Morgunblaðið - 28.02.2015, Blaðsíða 30
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ögmundur Jónasson, þing-maður VG og fyrrverandiinnanríkisráðherra, lagðiá miðvikudaginn var fram
fyrirspurn á Alþingi um hversu
margar ábendingar eða kærur hafa
borist vegna brota á banni við
áfengisauglýsingum á síðustu árum.
Af því tilefni kannaði Morgun-
blaðið hvaða reglur gilda um slíkar
auglýsingar í Noregi, Danmörku og
Svíþjóð. Byrjað var í Noregi.
Að sögn dr. Ingeborg Rossow,
sérfræðings í forvörnum vímuefna
við norsku áfengis- og vímuefna
rannsóknarstofnunina (SIRUS), er
algert bann við auglýsingum
drykkja í Noregi sem innihalda
meira en 2,5% alkóhól að rúmmáli.
Bannið byggist á lögum frá 1997.
Spurð hvort vísbendingar séu um
að framleiðendur og seljendur reyni
að fara í kringum bannið segir Ros-
sow að dæmi séu um það úr sjón-
varpi. Á hún þar við útsendingar frá
öðrum löndum, þar sem aðrar reglur
gilda en í Noregi, sem eru ætlaðar
Norðmönnum. Telur hún að fjöldi
slíkra auglýsinga sé óverulegur.
Hún kvaðst hafa takmarkaðar upp-
lýsingar um slíkar auglýsingar á
netinu og gæti því ekki rætt um
þær.
Auglýsa má allt áfengi
Næst var spurt um reglur um
áfengisauglýsingar í Danmörku.
Að sögn Marie Frank-Nielsen,
lögfræðings hjá dönsku stofnuninni
Alkohol Reklamen Nævnet, sem
fylgist með því að reglum um
áfengisauglýsingar sé fylgt, má aug-
lýsa allt áfengi í Danmörku og gildir
þá einu hvernig fjölmiðillinn er.
Hins vegar er algert bann við því
að kynna áfengi fyrir börnum og
ungmennum og miðast aldurs-
takmarkið við 18 ár. Þá skulu aug-
lýsingarnar ekki vera „ágengar,
ögrandi eða á einhvern annan hátt
sérstaklega sannfærandi“.
Jafnframt mega áfengisauglýs-
ingar í Danmörku ekki gefa til
kynna að neysla vörunnar sé heilsu-
samleg, eða að hún geti aukið árang-
ur neytandans í leik og starfi eða
bætt andlegt eða líkamlegt ástand-
hans. Loks skulu ekki vera fyrir-
sætur í auglýsingunum hverra skoð-
anir geta haft áhrif vegna starfs eða
stöðu viðkomandi í samfélaginu.
Bannað í útvarpi og sjónvarpi
Síðast var borið niður í Svíþjóð.
Að sögn Mattias Grundström,
sem gegnir embætti eftirlitsaðila
með sænskum áfengisframleið-
endum (Alkohol Gransknings-
mannen) er óheimilt að auglýsa
áfengi í útvarpi og sjónvarpi í Sví-
þjóð. Það sama gildir um markaðs-
setningu á áfengi utandyra.
„Það er ekki óheimilt að senda
upplýsingar um áfengi til fólks sem
hefur óskað slíkra upplýsinga. Hafi
viðtakandinn hins vegar ekki óskað
þess eru slíkar sendingar óheimilar.
Heimilt er að auglýsa áfengi í dag-
blöðum í Svíþjóð upp að 15% styrk-
leika en þó að uppfylltum ýmsum
skilyrðum. Þannig gilda reglur um
hvernig kynna má vöruna í texta og
myndum. Texti sem fylgir vörunni
má hvorki vera rómantískur né fela í
sér ónákvæma lýsingu. Auglýsendur
mega aðeins sýna mynd af flösku
eða glasi sem tilheyrir tilteknu vöru-
merki. Það er óheimilt að sýna fólk,
mat, blóm eða aðra hluti sem eru
ótengdir vörunni. Loks skulu 70%
viðtakanda vera 25 ára gamlir,“ seg-
ir Grundström.
Sömu reglur gilda á netinu nema
hvað ekkert takmark er á styrkleika
áfengis sem auglýst er á þeim vett-
vangi í Svíþjóð.
Misjafnar reglur um
áfengisauglýsingar
Auglýst með varnaðarorðum Þessi auglýsing birtist í sænsku dagblaði.
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Áþriðjudag-inn dró tiltíðinda í
samskiptum for-
seta Bandaríkj-
anna og þingsins
þegar Obama
beitti neitunarvaldi sínu á
lagasetningu frá Bandaríkja-
þingi í þriðja sinn á forseta-
ferli sínum. Slíkt þykir heldur
í minna lagi, en Obama hefur
raunar verið það lánsamur að
demókratar hafa hingað til
haft stjórn á öldungadeild
þingsins og því hefur hann
minna þurft að skipta sér af
lagasetningu en ella. Hins
vegar er búist við að þeim
muni fjölga ört lagafrumvörp-
unum sem forsetinn muni
synja á næstunni á meðan
þingið, sem nú er á valdi repú-
blikana, býr sig undir frekari
átök við forsetann.
Að þessu sinni voru það
átök um umdeilda olíuleiðslu
sem fengu forsetann til þess
að grípa til neitunarvaldsins,
en leiðslan, sem gengur undir
nafninu Keystone XL, hefur
nú verið á döfinni í nærri því
sex ár. Stuðningsmenn fram-
kvæmdarinnar segja að hún
muni hjálpa til við að gera
Bandaríkin óháðari öðrum um
olíuframleiðslu, auk þess sem
fjöldi starfa muni skapast,
verði hún að veruleika. And-
stæðingar segja aftur á móti
að verði af leiðslunni muni
hún auka á losun gróðurhúsa-
lofttegunda og valda um-
hverfinu margvíslegum
skaða.
Forsetinn hefur hingað til
ekki viljað tjá sig um deil-
urnar, en bar fyrir sig að
framkvæmdin, líkt og þingið
hafði samþykkt hana, bryti í
bága við venjulegar leyfis-
veitingar í þessum efnum, og
að því væri ekki hægt að stað-
festa lögin. Leið-
togar repúblikana
á þingi hafa hins
vegar hótað því að
þeir muni nýta sér
heimildir sínar til
þess að hengja
framkvæmdina við aðra laga-
setningu, þannig að forsetinn
geti ekki hafnað henni öðru
sinni.
Búast má við fleiri slíkum
málum það sem eftir lifir af
kjörtímabili Obama. Fram-
undan eru erfið deiluefni um
innflytjendamál, heilbrigð-
iskerfið, þjóðaröryggi og
samninga við Írani, svo nokk-
ur dæmi séu nefnd, þar sem
þingið og forsetinn eru alls
ekki sammála um réttar leið-
ir.
Þá má einnig gera ráð fyrir
að deilur um fjárveitingar rík-
isins, sem forsetinn leggur til
en þingið þarf að samþykkja,
muni verða mun algengari nú
en áður. Nýjasta dæmið þar
um er að landamæragæsla
Bandaríkjanna var sett í upp-
nám í lok vikunnar þegar fjár-
veiting fékkst ekki samþykkt.
Á næsta ári verður kosið
um eftirmann Obama og mun
það ýta undir ósættið enda
keppast stóru flokkarnir við
að reyna að láta andstæðing-
inn líta illa út. Báðir aðilar
verða þó jafnframt varir um
sig, þar sem kannanir benda
til að almenningur í Banda-
ríkjunum kunni illa við það
þegar deilur í stjórnkerfinu
fara úr böndunum. Það má því
gera ráð fyrir að næstu tutt-
ugu mánuðina verði stiginn
sérkennilegur jafnvægisdans
í bandarískum stjórnmálum,
þar sem deilur verða harðar
en jafnframt lögð áhersla á að
velta ábyrgðinni á deilunum
yfir á pólitíska andstæðing-
inn.
Átökin á milli
Obama og nýja
þingsins eru að
hefjast fyrir alvöru}
Fyrstu skotin
Hafrann-sóknastofn-
un hefur, líkt og
margar aðrar
stofnanir og fyr-
irtæki á nýliðnum
árum, gengið í gegnum nið-
urskurð. Í ár hefur fjárhagur
stofnunarinnar verið styrktur
og rannsóknir hafa aukast til
muna, ekki síst með verulegri
fjölgun daga rannsókn-
arskipa stofnunarinnar á sjó.
Sjávarútvegurinn er helsta
undirstöðuatvinnugrein þjóð-
arinnar og gríðarlega mik-
ilvægt er að allt umhverfi
hans sé sem best. Rekstr-
arumhverfi og lagarammi
þurfa að vera til
fyrirmyndar og
hið sama er að
segja um rann-
sóknir á fiski-
stofnunum. Af
þeim sökum er aukið úthald
rannsóknarskipa í ár ánægju-
efni, en um leið er áhyggju-
efni að útlit skuli vera fyrir
samdrátt á næsta ári, eins og
fram kemur í samtali Morg-
unblaðsins við forstjóra Haf-
rannsóknastofnunar í gær.
Gífurlegir hagsmunir eru
fólgnir í traustri þekkingu á
lífríkinu umhverfis landið og
þess vegna má ekki slá slöku
við í eflingu hafrannsókna.
Haldgóð þekking á
undirstöðum þjóð-
arbúsins er nauðsyn}
Mikilvægi hafrannsókna A
llsherjarnefnd greiddi í gærmorgun
atkvæði um áfengisfrumvarpið
svonefnda, og frjálslyndi varð ofan
á í nefndinni, því frumvarpið fer nú
til annarrar umræðu í þinginu.
Frumvarpið, þótt mörgum þyki ómerkilegt og
ekki forgangsmál á Íslandi – við megum ekki
gleyma að hér varð hrun – hefur þegar haft
meiri afleiðingar en nokkurn hefði grunað.
Margir þingmanna Framsóknarflokksins
leggjast gegn frumvarpinu, nokkuð sem eldri
flokkssystkini þeirra sem leyfðu bjórinn 1989
kunna örugglega ekki að meta. Þingmenn og
flokkar, sem markaðssettu sig sem frjálslynda,
kúl, sjálfbæra og gegnsæja þegar kosið var fyrir
tveimur árum, hafa verið svældir út og látnir
gangast við eigin afturhaldi.
Þannig ætlaði allt um koll að keyra á Twitter, þegar þing-
maður Bjartrar framtíðar ákvað að sitja hjá þegar afgreiða
átti málið úr nefnd fyrir nokkru, með þeim afleiðingum að
frumvarpið hefði dagað uppi í nefndinni.
Frjálslynt ungt fólk, margt hvert kjósendur Bjartrar
framtíðar, reis upp á afturlappirnar og benti á þann óskilj-
anlega tvískinnung sem flokkurinn stæði fyrir.
Greinarhöfundur tekur heilshugar undir með þessum
gagnrýnendum, því það eina sem er verra en andstaða við
frjálslyndi er að þykjast aðhyllast frjálslyndi á atkvæðaveið-
um, en vera í raun argasta afturhald.
Samfylkingin er að sama skapi í hrópandi þversögn við
sjálfa sig í málinu. Á þingi eru fúlir forræðishyggjupostular,
sem sjá rautt, eða gyllt og hvítt eftir því hvernig
kjóllinn er á litinn, þegar þeim býðst að auka
verslunarfrelsi almennings. Látum liggja á milli
hluta hvað það er stórfurðulegt í ljósi þess að
flokkurinn er á mörkunum að vera einsmáls-
flokkur um Evrópusambandið, sem hefur það
meðal annars að leiðarljósi að auka versl-
unarfrelsi.
Helsta áherslumál Samfylkingarinnar í borg-
arstjórn Reykjavíkur, nýtt aðalskipulag, sem
stefnir að því að auka hlut gangandi, hjólandi og
almenningssamgangna, stefna sem undirrit-
aður er í grundvallaratriðum algjörlega sam-
mála, gengur hins vegar þvert gegn afturhalds-
stefnu flokksins á þingi. Það gæti kannski
útskýrt muninn á gengi flokksins í borg-
arstjórnar- og þingkosningum.
Ég ákvað fyrir rúmu ári að kveðja einkabílinn og ganga,
hjóla og taka strætó. Ferðalagið í vinnuna er að vísu nánast
tvöfalt lengra en áður, úr gamla Vesturbænum í Hádegis-
móa. Sparnaðurinn af bílleysinu er hins vegar slíkur að
tímakaupið þann tíma sem ég er lengur á ferðinni er nærri
10.000 krónum. Ekki slæmt það. En þegar heim er komið,
eftir hefðbundinn vinnudag og viðkomu í Mjölni til að berja
púða og sveifla bjöllum, þá er klukkan orðin 18:00. Eftir
klukkan 18:00, og bjórþurrkur skekur heimilið, er næsta
opna Vínbúð frá heimilinu í Skeifunni, í 5 og hálfs kílómetra
fjarlægð, talsvert lengra en Kjötborg, Pétursbúð og Mela-
búðin. Þá væri nú gott að vera á bíl.
gunnardofri@mbl.is
Gunnar Dofri
Pistill
Vertu bíllaus, en samt helst á bíl
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Óheimilt er að auglýsa áfengi
á Íslandi. Í áfengislögunum frá
1998 segir orðrétt í 20. grein:
„Hvers konar auglýsingar á
áfengi og einstökum áfengis-
tegundum eru bannaðar. Enn
fremur er bannað að sýna
neyslu eða hvers konar aðra
meðferð áfengis í auglýsingum
eða upplýsingum um annars
konar vöru eða þjónustu.“
Hins vegar stendur þar
einnig að „framleiðanda sem
auk áfengis framleiðir aðrar
drykkjarvörur [sé] heimilt að
nota firmanafn eða merki í
tengslum við auglýsingu
þeirra drykkja“. Hefur mörgum
þótt auglýsendur hafa nýtt sér
síðari klausuna til þess að
auglýsa bjór undir yfirskini
léttöls.
Styrkleiki léttöls er sem
kunnugt er 2,25% af rúmmáli.
Ósjaldan er tilgreint með
smáu letri í auglýsingum að
um léttöl en ekki bjór sé að
ræða.
Bannaðar
á Íslandi
ÁFENGISAUGLÝSINGAR