Morgunblaðið - 28.02.2015, Síða 55

Morgunblaðið - 28.02.2015, Síða 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2015 MSSS nefnist sýning Arnars Ómars- sonar sem opnuð verður í vestursal Listasafnsins á Akureyri í dag, laug- ardag, kl. 15. MSSS er skammstöfun fyrir Mega Space Super Station, en sýningin er upplifunarinnsetning þar sem lista- maðurinn leikur sér á mörkum skáld- skapar og vísinda. „Á sýningunni fjallar Arnar um samskipti tölvunnar við menn og horfir sérstaklega til mennskrar hliðar tölvunnar. Sú iðja kveikti áhuga hans á framtíðarspám og tengslunum milli vísindaskáld- skapar og geimvísinda. Þar liggur mikil og heillandi óvissa um framtíð- ina. Hvernig hefur vísindaskáld- skapur breytt viðhorfi okkar til vís- inda? Eru vísindaframfarir að einhverju leyti byggðar á vís- indaskáldskap? Þetta viðfangsefni er stútfullt af myndlíkingum, fallegu myndmáli og byggist á ríkri spá- dómsmenningu sem teygir sig ár- hundruð aftur í tímann,“ segir m.a. í tilkynningu. Arnar hefur starfað sem listamað- ur í Danmörku og á Íslandi frá því hann lauk námi í London 2011. Hann notar eðli mannsins sem viðfangsefni og vinnur með samband hans við um- hverfið í ýmsum myndum. Hann er annar skipuleggjenda Reita á Siglu- firði og rekur gestavinnustofu í Dan- mörku. MSSS lýkur 8. mars og er síðasta sýningin í röð átta vikulangra sýn- inga í vestursal Listasafnsins sem hófst 10. janúar sl. Fyrri sýnendur í röðinni eru Habby Osk, Brenton Al- exander Smith, Jóna Hlíf Halldórs- dóttir, Kristján Pétur Sigurðsson, Thora Karlsdottir, Joris Rademaker og Lárus H. List. Lokunarteiti MSSS fer fram laugardaginn 7. mars kl. 15. Mennskar hliðar tölvunnar til skoðunar á nýrri sýningu  Arnar Ómars- son sýnir í Lista- safninu á Akureyri Vísindi Eru vísindaframfarir að einhverju leyti byggðar á vísindaskáld- skap? er meðal þeirra spurninga sem Arnar Ómarsson spyr í sýningu sinni. Tvívængja / Abreast nefnist sýning eftir Unndór Egil Jónsson sem opnuð verður í Nýlistasafninu í dag milli kl. 16 og 18. Unndór er fæddur árið 1978 og býr og starfar í Reykjavík. Hann hlaut BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og meistaragráðu frá Va- land School of Art í Svíþjóð árið 2011. Unndór hefur á undaförnum árum sýnt jöfnum höndum á Íslandi og er- lendis, þar á meðal Momentum De- sign í Moss, Blokk, Göteborg Konst- hall, Listasafni ASÍ, Hafnarborg og Galleri Pictura. „Hugmyndafræði og viðfangsefni Unndórs hverfast um hið óumflýj- anlega samneyti manns við náttúru, nokkuð sem hefur verið mörgum listamönnum hugleikið í gegnum tíð- ina. Verk Unndórs varpa ljósi á og upphefja hið agnarsmáa (nánast ómerkilega) og leiða þannig huga áhorfandans að máltækinu „margt smátt gerir eitt stórt“ og að hver ein- staklingur sé fær um að leggja sitt af mörkum til náttúrunnar. Jafnvel þótt það sé agnarsmátt. Með þessu fylla verk listamannsins brjóst manns von um að eins manns endurvinnsla geri gagn og að nægjusemi og sjálfbærni séu raunsæ einstaklingsmarkmið,“ segir m.a. í tilkynningu. Sýningin stendur til 28. mars og er í verkefnarými safnsins í Völvufelli 13-21 í Breiðholti. Sýningin er hluti af sýningarröðinni Hringhiminn / Cyclorama sem er í umsjón stjórnar Nýló. Óumflýjanlegt samneyti manns við náttúru  Unndór Egill Jónsson sýnir í Nýlistasafninu Ljósmynd/Unndór Egill Jónsson Upphafning Verk Unndórs varpa ljósi á og upphefja hið agnarsmáa. Bestu lög Pet- ers Gabriels og Genesis verða flutt á tón- leikum í Há- skólabíói í kvöld kl. 19.30. Flytj- endur eru hljómsveitin Hátveiro sem skipuð er þeim Sigurði Guðna Karlssyni á trommur og slagverk, Birni Erlingssyni á bassa, Don Eddy á þverflautu, saxófón, gítar og hljómborð, Árna Steingrímssyni á gítar, Jósep Gíslasyni á píanó og hljómborð og Jóhanni Hjörleifssyni á trommur og slagverk. Söngvarar eru Þór Breiðfjörð, Jónína Aradótt- ir, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir og Bjarni Þór. Bestu lög Peters Gabriels og Genesis Þór Breiðfjörð Kvikmyndaverkið SUM eftir danska myndlist- armanninn Cai Ulrich von Platen verður frum- sýnt í Herðubreið, bíósal á morgun, sunnudag, kl. 16. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skaftfelli – myndlistarmiðstöð Austurlands. „Útgangspunktur SUM er einfaldur: einn maður með litla upp- tökuvél sem varfærn- islega skrásetur athafnir daglegs starfs, venjuleg verkefni og einfalt hátt- erni frá sínu sjón- arhorni,“ segir m.a. í til- kynningu. Sýningartími er 45 mín. Sýna kvikmyndaverk eftir Cai Ulrich von Platen Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Skaftfell Myndlistarmiðstöð Aust- urlands er sýningarstaðurinn. leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“ – Morgunblaðið HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið) Lau 28/2 kl. 19:30 24.sýn Lau 7/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 21/3 kl. 19:30 28.sýn Fös 6/3 kl. 19:30 25.sýn Sun 15/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 29/3 kl. 19:30 29.sýn Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins. Konan við 1000° (Stóra sviðið) Fim 5/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 14/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 20/3 kl. 19:30 52.sýn Aukasýningar á Stóra sviðinu. Karitas (Stóra sviðið) Sun 1/3 kl. 19:30 35.sýn Sun 8/3 kl. 19:30 36.sýn Allra síðustu sýningar. Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 28/2 kl. 13:00 9.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 12.sýn Sun 15/3 kl. 13:30 Lau 28/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 8/3 kl. 13:30 Sun 15/3 kl. 15:00 Sun 1/3 kl. 13:00 11.sýn Sun 8/3 kl. 15:00 Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn! Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 28/2 kl. 14:00 3.sýn Lau 7/3 kl. 14:00 5.sýn Lau 14/3 kl. 14:00 7.sýn Lau 28/2 kl. 16:00 4.sýn Lau 7/3 kl. 16:00 6.sýn Lau 14/3 kl. 16:00 8.sýn Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu Segulsvið (Kassinn) Fim 12/3 kl. 19:30 Frums. Fim 19/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 26/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 13/3 kl. 19:30 2.sýn Sun 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/3 kl. 19:30 6.sýn Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Minnisvarði (Aðalsalur) Lau 7/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 27/3 kl. 20:00 Mið 11/3 kl. 20:00 Sun 22/3 kl. 20:00 Sun 29/3 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Mið 25/3 kl. 20:00 Hrikalegir (Aðalsalur) Lau 28/2 kl. 21:00 Eldbarnið (Aðalsalur) Sun 1/3 kl. 14:00 Sun 8/3 kl. 14:00 SÍÐUSTU SÝNINGAR Skepna (Aðalsalur) Sun 1/3 kl. 20:00 AUKASÝNING SÍÐASTA SÝNING Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar (Aðalsalur) Fim 26/3 kl. 20:00 Björt í sumarhúsi (Aðalsalur) Lau 28/2 kl. 15:00 Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 6/3 kl. 19:00 frums. Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Lau 7/3 kl. 19:00 2 k. Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Sun 8/3 kl. 19:00 3.k. Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00 Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fim 23/4 kl. 19:00 Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Fös 24/4 kl. 19:00 Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Sun 26/4 kl. 19:00 Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Mið 29/4 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 28/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 28/2 kl. 20:00 Fim 12/3 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00 Fös 6/3 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 7/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Öldin okkar (Nýja sviðið) Lau 28/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Síðustu sýningar Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 28/2 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Sprenghlægilegur farsi Ekki hætta að anda (Litla sviðið) Sun 1/3 kl. 20:00 Síðasta sýning Öldin okkar –★★★★★ , S.J. Fbl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.