Morgunblaðið - 28.02.2015, Síða 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015
Rótarýhreyfingin
var stofnuð 23. febr-
úar 1905 í Chicago í
Bandaríkjunum af
lögfræðingi, Paul
Harris að nafni. Á
fyrsta fundinum sem
Paul Harris boðaði til
mættu auk hans þrír
menn: Silvester
Schiele, kola-
kaupmaður, Gustavus
E. Loehr, námaverkfræðingur, og
Hiram E. Shorey, fatakaupmaður
og klæðskeri. Sjálfur var Paul
Harris lögfræðingur, svo að segja
nýfluttur til stórborgarinnar og
honum fannst hann vera helst til
einangraður og vinafár.
Þessir fjórir fundarmenn voru af
mismunandi bergi brotnir, af
sænskum, þýskum, írskum og
gyðingaættum komnir og trúar-
brögð þeirra voru einnig ólík. Þeir
voru því sannir fulltrúar þeirrar
þjóðablöndu sem óx og dafnaði í
Bandaríkjunum og raunar einnig
þeirrar alheimshreyfingar sem
spratt upp af þessu framtaki
þeirra.
Fljótlega bættist fimmti félaginn
við, Harry Ruggles prentari, og þá
var fyrsti Rótarýklúbburinn form-
lega stofnaður, Rótarýklúbbur
Chicago-borgar. Nafnið er þannig
til komið að þeir félagar komu sér
saman um að halda fundi á skrif-
stofum sínum á víxl og breyta
þannig til vikulega. (Rotate = snú-
ast, skiptast á. Rotary = það sem
snýst eða hverfist.)
Fyrsti Rótarýklúbburinn hér á
landi var stofnaður í Reykjavík 13.
september árið 1934, Rót-
arýklúbbur Reykjavíkur. Það voru
Rótarýfélagar í Kaupmannahöfn
sem beittu sér fyrir stofnun
klúbbsins og komu hingað til lands
til skrafs og ráðagerða við líklega
forustumenn, einkum þá Ludvig
Storr, ræðismann og stórkaup-
mann, og Knud Zimsen, fyrrver-
andi borgarstjóra. Hann varð
fyrsti forseti hins nýstofnaða
klúbbs. Stofnendur voru 23.
Á næstu árum beittu
Rótarýfélagar í Reykjavík-
urklúbbnum sér fyrir stofnun
klúbba á Ísafirði og Siglufirði
1937, á Akureyri 1939, á Húsavík
1940 og í Keflavík
1945.
Núna er heild-
arfjöldi félaga í Rót-
arý um 1,2 milljónir í
34.000 Rótarýklúbbum
í rúmlega 200 löndum.
Á Íslandi eru um
1.200 Rótarýfélagar í
30 klúbbum um allt
land.
Rótarý eru fremstu
mannúðar- og þjón-
ustusamtök í heimi.
Við erum fjölbreytt,
alþjóðlegt samfélag félaga sem
koma úr forystu ýmissa starfs-
greina og beita sér fyrir betra lífi,
góðvild og friði, í heimalandi og er-
lendis. Við vinnum með Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni (WHO),
UNICEF, heilbrigðisyfirvöldum,
Bill & Melinda Gates-sjóðnum og
ríkisstjórnum til að vinna að út-
rýmingu lömunarveiki um heim
allan, en það er eitt fjölmargra al-
þjóðlegra stórverkefna Rót-
arýhreyfingarinnar (PolioPlus).
Við einbeitum okkur einnig að
ýmsum verkefnum á sviði þjónustu
eins og:
·- Friði og úrlausn ágreinings-
efna
·- Forvörnum sjúkdóma og með-
ferð
·- Öflun drykkjarvatns og hrein-
læti
·- Heilbrigði mæðra og barna
·- Grunnmenntun og læsi
·- Efnahags- og samfélagsþróun
Rótarý veitir einnig
námsmannastyrki eða Gerorgíu-
styrkinn og styrk til náms í frið-
arfræðum. Æskulýðsstarf er mikið
í Rótarý en skiptinemar fara til út-
landa og koma til Íslands á vegum
Rótarý. Einnig fara ungmenni í
sumarbúðir á hverju sumri.
Rótarýklúbbar á Íslandi standa
að ýmsum verkefnum í nærsam-
félaginu. Verkefnin eru mörg og
margvísleg en hér ná nefna hvatn-
ingarverðlaun til útskriftarnema,
skógrækt, hreinsun svæða, styrki
til líknarmála, stuðning við hjúkr-
unar- og elliheimili, stígagerð,
styrki til ungra tónlistarnema og
atvinnugreinakynningu.
Rótarýdagurinn hefur verið
haldinn víða um heim undanfarin
ár. Hvert land ákveður hvaða dag-
ur er valinn. Við á Íslandi höfum
ákveðið að Rótarýdagurinn í ár
verði í dag, 28. febrúar. Í dag
munu Rótarýklúbbar um allt land
gera Rótarý sýnilegra og kynna
verkefnin sem hver klúbbur er að
fást við.
Fjórprófið okkar lýsir vel hvern-
ig við Rótarýfélagar vegum og
metum gjörðir okkar:
Er það satt og rétt?
Er það drengilegt?
Eykur það velvild og vinarhug?
Er það öllum til góðs?
Þessi lýsing á Rótarýfélags-
skapnum varpar vonandi einhverju
ljósi á hvað við stöndum fyrir. Rót-
arý rekur Rótarýsjóðinn (Rotary
Foundation) en sjóðurinn er kjarn-
inn sem gerir hreyfingunni kleift
að starfa að mörgum alþjóðaverk-
efnum. Sjóðurinn hefur fengið
verðlaun fyrir hversu vel hann er
rekinn og að nálægt 100% af því
sem fer í hann kemst á rétta staði.
Vonandi kveikir þessi stutti pist-
ill áhuga á Rótarý, því við viljum
gjarnan fjölga félögum og breiða
út allt það góða sem hreyfingin
stendur fyrir.
Rótarý er gríðarlega skemmti-
legur félagsskapur og reynir af
fremsta marki að vera bakhjarl
góðra verka. Það gerir okkur að
betri manneskjum og veitir lífsfyll-
ingu. Við víkkum líka sjóndeild-
arhringinn og fræðumst á hverjum
fundi.
Verið velkomin þar sem Rótarý-
félagar eru að kynna störf sín í
dag
Við erum á: Facebook, Twitter
og Youtube. Kynnið ykkur heima-
síðurnar rotary.is og rotary.org.
Rótarýdagurinn á Íslandi er í dag
Eftir Guðbjörgu
Alfreðsdóttur »Núna er heildarfjöldi
félaga í Rótarý um
1,2 milljónir
Guðbjörg Alfreðsdóttir
Höfundur er umdæmisstjóri Rótarý á
Íslandi.
Morgunblaðið/Ómar
Jökulsárlón Hér ríkir kyrrðin ein.
Nokkuð hefur verið rætt um
hryðjuverkahættuna nú und-
anfarið í tengslum við hryðju-
verkaárásir í París og Kaup-
mannahöfn. Ég held að það væri
barnalegt af okkur Íslendingum
að telja að við værum undanskilin
hryðjuverkahættunni vegna land-
fræðilegrar fjarlægðar okkar frá
meginlandi Evrópu. Noregur er
ekki langt frá okkur og þar voru
framin skelfileg hryðjuverk fyrir
nokkrum árum. Ég held því miður
að það sé aðeins spurning um tíma
hvenær hryðjuverkamenn láta til
skarar skríða á Íslandi. Þá skiptir
miklu máli að yfirvöld séu vel í
stakk búin til að bregðast við þeim
vanda og taka á honum. Ég tel
mikilvægt að lögreglan fái for-
virkar rannsóknarheimildir til að
bregðast við hugsanlegum hryðju-
verkum hér á landi. En einhver
eftirlitsaðili þyrfti að fylgjast með
að þeim yrði beitt af hófsemi.
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hryðjuverkaógn
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Karlakórinn Heimir
TÓNLEIKAR
Langholtskirkja
laugardaginn 14.mars kl.14 og 17.
Forsala á midi.is
Einsöngur: Ari Jóhann Sigurðsson.
Sérstakur gestur okkar á tónleikunum
verðurGraduale Nobili,
undir stjórn Jóns Stefánssonar.
www.heimir.is