Morgunblaðið - 28.02.2015, Page 34

Morgunblaðið - 28.02.2015, Page 34
: –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 2. mars. SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 6. mars FERMINGAR Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. Kristján Már Gunn- arsson, Rkl. Selfoss. Sigurrós Þorgríms- dóttir, Rkl. Borgum Kópavogi. Tryggvi Pálsson, Rkl. Reykjavík Aust- urbær, umdæmisstjóri 2011-2012. Varamenn í stjórn eru: Hanna María Sig- geirsdóttir, Rkl. Reykjavík miðborg. Margrét Friðriks- dóttir, umdæmisstjóri 2010-2011. Sú hefð hefur skapast að veita við- urkenningar til aðila á félagasvæði þess Rótarýklúbbs sem heldur hið ár- lega umdæmisþing rótarý, nú síðast Rótarýklúbbsins Görðum, Garðabæ, sem hélt umdæmisþingið dagana 10. og 11. október 2014, en þá voru við- urkenningar veittar tveim stofnunum í Garðabæ: a). Klifið – skapandi fræðslusetur fékk viðurkenningu fyrir framúrskar- andi og nýstárlegt framtak á sviði mennta og samfélagsverkefna. Klifið – skapandi fræðslusetur hefur það markmið að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi námskeið. Klifið leggur sig fram við að bjóða upp á fræðslu við hæfi ólíkra hópa, fræðslu sem vekur áhuga og auðgar líf fólks á öllum aldri. b). Hönnunarsafn Íslands fékk við- urkenningu fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði lista og at- vinnumála. Árið 2009 var safninu val- inn staður við Garðatorg í Garðabæ. Safnið gegnir í dag mikilvægu hlut- verki í listalífi Garðabæjar og landsins alls. Helstu markmið safnsins eru að safna hönnunargripum og varðveita þá sem marktækan vitnisburð um ís- lenska hönnunar- og listhandverks- sögu og verða leiðandi stofnun á því sviði. Ennfremur að miðla íslenskri og erlendri hönnunarsögu með sýn- ingum, útgáfum og fræðslu fyrir al- menning. Starfsárið 2013 til 2014 var um- dæmisþingið haldið á Selfossi dagana 11. og 12. október 2013, af Rót- arýklúbbi Selfoss. Þá hlutu eftirtaldir aðilar viðurkenningar: a). Sæbýli ehf. á Eyrarbakka, fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði vísinda Verðlauna- og styrkt- arsjóður Rótarý á Ís- landi er eign Rótarý- umdæmisins á Íslandi. En eitt af mörgum markmiðum Rótarý- umdæmisins á Íslandi er að láta samfélagið hér á landi njóta góðs af starfi Rótarýhreyfingarinnar og þar með varpa ljósi á markmið Rótarýstarfs- ins. Tilgangur sjóðsins er að veita ár- lega viðurkenningar fyrir framúrskar- andi eða nýstárlegt framtak, sem unnið er í umdæminu á sviði mennta, lista, vísinda eða atvinnumála, og að styðja samfélagsverkefni hérlendis eða erlendis, m.a. í samstarfi við önn- ur Rótarýumdæmi og/eða Al- þjóðahreyfingu Rótarý. Sjóðurinn var stofnaður 1. júlí 2007 með samruna við Starfsgreinasjóð Rótarý á Íslandi en sá sjóður var stofnaður í tilefni af 50 ára afmæli Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi, 13. september 1984. Einnig runnu á sama tíma til sjóðsins eignir styrktarsjóðs umdæmisins, sem til varð í tilefni af 100 ára afmælis Alþjóðahreyfingar Rótarý, 23. febrúar 2005. Þrátt fyrir mikil fjárhagsleg áföll árið 2008 hefur Rótarýumdæmið á Íslandi lagt metn- að og fjármagn í að endurreisa sjóð- inn og tryggja þar með markmið sjóðsins samkvæmt skipulagsskrá. Sjóðurinn er í dag sjálfbær og stend- ur undir árlegum framlögum til þeirra sem viðurkenningar fá. Stjórn sjóðsins skipa fimm menn og tveir til vara. Þeir eru skipaðir af umdæmisstjóra að höfðu samráði við umdæmisráð til fimm ára þannig að árlega gengur einn úr stjórn. Enginn situr lengur í stjórn en fimm ár í senn og er þar með tryggt að sem flestir Rótarýfélagar fái tækifæri til að taka þátt í þessu gefandi og lærdómsríka verkefni, en Rótarýstarfið er fjöl- breytt, fræðandi og öllum til góðs. Stjórn Verðlauna- og styrktarsjóðs Rótarý á Íslandi starfsárið 2014-2015 skipa: Jón B. Guðnason formaður, Rkl. Keflavíkur. Gunnar Einarsson, Rkl. Görðum. og atvinnumála. Sæbýli var þá að hefja framleiðslu á sæeyrum og sæ- bjúgum til útflutnings og nýtir til þess íslenskt hugvit, heitt vatn og hreinan sjó. b). Fengur ehf. í Hveragerði, fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði atvinnu- mála. Auk annarra verkefna endur- vinnur Fengur spón fyrir íslenskan landbúnað og nýtir til þess íslenskt hugvit, timburúrgang og vistvæna orku. c). Fjölbrautaskóli Suðurlands, sem fékk viðurkenningu fyrir framúrskar- andi og nýstárlegt framtak á sviði mennta og samfélagsverkefna þ.e. menntunar vistmanna á Litla-Hrauni og Sogni með það að markmiði að skila þeim aftur sem betri borgurum til samfélagsins. Starfsárið 2012 til 2013 var um- dæmisþingið haldið á Ísafirði dagana 14. og 15. september 2012, þá af Rót- arýklúbbi Ísafjarðar. Þá voru veittar viðurkenningar til tveggja nýsköp- unarfyrirtækja, þ.e. Fossadals ehf. og Skútusiglinga. Árlega metur sjóðsstjórnin allar til- lögur sem fram koma um fram- bærilega styrkþega. Næsta verkefni sjóðsins er á félagasvæði Rót- arýklúbbs Borgarness en víst er að þar er fjöldi frambærilegra aðila sem vinna framúrskarandi og/eða nýstár- legt framtak á sviði mennta, lista, vís- inda og atvinnumála, og áhugaverð samfélagsverkefni til viðbótar. Fyrir okkur Rótarýfélaga er það ómetanlegur lærdómur að fá að taka þátt í störfum sjóðsins, starfa með fé- lögum úr öðrum klúbbum og öðrum starfsgreinum og kynnast öllum þeim hæfu aðilum sem árlega koma til greina sem viðtakendur viðurkenn- inga og styrkja. Eftir Jón Björgvin Guðnason » Árlega metur sjóðs- stjórnin allar til- lögur sem fram koma um frambærilega styrkþega. Jón Björgvin Guðnason Höfundur er formaður stjórnar Verð- launa- og styrktarsjóðs Rótarý á Ís- landi, félagi í Rótarýklúbbi Keflavík- ur, Reykjanesbæ. Verðlauna- og styrktarsjóður Rótarý á Íslandi 34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015 CFMOTO FJÓRHJÓL Nítró sport / Kirkjulundi 17 210 Garðabæ / Sími 557 4848 www.nitro.is Fáum einnig 500 og 600 cc hjól. Gæðahjól á góðu verði. CFORCE 800 V-tvin 8 ventla mótor, EFI, spil, rafmagnstýri, sætisbak, dráttarkúla gasdemparar ofl. Ný sending af þessum frábæru hjólum væntanleg. Tryggðu þér eintak áður en allt klárast! CFMOTO UFORCE 800 Vinnubíll … og æskan rósa- beður, segir mál- tækið. Það verður hlutskipti flestra að eldast og þjóðin eld- ist hratt. Stefna stjórnvalda er sú að fólk geti búið eins lengi heima hjá sér og mögulegt er og áherslan hefur því verið lögð á aukna heimaþjónustu. En sumir þurfa meiri umönnun og geta ekki verið heima hjá sér af ýmsum orsökum. Fjármagn nýtt í annað Í hinum fullkomna heimi ættu allir aldraðir að fá pláss á hjúkr- unarheimili um leið og þörf er á, en svo er ekki. Fjöldi aldraðra ætti þó ekki að koma okkur á óvart. Hlutverk Framkvæmda- sjóðs aldraðra er að byggja upp hjúkrunarrými en í þrengingum síðari ára hefur fjármagnið verið nýtt til reksturs hjúkrunarheimila og viðhalds. Við stöndum því frammi fyrir fjárskorti og það blasir við að við þurfum að fara að gera langtímaáætlanir varðandi uppbyggingu, til a.m.k. 20 ára. Fjölga rýmum Nú er unnið að grófri fram- kvæmdaáætlun um bygging- arframkvæmdir öldrunarstofnana til næstu fimm ára. Þeirri vinnu ætti að ljúka fljótlega. Ljóst er að bæði er þörf á fjölgun hjúkr- unarrýma og end- urbótum á þeim rým- um sem fyrir eru til að mæta þeim við- viðum um aðbúnað sem þörf er talin á í dag. Fleiri krónur Ríkisstjórnin bætti í hvað varðar úthlutun fjármagns til hjúkr- unarheimila á fjárlögum 2015, en betur má ef duga skal. Nú verða 200 millj. kr. veittar aukalega í hjúkrunarrými. Um er að ræða verulega fjölgun rýma í öllum heil- brigðisumdæmum sem kemur til móts við þá gríðarlegu þörf sem safnast hefur upp undanfarin ár. Á árinu verður 50 milljónum kr. varið til að bæta stöðu minni hjúkrunarheimila. Um er að ræða heimili með 20 eða færri hjúkr- unarrými. Langflest þeirra eru á landsbyggðinni og mörg þeirra hafa átt í miklum rekstrarvanda. 50 milljónum kr. verður varið aukalega á árinu í heimahjúkrun fyrir fólk sem komið er með gilt færni- og heilsumat og bíður þess að komast á hjúkrunarheimili. Um er að ræða tilraunaverkefni með það að markmiði að fólk geti sem lengst búið heima. Þó að menn greini á um ým- islegt getum við örugglega verið sammála um mikilvægi þess að bæta aðbúnað aldraðra. Fækkum þyrnunum. Ellin er þyrnikóróna Eftir Silju Dögg Gunnarsdóttur Silja Dögg Gunnarsdóttir » Þó að menn greini á um ýmislegt getum við örugglega verið sammála um mikilvægi þess að bæta aðbúnað aldraðra. Fækkum þyrnunum. Höfundur er þingmaður Framsókn- arflokksins. – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.