Morgunblaðið - 21.03.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.03.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015 Þýskar hágæða pönnur frá AMT Allt fyrir eldhúsið Verð fr á: 13.500 kr. • AMT eru hágæða pönnur úr 9mm þykku áli. • Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita. • 3 ára ábyrgð á verpingu. • Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en Teflon og án eiturefna. • Nothæf fyrir allar eldavélar. • Má setja í uppþvottavél. Íslenska og þýska kokkalandsliðið nota AMT pönnur. WORLD’S BESTPAN „ “ THE * “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association * Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14. Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum um styrk úr Forvarnasjóði Kópavogs. Hlutverk sjóðsins er að efla forvarnir og frístundir með áherslu á börn, ungmenni og eldri borgara. Einnig samstarfsverkefni íbúa, félagasamtaka, stofnana og fyrirtækja í þágu forvarna- og frístundastarfs. Umsóknarfrestur vegna styrkveitinga úr forvarnasjóði er til og með 19. apríl 2015. Allar nánari upplýsingar má finna á kopavogur.is. PI PA R\ TB W A · SÍ A · 15 14 19 Forvarnasjóður Kópavogs kopavogur.is BAKSVIÐ Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Hún var skrýtin stemningin í Súlnasal í gærkvöldi eftir að Árni Páll Árnason var kjörinn formaður Samfylkingarinnar. Gleði og sam- staða eru ekki orð sem koma upp í huga manns. Langt frá því. Kosið var með rafrænum hætti og átti því ekki að þurfa að bíða lengi eftir úrslitunum. Þau voru boðuð um kl. 18:45. Stöð 2 og RÚV ætluðu að sýna niðurstöðuna í beinni útsendingu og tjölduðu miklu til. Þegar klukkan sló sjö var ljóst að úrslitin væru ekki á leiðinni í hús og fundargestir voru farnir að ókyrrast. Mínúturnar liðu og loks steig formaður kjör- stjórnar, Jón Ingi Cæsarsson, í pontu um kl. hálfátta. Tilkynnti að það væru fimm mínútur í að úrslitin yrðu tilkynnt – það þyrfti að koma veðurfréttum að á RÚV. Af líkams- tjáningu hans mátti greina að tíð- inda var að vænta. Salurinn gapti af undrun Flestir voru búnir að reikna með Árna Páli í formannsembættið enda hafði Sigríður háð örkosningabar- áttu sem stóð í minna en sólarhring. En annað kom á daginn. Fyrst var lesið upp nafn Önnu Pálu Sverrisdóttur sem hafði fengið eitt atkvæði. Salurinn hló og klapp- aði fyrir henni. Gleðin var allsráð- andi. Svo kom nafn Árna Páls upp. 49,49% atkvæða hafði hann fengið. Salurinn gapti af undrun. Nafn Sig- ríðar kom næst. 49,28% hafði hún fengið og þögn sló á salinn sem rankaði ekki við sér fyrr en tilkynnt var að Árni Páll væri áfram formað- ur. Þá var klappað og staðið upp. Árni hafði hlotið 241 atkvæði en Sigríður 240. Árni fór upp á svið og þakkaði fyrir sig. Árni er raddsterkur mað- ur en rödd hans var veik uppi í pontu. Augljóst að honum var brugðið. Eftir að hann kvaddi fóru menn að stinga saman nefjum og skoða úrslitin. Kliður fór um salinn og fólk spurði hvað annað hvort það hefði örugglega tekið rétt eftir. Að það hefði munað svona gríðarlega litlu. Þarf nú að vanda mig „Þetta er ekki óskaniðurstaða,“ sagði Árni Páll Árnason skömmu eftir að úrslitin voru kunngjörð. „Þetta er í fyrsta sinn sem við greiðum atkvæði á landsfundi með þessum hætti þar sem allir eru í kjöri. Ég hef alltaf verið mjög hrif- inn af því sérkenni Samfylkingar- innar að kjósa formann í beinni kosningu. Ég hef talið það flokkn- um mjög til styrkleika og tekið eftir því að aðrir forystumenn í íslensk- um stjórnmálum hafa öfundað mig af því skýra umboði sem ég fékk í allsherjaratkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum. En þetta eru leik- reglurnar og við erum að vinna eftir þeim. Ég kvarta ekki yfir leikregl- unum og hef aldrei gert,“ sagði hann og bætti við að niðurstaðan setti ríkar skyldur á hans herðar. „Ég þarf að vanda mig mjög vel í framhaldinu. Ég hef enga sérstaka gagnrýni heyrt á mín störf frá því að þetta mótframboð kom fram. Ég hef heyrt almenn orð en ég hef enga beina gagnrýni heyrt hvað ég hefði átt að gera öðruvísi eða eitt- hvað slíkt. En ég tek auðvitað allri slíkri gagnrýni ef hún kemur fram.“ Ljóst sé að niðurstaðan sé til vitnis um að landsfundarfulltrúar hafi deildar meiningar um foryst- una. „Það er alveg augljóst mál.“ Enginn óvinafögnuður Sigríður Ingibjörg Ingadóttir var þakklát þeim fjölmörgu sem hringdu, sendu skilaboð og vildu fá hana í formannsembættið. „Það var auðvitað mjög mjótt á munum en ég vil óska Árna Páli til hamingju með að hafa verið endurkjörinn. Ég er þeim þakklát sem ýttu á mig og það er augljóst að krafan um breytingar innan flokksins er mikil. Ég sé ekki annað en að við munum vinna öll saman að því og það er enginn óvinafögnuður í Samfylkingunni. Óvinurinn er hægristjórnin. Fyrst maður tapar þá er gott að tapa svona. En ég held að við verð- um sterkari eftir þessa kosningu,“ sagði Sigríður Ingibjörg. Hélt að framboðið væri grín Kristján Möller studdi Árna Pál til formanns en hann sagðist aldrei hafa kynnst öðru eins. „Ég var íþróttafulltrúi til margra ára og framkvæmdi skíðamót og annað slíkt. Ég hef oft séð menn sigra með einu sekúndubroti eða marki á síðustu stundu. En að sjá það gerast í formannskjöri í flokkn- um, það hefði ég aldrei geta ímynd- að mér,“ sagði Kristján og bætti við að þegar hann sá frétt á mbl um framboð Sigríðar hélt hann að það væri verið að gera grín. „Ég fagna því að Árni hafi sigrað. Það var tekist á um formannsemb- ættið og þetta framboð hennar var óvænt. Þegar ég sá fréttina um framboð hennar á mbl þá hélt ég að það væri verið að gera grín. Ég hafði engan pata af þessu framboði hennar. Ég hef alltaf verið stuðn- ingsmaður þess að kosning til for- manns eigi að fara í gegnum alls- herjarkosningu eins og lög segja til um. Þá hefði Sigríður þurft að bjóða sig fram fyrir mánuði. Þá hefðu allir flokksmenn fengið að kjósa eins og við höfum yfirleitt alltaf gert. Nema þegar Jóhanna var ein í framboði,“ sagði Kristján Möller. Þungavigtarmenn tjá sig ekki Margir voru greinilega í tals- verðu uppnámi og alls staðar stakk fólk saman nefjum til þess að ræða niðurstöðuna. Fáir vildu hins vegar tjá sig um hana við fjölmiðla. Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Sam- fylkingarinnar, sagðist ekki vilja tjá sig um niðurstöðuna og sama átti við um Össur Skarphéðinsson, fyrr- verandi formann flokksins. Oddný G. Harðardóttir alþingismaður sagðist ekki vera búin að mynda sér skoðun á niðurstöðunni þegar eftir því var leitað. Valgerður Bjarnadóttir alþingis- maður sagði aðspurð að niður- staðan segði ekkert um stöðu Sam- fylkingarinnar. „Þetta segir bara að sá sem vann vann og sá sem tapaði tapaði.“ Skellur fyrir Árna Pál Eva Indriðadóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, sagði niður- stöðuna skell fyrir Árna Pál. „Þetta er náttúrlega sjokkerandi niðurstaða fyrir flokkinn og pínu skellur fyrir Árna Pál. Það er núna bara undir honum komið að sýna hvað í honum býr og leiða flokkinn í betri átt,“ sagði hún. Niðurstaðan sé þannig skilaboð til hans um að spýta í lófana. „Það gerist varla skýrara en þetta.“ Spennuþrungin stund í Súlnasal  Árni Páll var endurkjörinn formaður Samfylkingarinnar  Munaði aðeins einu atkvæði á honum og Sigríði Ingibjörgu  Fjölmargir óskuðu Sigríði til hamingju  Súlnasalur nötraði í kjölfar úrslitanna Morgunblaðið/Eggert Ávarp formanns Árni Páll Árnason ávarpar þingheim eftir að úrslitin í formannskjörinu höfðu verið tilkynnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.