóðurinn þá
leigt alla efri hæð verslunarhússins.
Það kom fram í máli forstöðu-
mannsins, Leós Arnar Þorleifsson-
ar, að starfsemin hafi vaxið með ár-
unum. Starfsmönnum hefur fjölgað
úr níu í tólf, þar af eru sex sérfræð-
ingar að störfum og þrír starfsmenn
annast símaþjónustu. Einnig hefur
náms- og atvinnuráðgjafi Vinnu-
málastofnunar á Norðurlandi vestra
aðsetur hjá sjóðnum. Viðskiptavinir
eru um 4600 á mánuði og útborgaðar
fjárhæðir til foreldra í fæðingaror-
lofi um 750 til 800 milljónir á mánuði.
Því er ljóst að umfang sjóðsins er
mikið. Starfsfólkið er flest með há-
skólamenntun og allt búsett í hér-
aðinu.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, sagði stofnun sjóðs-
ins á Hvammstanga vera einn best
heppnaða flutning opinberra starfa
frá höfuðborgarsvæðinu. Undirbún-
ingur flutningsins hafi verið vand-
aður og vel hafi gengið að ráða hæft
fólk til starfa. Engin vandamál hafa
komið upp á starfstímanum og mjög
fagleg vinnubrögð í hvívetna. Því
myndi hann undirrita framlengdan
samning með jákvæðum huga.
Gunnar Þórarinsson, formaður
stjórnar KVH, lýsti einnig ánægju
sinni með nýjan samning og sagði
þessi viðskipti hafa styrkt kaup-
félagið afar mikið. Sveitarstjóri,
Guðný Hrund Karlsdóttir, og Unnur
Valborg Hilmarsdóttir, oddviti
Húnaþings vestra, færðu Gissuri
loftmynd af Hvammstanga og fögn-
uðu þessum mikilvæga áfanga fyrir
samfélagið í Húnaþingi vestra.
Morgunblaðið/Karl
Undirritun samnings Gengið var frá framlengingu á leigusamningum á
Hvammstanga á dögunum. Frá vinstri: Leó Örn Þorleifsson, Gissur Pét-
ursson, Reimar Marteinsson kaupfélagsstjóri og Gunnar Þórarinsson.
Ánægja með starfsemi
Fæðingarorlofssjóðs
Leigusamningurinn var framlengdur
Óvissustigi á norðanverðum Vest-
fjörðum og hættustigi á sunnan-
verðum Vestfjörðum var aflétt í
gær. Enn er óvissustig vegna snjó-
flóðahættu á sunnanverðum Vest-
fjörðum og verður það endur-
skoðað í dag.
Hvöss austanátt var á miðviku-
dag með mikilli snjókomu á sunn-
anverðum Vestfjörðum. Á fimmtu-
dag var hvöss NA-átt og úrkoma.
Aðfaranótt föstudags snjóaði svo
mjög mikið í norðanátt. Mörg snjó-
flóð féllu í veðrinu, meðal annars
nokkuð stór snjóflóð á Patreksfirði,
Mikladal og Rauðasandi.
Á vefsíðu Veðurstofunnar segir
að mikill snjór sé til fjalla, einkum í
hlíðum sem snúa mót suðri og
vestri. Gera verður ráð fyrir að
óstöðugleiki geti verið í snjóþekj-
unni. Þeir sem eru á ferð í fjallendi
ættu því að gæta sérstakrar var-
úðar við þessar aðstæður.
Óvissustig á Vestfjörðum endurmetið í dag
Nú um helgina mun elsta fast-
eignasala landsins flytja starfsemi
sína úr Síðumúla í Reykjavík og nið-
ur á Grensásveg 11. Eignamiðlun
hefur starfað frá árinu 1957 og
fagnar því 58 ára afmæli á þessu
ári.
Meðal þess sem einkennt hefur
skrifstofu fyrirtækisins á síðustu
áratugum og viðskiptavinir þess
hafa fengið að kynnast, eru þau fjöl-
breyttu listaverk fjölmargra ís-
lenskra listamanna sem prýða al-
menn rými, skrifstofur þess og
fundarsali. Heiðurinn af verkunum
á Sverrir Kristinsson, einn eigenda
Eignamiðlunar, en hann hefur verið
einn stórvirkasti safnari íslenskrar
myndlistar síðastliðin fjörutíu ár.
„Nú þegar við flytjum í nýtt og
glæsilegt húsnæði hér á Grens-
ásvegi fannst okkur við hæfi að
setja upp nýja sýningu sem við-
skiptavinir okkar munu geta notið á
komandi árum. Okkur þykir mikil-
vægt að bjóða þeim upp á notalegt
umhverfi þegar þeir sækja okkur
heim,“ segir Sverrir.
Þegar Morgunblaðið spyr hann
hvaða verk sé í uppáhaldi hjá hon-
um segist hann helst ekki vilja ræða
það því hvorki eigi menn að gera
upp á milli listaverka né barna
sinna. Hann lætur þó tilleiðast. „Eitt
af mínum uppáhaldsverkum er eftir
Magnús Tómasson. Það nefnist Ís-
lenskt landslag. Það mun prýða
einn af veggjum nýrrar skrifstofu
Eignamiðlunar.“
Eignamiðlun á Grensásveg
Ný listsýning
mun prýða veggi
fasteignasölunnar
Morgunblaðið/Eggert
Fasteignir Eigendur Eignamiðlunar eru þeir Þorleifur St. Guðmundsson,
Guðmundur Sigurjónsson, Sverrir Kristinsson og Kjartan Hallgeirsson.
List Íslenskt landslag eftir Magnús
Tómasson er í uppáhaldi hjá Sverri.
Reykjanesbær hefur undanfarið
gert breytingar á einstaklings-
bundnum kjörum ýmissa starfs-
manna sinna vegna sparnaðar í
rekstri. Hjá sveitarfélaginu vinna
um 1.000 manns og er hluti þeirra í
Starfsmannafélagi Suðurnesja.
Stefán Benjamín Ólafsson, for-
maður starfsmannafélagsins, sagði
að bænum hefði verið gefinn frestur
s.l. mánudag að gera grein fyrir
breyttum kjörum starfsmanna fyrir
27. febrúar. Einhverjir þeirra fengu
útskýringar á breyttum kjörum í
gær, en ekki allir, að sögn Stefáns.
„Menn vinna áfram samkvæmt
kjarasamningum en t.d. verða gerð-
ar breytingar á fastlaunasamningum
og fastri yfirvinnu. Athugun sem var
gerð í september til nóvember sýndi
að sumir unnu hluta af föstu yfir-
vinnutímunum. Nú verður bara
greitt fyrir unna yfirvinnu sem yf-
irmenn kvitta fyrir. Þeir sem höfðu
fastan bílastyrk missa hann. Þess í
stað verða menn að halda aksturs-
dagbók og fá greitt samkvæmt henni
fyrir akstur,“ sagði Stefán.
Hann hafði ekki fengið viðbrögð
margra starfsmanna við þessum
breytingum í gær. Stefán taldi að
fólk væri að skoða sín mál. Breyting-
arnar hafa ekki enn tekið gildi hjá
öllum og fer það eftir uppsagnar-
fresti fólks hve langur tími líður þar
til kjörin breytast. gudni@mbl.is
Breytt launakjör
hjá Reykjanesbæ
Afnema fasta yfirvinnu og bílastyrki
Morgunblaðið/Ómar
Reykjanesbær Sveitarfélagið end-
urskoðar einstaklingsbundin kjör.
Samtal á
afmælisári50
Gamla bíó
Miðvikudagur 4. mars, kl. 14-17
Landsvirkjun býður til opins fundar um
hvernig fyrirtæki geta unnið gegn losun
gróðurhúsalofttegunda og
loftslagsbreytingum.
Í tilefni af 50 ára afmæli stendur Landsvirkjun
fyrir samtali við þjóðina með opnum fundum.
Allir velkomnir!
Ábyrgð fyrirtækja
í loftslagsmálum
Dagskrá:
Hlutverk Landsvirkjunar í loftslags-
málum
Ragnheiður Ólafsdóttir, Landsvirkjun
Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra,
hvað er til ráða?
Bjarni Diðrik Sigurðsson,
Landbúnaðarháskóla Íslands
Uppgræðsla lands
Jóhann Þórsson, Landgræðsla ríkisins
Breytum lofti í við – kolefnisbinding með
skógrækt
Arnór Snorrason, Rannsóknarstöð
skógræktar, Mógilsá
Landgræðsluskógar og skógrækt
við Búrfell
Einar Gunnarsson, Skógræktarfélag
Íslands
Skógrækt undir merkjum Kolviðar
Reynir Kristinsson framkvæmdastjóri
Mýrviður – loftslagsáhrif skógræktar
á framræstu mýrlendi
Brynhildur Bjarnadóttir, Háskólanum
á Akureyri, Bjarki Þór Kjartansson,
Rannsóknarstöð skógræktar, Mógilsá
Endurheimt votlendis
Hlynur Óskarsson, Landbúnaðarháskóli
Íslands
Tækifæri og framtíðarsýn íslenskra
fyrirtækja í loftslagsmálum
Bryndís Skúladóttir, Samtök iðnaðarins
Umræður
Fundarstjóri er Ragna Sara Jónsdóttir,
forstöðumaður samfélagsábyrgðar hjá
Landsvirkjun.