Morgunblaðið - 21.03.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015
Verð frá539.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta 429.900 kr.
Drykkjarpakki innifalinn ef bókað er fyrir 31. mars
Fararstjóri er Þóra Valsteinsdóttir
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair
Sigling umSuðaustur Asíu
7. - 23. nóvember
HONGKONG-VIETNAM-TAILAND-SINGAPORE
Fimmtudaginn 12. mars héltmeirihlutinn í borgarstjórn
fund með íbúum um fyrirhugaða
þrengingu Grensásvegar. Á fund-
inum voru fimm frummælendur.
Töluðu allir fyrir
þrengingu en eng-
inn fyrir and-
stæðum sjónar-
miðum.
Að morgni mið-vikudagsins
18. mars, þremur
virkum dögum síðar, var þreng-
ingin borin upp í umhverfis- og
skipulagsráði borgarinnar og sam-
þykkt með fjórum atkvæðum meiri-
hlutans gegn þremur atkvæðum
minnihlutans.
Þetta er dæmi um samráð meiri-hlutans í borgarstjórn við
borgarbúa.
Samráðið er aðeins sýndar-mennska, enginn vilji er til að
gefa borgarbúum færi á að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri eða
hlusta á þá. Og eftir sýndar-
samráðið er málið keyrt í gegn með
hraði og minnsta mögulega stuðn-
ingi.
Um leið er þetta dæmi um for-gangsröðun meirihlutans.
Götur borgarinnar eru nánastein samfelld hola og orðnar
stórhættulegar, en samt ákveða
borgaryfirvöld að setja hundruð
milljóna í þarflausar og jafnvel
skaðlegar þrengingar.
Borgaryfirvöld sem starfa meðþessum hætti eru augljóslega
ekki í nokkrum tengslum við borg-
arbúa eða við það ástand sem ríkir í
borginni og hafa ekki áhuga á að
vinna að neinu öðru en eigin gælu-
verkefnum.
Dagur B.
Eggertsson
Dæmi um stjórn
Reykjavíkurborgar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.3., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 4 skýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 5 skúrir
Kaupmannahöfn 6 skýjað
Stokkhólmur 2 súld
Helsinki 2 léttskýjað
Lúxemborg 12 heiðskírt
Brussel 6 þoka
Dublin 10 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 11 heiðskírt
París 12 þoka
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 12 heiðskírt
Vín 11 heiðskírt
Moskva 8 skýjað
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 11 alskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 7 skýjað
Winnipeg -2 skýjað
Montreal 0 skýjað
New York 2 alskýjað
Chicago 7 léttskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:26 19:45
ÍSAFJÖRÐUR 7:30 19:51
SIGLUFJÖRÐUR 7:13 19:34
DJÚPIVOGUR 6:55 19:15
„Þó að bætt aðstaða fyrir heimilis-
fólkið sé stóra málið er byggingin
einnig mikilvægt framfaramál fyrir
starfsfólkið. Að mínu mati og von-
andi annarra er aðstaðan að öllu
leyti hin glæsilegasta,“ segir Gunnar
Jónsson, formaður bæjarráðs
Fljótsdalshéraðs og formaður bygg-
ingarnefndar nýs hjúkrunarheimilis
á Egilsstöðum.
Nýtt hjúkrunarheimili við Heil-
brigðisstofnun Austurlands á Egils-
stöðum verður vígt í dag. Unnið hef-
ur verið að verklegum
framkvæmdum frá því í byrjun árs
2013 en undirbúningur hefur staðið
mun lengur. Byggingarnefnd var
kosin fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar 2010.
„Eins og efnahagsástandið var
þegar við vorum að síga af stað með
þessa framkvæmd var sveitarfélagið
ekki í stakk búið til að fara í stór-
framkvæmdir og atvinnulífið var í
lægð. Hjúkrunarheimilið var eina
framkvæmdin sem við lögðum í,“
segir Gunnar. Sveitarfélagið fjár-
magnar framkvæmdina en fær 85%
hlut ríkisins til baka í gegn um leigu-
greiðslur á mörgum árum.
Gunnar segir að brýn þörf sé fyrir
nýtt hjúkrunarheimili. Fólkið búi við
óviðunandi aðstæður á hjúkr-
unarheimili HSA, tveir og í sumum
tilvikum allt að fjórir saman í her-
bergi.
Byggt vel við vöxt
Heimilið er byggt vel við vöxt því í
því eru 40 hjúkrunarrými. Heimild
er fyrir 30 rýmum en þau 10 sem eft-
ir eru verða leigð til sjúkrahússins. Í
eldra hjúkrunarheimilinu eru 23
heimilismenn sem flytja í nýju bygg-
inguna og sjö bætast í hópinn.
Hjúkrunarheimilið er byggt við
HSA og mun Heilbrigðisstofnunin
reka það. Segir Gunnar að í því felist
ákveðin samlegðaráhrif og hafi sam-
reksturinn gengið vel.
Kostnaður við bygginguna losar
hálfan annan milljarð, þegar upp
verður staðið. Frágangi utanhúss er
ekki alveg lokið en íbúarnir flytja
inn fljótlega eftir páska.
helgi@mbl.is
Aðstaða fyrir eldri borgara bætt
Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili á Egilsstöðum vígt í dag Góð aðstaða
fyrir heimilisfólk og starfsfólk Hagkvæmur samrekstur með sjúkrahúsinu
Ljósmynd/Austurfrétt
Nýbygging Hjúkrunarheimilið er byggt við húsnæði Heilbrigðisstofnunar
Austurlands á Egilsstöðum enda rekur HSA hjúkrunarheimilið.
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskatt-
stjóri, segir fleiri einstaklinga búna
að skila skattframtali í ár en á sama
tíma í fyrra. Aukningin nemur
þremur prósentustigum. Sé farið
enn aftar í tímann nemur aukningin
sex til sjö prósentustigum. Tæplega
106 þúsund af 267 þúsund einstak-
lingum eru búnir að skila skatt-
framtali. Hafi einstaklingar ekki
óskað eftir fresti var síðasti skila-
dagur í gær, föstudag. Hann segir
að þeir sem óskað hafa eftir fresti
skipti tugum þúsunda.
Skúli Eggert segir ekki ljóst
hvað það sé sem valdi aukningunni,
en leiðir að því líkur að það sé
vegna breyttrar auglýsingastefnu
og aukins þjónustuþáttar hjá RSK
en viðvera er lengri hjá starfs-
mönnum embættisins í ár en und-
anfarin ár.
Hann reiknaði með miklum fjölda
framtala í gærkvöldi. Svo kæmi
„önnur súpa“ í kringum 30. og 31.
mars og strax eftir páska. Hann
segir að fyrir flesta taki það ekki
nema fimm til fimmtán mínútur að
skila framtalinu enda sé það nánast
tilbúið í mörgum tilfellum.
Undirbúningurinn hófst 1992
Skúli Eggert segir fyrirkomulag-
ið eins og við þekkjum það í dag
vera fimmtán ára gamalt. „Undir-
búningurinn að þessu hófst árið
1992, að snúa þessu við. Áður var
það þannig að öll gögn voru send til
framteljenda og fólk fyllti þetta út
handvirkt og svo þurfti að fara
handvirkt yfir þetta,“ segir Skúli og
bætir við að það hafi tekið um 15 ár
að koma fyrirkomulaginu í það
form sem stefnt var að árið 1992.
Fleiri hafa skilað
framtalinu en í fyrra