Morgunblaðið - 21.03.2015, Page 16

Morgunblaðið - 21.03.2015, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015 Vilja aldamótabyggð við Ölfusárbrú Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kortlagning Sigurður Einarsson akritekt, Guðjón Arngrímsson og Leó Árnason forsvarsmenn verkefnisins og lengst til hægri Snorri Freyr Hilmarsson sem er hönnuður nýbyggðarinnar.  Bæjarráð Árborgar úthlutar lóðum í miðbæ Selfoss  Gert ráð fyrir allt að 30 húsum í gömlum stíl  Verslun, þjónusta og íbúðabyggð  Fjárfestingin allt að þrír milljarðar kr. Yfirsýn Svona gæti svæðið litið út fullbyggt, það er aðalgata frá Ölfusábrú til suðurs. Timburhúsin eru af ýmsum gerðum og kæmu tilsniðin á staðinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Miðbær Væntanlegt uppbyggingarsvæði er reiturinn beint sunnan við Ölfusárbrú sem teygir sig svo að bæjargarðinum svonefnda sem er óbyggða svæðið neðst og til hægri á myndinni. SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Nýr miðbær á Selfossi skapar al- veg sterka stöðu. Nálgunin í þessu verkefni er önnur en sést hefur hingað til. Í anda þess sem gerðist um aldamótin 1900 verður þarna lágreist byggð endurgerðra timb- urhúsa. Þau hafa skemmtilegan svip og þarna skapast möguleika fyrir ýmsa atvinnustarfsemi. Þar horfum við meðal annars til versl- unar og þjónustu við ferðafólk,“ segir Guðjón Arngrímsson. Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum í fyrradag, vilyrði fyrir úthlutun miðbæjarsvæðisins á Sel- fossi til Sigtúns þróunarfélags ehf. um uppbyggingu alhliða þjón- ustukjarna. Í verkefni þessu er undir alls 2,5 ha. svæði, meðal ann- ars reitur beint andspænis Ölfus- árbrú þegar ekið er inn í bæinn. Áform um uppbyggingu um- rædds svæðis hafa lengi verið í deiglunni og ýmsum hugmyndum verið varpað fram. Miðbæjarmálin eystra komust þó fyrst á hreyfingu fyrir um ári þegar Guðjón Arn- grímsson, blaðafulltrúi Icelandair, og Leó Árnason athafnamaður, sem báðir eru frá Selfossi, kynntu bæj- aryfirvöldum hugmyndir sínar. Þar var málinu var strax sýndur áhugi, svo gerlegt varð að stíga skrefin lengra. Um verkefnið var stofnað Sigtún þróunarfélag ehf. og sam- þykki bæjaryfirvalda í Árborg um miðbæjarsvæðið, sem er til sex mánaða, er bundið félaginu. Hjartað er autt Nokkuð er síðan vilyrði bæjaryf- irvalda fékkst og var þá leitað til Batterísins arkitekta og Snorra Freyrs Hilmarssonar hönnuðar sem er höfundur þeirra teikninga að nýjum miðbæ sem fyrir liggja. „Mér hefur runnið til rifja að sjá miðbæinn, hjarta Selfoss, standa auðan en um tíu ár eru frá því síð- ustu húsin þar voru rifin. Tækifær- in þarna óþrjótandi og mikilvægt að nýta þau meðal annars í tengslum við ferðaþjónustu. Á því sviði liggja sóknarfæri Selfoss, hundruð þús- unda ferðamanna fara um bæinn á hverju ári án þess að staldra við að neinu ráði. Því viljum við breyta. Rætt hefur verið um að skapa þurfi fleiri raunverulegar ástæður til þess að fólk hafi viðdvöl í bænum og það tilefni er svo sannarlega Hluti af uppbyggingunni nýju er sögusýning í torfbæ og tengdum byggingum. Við uppbyggingu sýningahaldsins verður lögð áhersla á daglegt líf og bygging- arsögu á Suðurlandi frá land- námi til líðandi stundar. „Þetta nær allt frá smæstu kotbýlum til stórbýla og minn- isvarða um reisulegar dóm- kirkjur miðalda,“ segir Guðjón Arngrímsson sem á sínum tíma kannaði á vegum Icelandair og tengdra félaga möguleika á því að reisa Skálholtskirkju í mið- aldastíl. Ekki reyndist hljóm- grunnur fyrir því verkefni, sem því var lagt til hliðar. „Þó að við sjáum fyrir okkur mjög fjölbreytta starfsemi í nýja miðbænum á Selfossi er ferða- þjónustan útgangspunkturinn. Sagan verður sögð meðal annars með því að veita gestum innsýn í þróun matarhefða, enda Suður- landið matarkista,“ segir Leó. Bætir við að sýningarsvæði við torfbæ og minnisvarða um dóm- kirkju tengjast við bæjargarð- innn á Selfossi. Hann verði nú, með samþykkt bæjaryfirvalda í Árborg, endurhannaður með til- liti til útivistar og ýmissa bæj- arhátíða. Opið hús verður í Tryggva- skála á Selfossi í dag, laug- ardag, frá kl. 11-17. Þar liggja frammi uppdrættir og teikningar og áhugasömum gefst kostur á að ræða við forsvarsmenn verk- efnisins og kynna sér hugmynd- irnar nánar. Þá er verkefnið einnig kynnt á slóðinni www.midbaerselfoss.is Minnisvarði um miðaldakirkju BYGGINGASAGA SUÐURLANDS Á SÖGUSÝNINGU Í TORFBÆ Sviðsmynd Sögusýning í gamaldags húsum og kirkja í miðaldastíl vektu athygli. Mild og örugg hreinsi- aðferð, sérstaklega gerð til að hjálpa þér að halda viðkvæmasta líkamshluta þínum hreinum, frískum og lyktarlausum. Dagleg notkun kemur jafn- vægi á náttúrulegt sýrustig þessa viðkvæma svæðis. Gott við vægri sveppasýkingu. Hreinsigel fyrir konur www.volare.is Söluráðgjafar um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.