Morgunblaðið - 28.02.2015, Side 51
Á menntaskólaárum fetaði María
Hrund í fótspor föður síns, fluttist
til Akureyrar og tók stúdentspróf
frá Menntaskólanum á Akureyri.
„Þetta var nokkuð óvænt útspil frá
borgarbúanum, en ég hef aldrei séð
eftir þessari ákvörðun. Ég á mjög
góðar minningar frá mennta-
skólaárunum fyrir norðan. Því er
kannski best lýst svo að þar hafi
gleðin verið við völd. Það var
skemmtileg áskorun að flytja úr
foreldrahúsum en um leið mikið
frelsi fyrir unga konu.
Leiðir okkar Finns Beck, eigin-
manns míns, lágu saman í Háskóla
Íslands en þar vorum við bæði við
nám í stjórnmálafræði. Við eigum
að baki 17 ár í sambúð og hjóna-
band og eru börnin þrjú okkar
stærsta afrek, þau eru uppspretta
endalausrar ánægju og þakklætis.“
Allt frá útskrift úr Háskólanum
árið 2001 hefur María starfað á
sviði markaðsmála. „Þetta er
margbreytilegt starfssvið og er ég
sífellt að kljást við nýjar og spenn-
andi áskoranir,“ segir María
Hrund sem hefur starfað hjá VÍS
sem markaðsstjóri frá árinu 2007.
María á sér fjölmörg áhugamál.
Má þar nefna eldamennsku, kór-
söng, hannyrðir, skotveiði, líkams-
rækt, blak og fjallgöngur. „Ég
heillast af fegurð hlutanna, litum,
hönnun og tísku. En það sem
stendur upp úr og gefur mér mest
er opið og skemmtilegt fólk og
nærandi samverustundir.“
Fjölskylda
Eiginmaður Maríu er Finnur
Beck, 15.6. 1975, lögmaður hjá
Landslögum. Foreldrar hans eru
Lilja Guðný Guðmundsdóttir, f.
14.10 1955, sjúkraliði og Páll Emil
Beck, 21,11. 1954, byggingameist-
ari, bús. í Kópavogi.
Börn Maríu og Finns eru Matt-
hildur Beck, f. 1.11. 2006, Jakob
Beck, f. 31.7. 2008 og Anna Mar-
grét Beck, f. 17.12. 2012.
Systkini Maríu eru Hrönn Mar-
inósdóttir, f. 15.5, 1965, framkv.stj.
RIFF - Alþjóðlegrar kvikmynda-
hátíðar í Reykjavík; Anna Margrét
Marinósdóttir, f. 4.10. 1967, útgef-
andi hjá Sögum útgáfu, og Ingvar
Marinósson, f. 10.10. 1957, sjómað-
ur á Akureyri.
Foreldrar Maríu eru Marinó
Þorsteinsson, f. 5. júní 1938 á
Akureyri, viðskiptafræðingur í
Reykjavík, og Anna Garðarsdóttir,
f. 23. nóvember 1939 í Reykjavík,
húsfreyja og fv. bankaritari.
Úr frændgarði Maríu Hrundar Marinósdóttur
María Hrund
Marinósdóttir
Sigurður Jónsson
bóndi áYsta-Mó
Sigríður Jónsdóttir.
húsfreyja á Ysta-Mó í Fljótum
Þorsteinn Sigurðsson
vélstjóri á Akureyri
Margrét Ingibjörg Jónsdóttir
húsfr. á Akureyri, síðar í
Reykjavík
Marinó Þorsteinsson
viðskiptafræðingur í
Reykjavík
Jón Magnússon
skósmiður og síðar vélstjóri á
Akureyri og í Rvík
Margrét Jónsdóttir.
húsfreyja á Uppsölum í Eyjafirði
María Guðrún Guðjónsdóttir
húsmóðir á Svínárnesi á Látraströnd
María Guðrún Guðjónsdóttir
húsmóðir á Svínárnesi á
Látraströnd
Garðar Þorsteinsson
hrl. og alþingismaður í Reykjavík
Anna Pálsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Anna Garðarsdóttir
fv. bankaritari og húsfr. í
Reykjavík
Páll Hallgrímsson
bóndi á Möðrufelli, ólst upp
hjá ömmu sinni, Rannveigu
Hallgrímsdóttur, sem bróðir
hennar, Jónas, orti um – Sáuð
þið hana systur mína
Guðný Kristjánsdóttir
húsfreyja á Möðrufelli í Eyjafirði
Mæðgurnar María og Anna að gróðursetja tré í skólaferðalagi árið 1980.
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015
Laugardagur
95 ára
Kristjana Jónsdóttir
90 ára
Marija Mitrofanova
85 ára
Gunnlaugur B. Óskarsson
Gunnlaugur Jónasson
Hjördís Kristjánsdóttir
Ingvi Þ. Þorsteinsson
80 ára
Anna Guðmunda
Andrésdóttir
75 ára
Birna Guðrún Ólafsdóttir
Kolbrún Jóhannesdóttir
70 ára
Garðar Eyland Bárðarson
Guðmundur Rúnar
Gestsson
Gunnar Jónsson
Hilmar Bjarnason
Sigríður Ólafsdóttir
Valborg Ísleifsdóttir
Þorgerður Benediktsdóttir
Þórður Þórðarson
60 ára
Aðalheiður G.
Kristjánsdóttir
Ágúst Þór Guðsteinsson
Árni Arnar Sigurpálsson
Bergur Jónsson
Finnbogi H. Theódórsson
Guðný Ingigerður
Pétursdóttir
Jóhanna Björk Helgadóttir
Jón Guðmundsson
Kristján Ásberg Reynisson
Líney Jósefsdóttir
Sævar Þorkell Jensson
Zofia Gutowska
Þórir Björn Kolbeinsson
50 ára
Auðunn Guðni Hjaltason
Friðþjófur A. Árnason
Guðbjartur J. Sævarsson
Guðjón Gunnarsson
Ingvar Árni Olsen
Ívar Már Jónsson
Jóhannes Ó. Ólafsson
Olga Vule
Ólafur Pétursson
Sigmundur V. Guðnason
Sigríður Ísaksdóttir
Victor Gunnarsson
Þórunn Hjartardóttir
40 ára
Arunas Sangavicius
Davíð G. Waage
Friðrik Sigurðsson
Inga Jokimciute
Jón Gunnar Erlingsson
Marika Alavere
Monika Sóley
Skarphéðinsdóttir
Sigurður Árni Waage
Súsanna Finnbogadóttir
Tryggvi Hjörvar
30 ára
Aðalsteinn G. Helgason
Giacomo Montanelli
Halldís Eva Ágústsdóttir
Hrafnkell Sighvatsson
Jón Sveinbjörn Jónsson
Mariusz Adam Cieslik
Ólafur Sveinn Haraldsson
Vigfús Adolfsson
Xabier Þór Tejero Landa
Xiao Tang
Sunnudagur
100 ára
Ásta Bryndís
Guðbjartsdóttir
90 ára
Sigríður Steinsdóttir
85 ára
Cheg Wushueng Ywrée
Jakob Helgason
Jón Einarsson
Sigríður Márusdóttir
Unnur Hannesdóttir
80 ára
Laufey Eysteinsdóttir
Svanur Halldórsson
Þóra Hjaltalín
75 ára
Guðni Steinar Gústafsson
Hallgrímur Bergsson
Hilmar Haraldsson
Hólmfríður
Kristmannsdóttir
Jónína M. Sigtryggsdóttir
70 ára
Ásta Þórey Ragnarsdóttir
Friðjón Guðmundsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Gunnar Ólafsson
Gunnbjörn Jensson
Halldóra Arthúrsdóttir
Hrólfur Smári Jónasson
Kristín Bergsteinsdóttir
Kristján Stefánsson
Margrét Tryggvadóttir
Margrét Þorláksdóttir
Sigríður Bjarnadóttir
Sigurður Ingi Tómasson
Snæbjörn Kristjánsson
60 ára
Albert Ingason
Björn Vilhjálmsson
Bryndís L. Siemsen
Gísli Ragnar Ragnarsson
Grétar Jóhannes
Sigvaldason
Guðmundur Vilhelmsson
Gunndís Rósa
Hafsteinsdóttir
Gunnhildur G.
Guðlaugsdóttir
Halldór S. Steingrímsson
Helga Stefánsdóttir
Kristjana Guðlaugsdóttir
Rafnkell Már Magnason
Salmann Tamimi
Steinunn Ásta
Guðmundsdóttir
Sævar Hreinn
Benediktsson
50 ára
Birna Jóna Magnúsdóttir
Björk Ágústsdóttir
Ele Malm
Fanney Sigurgeirsdóttir
Guðfinnur Jónsson
Guðmundur G. Sigurðsson
Guðmundur Jóhannes
Ólafsson
Hallveig Björk
Höskuldsdóttir
Jóhann Freyr Aðalsteinsson
Jón Hafberg Björnsson
Jón Ottó Gunnarsson
Margrét Davidsen
Margrét Halldórsdóttir
Páll Snævar Brynjarsson
Ragnhildur H Heiðberg
Þórey Hildur Heiðberg
40 ára
Ásta Þórisdóttir
Guðmundur Ingi Karlsson
Hlynur Ásgeirsson
Ingibjörg Arnh.
Halldórsdóttir
Júlíus Freyr Jónsson
Kristvina Gísladóttir
Laurens Bastiaan van der
Werff
Logi Ragnarsson
Telma Tryggvadóttir
30 ára
Gerður Jóhannesdóttir
Hildigunnur Sveinsdóttir
Hjörtur Brynjarsson
Ingólfur Steinar Pálsson
Marina Ravn Lind Pedersen
Ómar Ragnarsson
Phimsiri Krutkaew
Sjöfn Þórarinsdóttir
Vaka Dögg Björnsdóttir
Til hamingju með daginn
Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir hefur
varið doktorsritgerð sína við Félags-
ráðgjafardeild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin ber heitið „Quality of Life for
People with Mental Illness in a Chang-
ing Society Intra- and Inter-
institutional Effects on Psychiatric Re-
habilitation“ (Lífsgæði fólks með
geðrænan vanda í síbreytilegu sam-
félagi – Innri og ytri áhrif stofnana á
endurhæfingu).
Doktorsritgerðin byggist á fjórum
ritrýndum fræðigreinum sem eru birt-
ar í erlendum vísindatímaritum. Þar er
niðurstöðum rannsókna lýst í þeim til-
gangi að varpa ljósi á þá margþættu
erfiðleika sem geðræn veikindi valda
einstaklingum, fjölskyldum og sam-
félaginu í heild. Heilbrigði og þar með
geðheilbrigði er veigamikill þáttur í lífi
fólks og einn af hornsteinum lífsgæða
og velgengni. Hugmyndum um geð-
ræn veikindi er lýst í sögulegu og fé-
lagslegu samhengi og greint er frá
fræðilegum bakgrunni. Áhersla er lögð
á að viðhorf fólks
til endurhæfingar,
sem það hefur
fengið, komi skýrt
fram. Niðurstöður
benda til þess að
margir þættir geti
dregið úr mögu-
leikum á bata
þeirra sem eiga
við geðræna erfiðleika að etja. Of lítil
samvinna er milli stofnana svo og
þeirra sem koma að endurhæfingu.
Eftirfylgni eftir að bráðaveikindi eru
gengin yfir, er oft ónóg og vandinn
endurtekur sig. Þá kemur fram að
starfsfólk telur að endurhæfing skili
betri árangri en fólkið sem tekur við
þjónustunni telur sjálft. Heildræn sýn
yfir félagslegt umhverfi fólks er ekki
næg þegar unnið er að endurhæfingu
og starfsfólk hefur þess vegna iðulega
ekki næga innsýn í þarfir þeirra, sem á
þjónustu þurfa að halda. Þetta getur
valdið lakari lífsgæðum.
Sveinbjörg Júlía
Svavarsdóttir
Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir er fædd 1954 í Arnardal, en ólst upp í Reykjavík.
Hún var við nám við Lunds Universitet og lauk BA-prófi í þjóðfélagsfræði frá HÍ
1985, starfsréttindanámi í félagsráðgjöf frá HÍ 1988 og meistaraprófi (Master of
Science of Social Work) frá Göteborgs Universitet 2000. Sveinbjörg Júlía starf-
aði hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur, en lengst af við Landspítalann, þar af í
átta ár sem forstöðufélagsráðgjafi geðsviðs. Nú starfar hún m.a. við fræðslu,
rannsóknir og ráðgjöf hjá Meðferðar- og fræðslusetri Forvarna. Eiginmaður
hennar er Leifur Steinn Elísson, fil.kand. Börn þeirra eru, Elfa Dögg, Unnur
Mjöll, Sindri Snær og Silja Ýr. Barnabörnin eru orðin fimm talsins.
Doktor
Árin segja sitt1979-2014
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sýnum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
)553 1620
Verið velkominn