Morgunblaðið - 28.02.2015, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Tollverndin er okkar stærsta mál
enda hefur hún mikil áhrif á kjör
bænda. Hún á að tryggja vilja bænda
til að framleiða búvörur og jafna
samkeppnisstöðu og náttúrulegar að-
stæður,“ segir Sindri Sigurgeirsson,
formaður Bændasamtaka Íslands.
Tollamálin hafa verið talsvert til um-
ræðu, meðal annars vegna aukins
innflutnings kjötafurða. Bænda-
samtökin munu setja þau á oddinn í
komandi viðræðum við ríkið um nýj-
an búvörusamning.
Sindri segir að aukinn innflutn-
ingur kjöts sé ákveðin ógn við inn-
lenda búvöruframleiðslu. Innflutn-
ingurinn hefur aukist mjög síðustu
ár. Á síðasta ári jókst innflutningur á
kjöti um 1.000 tonn sem er yfir 60%
frá árinu á undan og talið er að inn-
flutt kjöt sé um 20% af seldu ali-
fugla-, svína- og nautakjöti hér á
markaði.
Þrengt að svínabændum
Sindri segir innflutning á nauta-
kjöti tilkominn vegna þess að inn-
lenda framleiðslan hafi ekki náð að
anna eftirspurn. Ýmsar skýringar
séu á því. Nefnir hann að afkoma af
nautakjötsframleiðslu hafi ekki verið
nægilega góð og því ekki hvetjandi til
aukinnar framleiðslu. Aukin spurn
eftir mjólk auki vandann þegar til
skemmri tíma er litið vegna þess að
bændur setji allar kvígur á og seinki
slátrun mjólkurkúa, til að auka
mjólkurframleiðsluna sem mest.
„Við finnum að áhugi á nautakjöts-
framleiðslu er að aukast á ný. Hins
vegar var innflutningur mikill í
fyrra,“ segir Sindri og nefnir dæmi
um bændur sem eru að fjölga í hjörð-
um sínum. Það muni styrkja fram-
leiðsluna þegar leyft verður að flytja
inn erfðaefni til kynbóta en það líði
vissulega langur tími þar til kynbæt-
urnar skili auknu kjöti inn á mark-
aðinn.
Fram hefur komið hjá formanni
Svínaræktarfélags Íslands að bú-
greinin sé í hættu vegna aukins inn-
flutnings á sama tíma og framleið-
endur og kjötvinnslur hafa ekki
getað selt alla sína framleiðslu og
birgðir safnast upp. „Staðan er erfið í
svínakjötsframleiðslunni. Þar vantar
mest svínasíður til að steikja sem
beikon í morgunmat fyrir alla þá er-
lendu ferðamenn sem hingað koma.
Því hefur verið svarað með því að
gefa innflutninginn frjálsan í tiltek-
inn tíma yfir sumarið. Innflytjendur
hafa nýtt sér þessa glugga til að
flytja mikið inn undir lokin og safna
upp birgðum,“ segir Sindri.
Bætir Sindri því við að mikill verð-
þrýstingur sé á svínabændur vegna
innflutnings sem leiði til lækkunar
afurðaverðs til þeirra. Sú lækkun
skili sér hins vegar ekki til neytenda.
„Það eru gerðar miklar kröfur til
aðbúnaðar á búum. Enginn kvartar
undan því en á það ekki líka við þegar
við flytjum kjötið inn?“
Ættu að koma hreint fram
Formaður Bændasamtakanna hef-
ur áhyggjur af því að Íslendingar séu
ekki nógu meðvitaðir um mikilvægi
tolla fyrir innlendan landbúnað. „Öll
ríki vernda landbúnað sinn og mörg
nota tollvernd til þess. Tilgangurinn
er að tryggja vilja bænda til að fram-
leiða og til að jafna samkeppn-
isaðstöðu og mismunandi nátt-
úrulegar aðstæður. Þetta er liður í að
tryggja fæðuöryggi landsmanna,“
segir Sindri.
Ýmis samtök verslunarinnar hafa
verið í baráttu gegn núverandi fyrir-
komulagi á tollvernd landbúnaðarins.
„Verslunin er skiljanlega að berjast
fyrir sínum hagsmunum. Fulltrúar
hennar ættu hins vegar að koma
hreint fram með það en ekki segjast
gera það með hagsmuni neytenda að
leiðarljósi. Síðasta úttekt Samkeppn-
iseftirlitsins á versluninni sýndi að
helmingi meiri álagning er á inn-
fluttar búvörur en innlendar. Þarna
er því heilmikið að sækja fyrir versl-
unina. Því til viðbótar má nefna að
forystumenn svínabænda hafa bent á
að verðlækkun afurða til þeirra hef-
ur ekki skilað sér til neytenda. Þetta
sýnir að verslunin er fyrst og fremst
að skara eld að eigin köku og ekki
sanngjarnt að bera neytendur fyrir
sig í þeirri baráttu,“ segir Sindri.
Hann segir miður að þurfa að horfa
upp á grimmilega herferð samtaka í
verslun gegn hagsmunum landbún-
aðarins því verslunin sé mikilvægur
liður í því að koma afurðum bænda
til neytenda.
Fram hefur komið hjá sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra að
mögulega verði dregið úr tollvernd
alifugla- og svínakjöts í samningum
við Evrópusambandið sem nú standa
yfir. Sindri segir grundvallaratriði
að það sé ekki gert einhliða heldur
með gagnkvæmri opnun markaða.
Með því móti gætu Íslendingar sótt
fram á erlendum mörkuðum með eft-
irsóttar vörur. Ráðherra hafi sagt að
þannig yrði staðið að málum í þess-
um samningum.
Vilja ramma til langs tíma
Búvörusamningar renna út á
næstu tveimur árum og viðræður
eru ekki hafnar um endurnýjun
þeirra. Sindri segir að Bænda-
samtökin leggi til að gerður verði
rammasamningur fyrir landbún-
aðinn í heild til þess að tryggja
starfsgrundvöll greinarinnar til
langs tíma, til dæmis tíu ára. Þar
verði tekið á tollverndinni enda hafi
hún mikil áhrif á kjör bænda. Síðan
verði gerðir búvörusamningar um
einstakar búgreinar, eins og verið
hefur.
Vonast Sindri til að hægt verði að
setjast niður til samninga sem fyrst.
„Mikilvægt er fyrir bændur að sjá
sem fyrst hvernig rekstrarumhverf-
inu verður háttað á næstu árum.
Landbúnaðurinn þarf meiri fyrir-
sjáanleika en margar aðrar atvinnu-
greinar. Framleiðsluferillinn er
langur og fjárfrekur. Skýrar for-
sendur til langs tíma hvetja til upp-
byggingar og áframhaldandi sókn-
ar,“ segir Sindri.
Setja tollverndina á oddinn
Formaður Bændasamtaka Íslands segir tollverndina stærsta kjaramál bænda Segir að verslunin
sé að skara eld að eigin köku og eigi ekki að bera neytendur fyrir sig í baráttunni fyrir innflutningi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Við heyskap Sindri Sigurgeirsson vinnur jöfnum höndum að félagsmál-
unum í Bændahöllinni og í búskapnum í Bakkakoti í Borgarfirði.
Búnaðarþing sem hefst á sunnu-
dag starfar undir yfirskriftinni Op-
inn landbúnaður. Með því segir
Sindri að verið sé að vekja athygli
á því verkefni Bændasamtakanna
og 30 bænda að taka á móti gest-
um til að fræða þá um starf bónd-
ans og landbúnaðinn. Aukin
áhersla verði lögð á það á þessu
ári. „Mér finnst á umræðunni í
þjóðfélaginu að ákveðin vanþekk-
ing og skilningsleysi sé á störfum
okkar. Það er skiljanlegt, fólk hef-
ur fjarlægst sveitina. Við þurfum
því að kynna það betur fyrir hvað
við stöndum og hvað við gerum.“
Sindri hefur einnig áhuga á að
opna enn frekar umræðuna um
landbúnaðarmál. „Við njótum
stuðnings og tollverndar og eðli-
legt er að umræða sé um málefni
landbúnaðarins. Við höfum ekkert
að fela og viljum opna og mál-
efnalega umræðu um málefni
hans.“
Búnaðarþing verður sett í Hörp-
unni í tengslum við matarhátíð
sem þar er um helgina.
Vilja stuðla að opinni umræðu
BÚNAÐARÞING UNDIR MERKJUM OPINS LANDBÚNAÐAR
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhúsið í
Reykjavík og Lexus á Íslandi und-
irrituðu á dögunum eins árs sam-
starfssamning þess efnis að Lexus
styðji við þrjá fyrirhugaða tónlistar-
viðburði á starfsárinu. Markmiðið
með samningnum er að styðja við
menningar- og tónlistarstarf í
Hörpu og þá alþjóðlegu listviðburði
sem Harpa mun færa til landsins.
Lexus á Íslandi styrkir eftirtalda
viðburði á árinu 2015: Richard
Goode sem kemur fram á Heims-
píanistaröð Hörpu í mars, The
King’s Singers í september og er-
lenda gestahljómsveit ársins í
Hörpu í október.
Það voru Halldór Guðmundsson,
forstjóri Hörpu, og Úlfar Stein-
dórsson, forstjóri Toyota á Íslandi,
sem undirrituðu samninginn í
Hörpuhorni. Viðstaddir voru Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir, tónlistar-
stjóri í Hörpu, og Páll Þorsteinsson,
upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi.
Halldór Guðmundsson, forstjóri
Hörpu, segir í tilkynningu nýtil-
komið samstarf vera afar ánægju-
legt fyrir Hörpu. Húsið efni til nokk-
urra stórra listviðburða á hverju ári,
til dæmis til að kynna fyrir þjóðinni
sinfóníuhljómsveitir annarra landa
sem ekki hefðu komið til Íslands
nema af því að tónlistarhúsið er ris-
ið. Úlfar Steindórsson, forstjóri
Toyota á Íslandi, sem flytur inn
Lexusbifreiðar, hafði orð á því að
þau hjá Lexus hefðu fylgst með því
öfluga starfi sem farið hefur fram í
Hörpu og dáðst að árangrinum. Á
stuttum tíma hafi Harpa unnið sér
sess sem einn af hornsteinum lista-
lífs í landinu og að fyrirtækið vilji
styðja þá starfsemi.
Ljósmynd/Harpa
Styðja þrjá viðburði
Harpa og Lexus undirrita samning