Morgunblaðið - 28.02.2015, Side 50

Morgunblaðið - 28.02.2015, Side 50
50 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015 JVigfús Adolfsson er staddur í Austurríki, nánar tiltekið í St.Michael sem er fyrir sunnan Salzburg, í skíðaferð á afmælis-daginn, ásamt foreldrum sínum og eiginkonu. „Við hjónin eig- um bæði afmæli í ferðinni, fórum út í dag og komum heim daginn sem konan á afmæli.“ Hún heitir Karen Lilja Hafsteinsdóttir og vinnur á skrifstofunni hjá Olís. Börn þeirra eru Máni Freyr, fimm ára, og Aría Sól, tveggja, að verða þriggja ára. Foreldrar Vigfúsar eru Adolf Adolfsson og Júlía Henningsdóttir. „Þetta er í fyrsta sinn sem við förum til Austurríkis og ég hef ekki mikið verið á skíðum undanfarið, var miklu meira á skíðum þegar ég var yngri.“ Vigfús er afgreiðslustjóri hjá Reykjafelli en kjarnastarfsemi þess er innflutningur og heildsala á rafbúnaði og starfar Reykjafell fyrst og fremst á fyrirtækjamarkaði. Spurður um áhugamál segist Vigfús hafa áhuga á fótbolta, golfi og að spila á gítar. „Ég er nú bara að glamra fyrir sjálfan mig og finn mér eitthvað á netinu til að spila. Metallica hefur alltaf verið í uppáhaldi og ég reyni að spila eitthvað eftir þá en hæfileikarnir eru ekki jafn miklir og viljinn. Svo er ég að byrja aftur í golfi eftir smá- hlé þegar við eignuðumst krakkana. Ég spila síðan fótbolta í utan- deildinni og sjö manna boltanum í gulldeildinni, spila með FC Bumba, stórveldinu sjálfu. Ég lék með FH alla yngri flokkana og fylgist með íslenska boltanum og þeim enska. Þar er Tottenham mitt lið og ég reyni alltaf að fara á leik með þeim á tímabili. Henný systir mín býr í London og það kemur sér vel.“ Vigfús Adolfsson er þrítugur í dag Fótboltakappi Vigfús í mýrarboltanum á Vestfjörðum árið 2013. Heldur upp á afmælið á skíðum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Kópavogi Oliver Leo Davíðsson fæddist 27. október 2014 kl. 06.51. Hann var 3.238 g og 49 cm langur. Foreldrar hans eru Íris Martens- dóttir og Davíð Krist- jánsson. Nýr borgari M aría Hrund Marinósdóttir er fædd í Reykjavík 28. febrúar 1975. Fyrstu fjögur ár ævinnar bjó hún við Fornhaga en á fimmta ári fluttist hún á æsku- heimili móður sinnar að Vest- urgötu 19. María er Vesturbæingur í húð og hár og gekk í Vesturbæjarskóla, Melaskóla og Hagaskóla í æsku. Þar eignaðist hún sína kærustu vini og hefur þeirra vinskapur æ síðan verið í blóma. Virk í félagsmálum María Hrund á ljúfar minningar úr uppvextinum. „Ég á einstaka foreldra og bjó við þau forréttindi að koma úr skólanum hvern dag til mömmu sem beið mín heima. Í Vesturbænum var skemmtilegt að alast upp og var ýmislegt brallað. Ég hef alltaf verið virk í félags- málum og tekið þátt í ýmsu. Skát- arnir standa þar upp úr, enda frá- bær félagsskapur. Ég tel að starfið hafi mótaði mig umtalsvert í æsku, til dæmis hvað varðar sjálfsbjargarviðleitni og ábyrgð. Það tekur því ekki að tiltaka allt það sem ég heillaðist af, lagði stund á eða reyndi við með misgóð- um árangri en ég er þannig gerð að vera yfirleitt til í allt, enda hefur mér aldrei leiðst á ævi minni.“ María Hrund Marinósdóttir, markaðsstjóri hjá VÍS – 40 ára Á Rauðasandi Fjölskyldan á sunnanverðum Vestfjörðum í ágúst 2013, en hún er dugleg að ferðast um landið. Aldrei leiðst á ævinni Fjölskyldan Stödd á Snæfellsnesi árið 2013. Afmælisbarnið María. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 - FLOTTU SVEFNSÓFANIR FÁST HJÁ OKKUR Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.