Morgunblaðið - 21.03.2015, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015
Indlandi. Meðal annars voru mæli-
stöðvar settar upp í Bandaríkjunum,
í Grænlandi, Færeyjum, Hjaltlandi
og í Svíþjóð auk Íslands. Með sam-
anburði á mælingunum var hægt að
ákvarða staðsetningu Íslands af
meiri nákvæmni en áður hafði
þekkst.
Leiðangur í Landeyjar
Tveir bandarískir sérfræðingar
komu hingað til lands vegna mæling-
anna. Annar þeirra, Mr. Dix, var á
vegum Bandaríkjastjórnar en hinn,
Mr. Hollinsworth, var á vegum Ko-
dak-verksmiðjanna, að því er fram
kom í Morgunblaðinu.
Björn var við nám í verk-
fræðideild Háskóla Íslands á þess-
um tíma. Þorbjörn Sigurgeirsson,
prófessor og formaður Rannsókna-
ráðs ríkisins, fékk Björn og Guðna
Ágústsson, starfsmann Landsímans,
til að taka þátt í leiðangrinum.
Björn sagði að Þorbjörn, sem for-
maður Rann-
sóknaráðs á þeim
tíma, hefði haft
mikinn áhuga á
því að kynnast
tækjabúnaðinum
sem Bandaríkja-
mennirnir komu
með. Hann velti
mikið fyrir sér
staðsetning-
arkerfum og
hvort hægt væri að finna staðsetn-
ingar á vélrænan hátt. Þorbjörn var
flugmaður og stundaði meðal annars
segulmælingar úr lofti. „Hann var
að öðru leyti ekkert hrifinn af því að
það væri herinn sem var með þetta,“
sagði Björn.
Leiðangursmennirnir fóru austur
að Guðnastöðum í Landeyjum með
mikinn búnað. Farið var þann 22.
júní, eða átta dögum fyrir sólmyrkv-
ann, á tveimur bílum og var annar
þeirra vörubíll frá varnarliðinu.
Vörubílstjórinn Wolski var banda-
rískur hermaður en var aldrei
ávarpaður öðruvísi en með nafni og
mundi Björn ekki til þess að hann
hefði verið titlaður með hergráðu.
Björn sagði að vörubíllinn hefði ver-
ið svo þunghlaðinn að vegurinn dú-
aði undan þunga hans.
Mælistaður númer IX
Slegið var upp stóru tjaldi og bún-
aðurinn settur upp. Góður tími gafst
til að fínstilla tækin og æfa vinnu-
brögðin áður en almyrkvinn varð kl.
12.05 þann 30. júní.
Ragnar Guðlaugsson, fyrrverandi
bóndi á Guðnastöðum, var tvítugur
þegar þetta var. Hann sagði að leið-
angursmennirnir hefðu gist á
Guðnastöðum en að mælingastað-
urinn hefði verið í landi næsta bæj-
ar, Hólma. Málmskilti var steypt í
jörð þar sem sjálft mælitækið var
staðsett. Skjöldurinn var merktur
bandaríska flughernum og sól-
myrkvaleiðangrinum 30. júní 1954.
Mælistaðurinn var merktur með
rómversku tölunum IX eða númer
níu. Kristján Ágústsson, sem var
bóndi á Hólmum þar til fyrir 13 ár-
um, sagði að merkið hefði verið til
staðar þegar hann fór frá Hólmum.
Skýjað fyrst en dró frá sólu
Leiðangursmennirnir settu upp
færanlega rafstöð og fótósellu til að
mæla gang tunglsins fyrir sólina af
mikilli nákvæmni. Fyrsta krist-
alsklukkan kom hingað til lands af
þessu tilefni og var hún notuð til að
ákvarða tíma almyrkvans sem ná-
kvæmast. Kristalsklukkur voru
fyrstu klukkurnar sem tóku sjálfri
jörðinni fram sem tímamæli, að því
er fram kemur í Almanaki Háskóla
Íslands. Einnig voru þeir með við-
tæki sem tók við nákvæmu tíma-
merki frá útvarpsstöð og var það
notað til að stilla búnaðinn.
Tækninni er þannig lýst í Morg-
Ljósmyndir/Björn Kristinsson
Mælitæki Þorbjörn Sigurgeirsson (t.v.) og Mr. Dix (t.h.) við
fótóselluna. Stilla þurfti ljóssíuna eftir því sem birtan breyttist.
Hnattstaðan skýrð í ljósi almyrkva
Almyrkvinn 30. júní 1954 var notaður til að mæla hnattstöðu Íslands Mikill tækjabúnaður var
settur upp í Landeyjum Mælingin var á vegum bandaríska flughersins og niðurstöður aldrei birtar
Merkið Plata var steypt þar sem mælitækið stóð. Staðurinn
var merktur bandaríska flughernum og var númer IX.
Heimildir Mr. Hollinsworth var á vegum Kodak-verksmiðj-
anna og tók hann kvik- og ljósmyndir í leiðangrinum.
Björn
Kristinsson
VIÐTAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Almyrkvinn var stórkostlegur,“
sagði Björn Kristinsson, prófessor
emeritus við Rafmagns- og tölvu-
verkfræðideild Háskóla Íslands,
sem fylgdist með almyrkva sem varð
á sólu 30. júní 1954. Hann sagði að
almyrkvinn væri sér mjög eftir-
minnilegur. Atferli fuglanna hefði
breyst og birtan verið undarleg.
Almyrkvinn sást syðst á landinu.
Tækifærið var notað til að gera ná-
kvæmar mælingar á almyrkvanum
með fullkomnasta tækjabúnaði þess
tíma. Tilgangurinn var að ákvarða
staðsetningu Íslands og fjarlægð
þess frá meginlöndunum. Sambæri-
legar mælingar voru gerðar á 16
stöðum á braut sólmyrkvans, en hún
lá vestan frá Bandaríkjunum, austur
yfir Atlantshaf og endaði austur í
„Þeir sem horfa á deildarmyrkva
eins og varð nú átta sig ekki á því
hvað er mikill munur á honum og al-
myrkva. Það er tvennt ólíkt en deild-
armyrkvi er vissulega áhugaverð-
ur,“ sagði dr. Þorsteinn
Sæmundsson, stjörnufræðingur. Við
almyrkva hylur tunglið alla skífu
sólar, frá jörðu séð, en ekki við
deildarmyrkva. Tunglið huldi t.d.
97,5% af skífu sólar í Reykjavík í
gær en 99,4% á Norðfirði. Ferill al-
myrkvans lá um 70 km austur af
Suðausturlandi.
Þorsteinn rifjaði upp almyrkvann
sem sást syðst á Íslandi 30. júní 1954.
Hann fylgdist með honum af Reyn-
isfjalli við Vík í Mýrdal.
„Í almyrkva þarf engin sól-
myrkvagleraugu. Þú getur horft
beint í sólina. Maður sér kórónu sól-
ar teygjast langt út frá henni. Það er
stórkostleg sjón. Maður sér líka gló-
andi sólstróka út frá sólinni. Það
sem kom mér mest á óvart var lit-
urinn á himninum. Það eru svo stór-
kostleg litbrigði að því verður ekki
lýst. Maður sér út fyrir skuggann og
þar sjást allir litir regnbogans. Þetta
er að mínu viti stórkostlegasta nátt-
úrufyrirbæri sem maður getur upp-
lifað. Þess vegna eltast menn við að
sjá þetta aftur og aftur.“
Þorsteinn
sagði það vera til
skammar að Ís-
lendingum hefði
ekki verið boðið
upp á flug til að
skoða almyrkv-
ann rétt austan
við landið. Ís-
lenskar þotur
hefðu hins vegar
verið leigðar til
að fljúga með útlenda ferðamenn.
„Mér bauðst að fljúga frá Þýska-
landi og Bretlandi, en ég reiknaði
með að það yrði boðið upp á flug
héðan en það kom ekki,“ sagði Þor-
steinn.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, sagði að flugfloti
félagsins hefði verið fullnýttur í
áætlunarflugi í gærmorgun auk þess
sem þrjár flugvélar hefðu verið
leigðar erlendri ferðaskrifstofu til
almyrkvaflugs.
Ingi Þór Guðmundsson, for-
stöðumaður sölu- og markaðssviðs
Flugfélags Íslands, sagði að ekki
hefði orðið vart eftirspurnar eftir al-
myrkvaflugi hér innanlands. Marg-
ar fyrirspurnir bárust frá útlöndum
og var boðið í mörg verkefni. Þau
enduðu hins vegar flest í Færeyjum.
Einstakt nátt-
úrufyrirbæri
Hneyksli að ekki var boðið upp á flug
Þorsteinn
Sæmundsson
Áþreifanleg vellíðan EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
82
ÁRA
EDDA Heildverslun
Draumur um góða nótt
Heildverslun með lín fyrir:
• hótelið
• gistiheimilið
• bændagistinguna
• veitingasalinn
• heilsulindina
• hjúkrunarheimilið
• þvottahúsið
• sérverslunina
Gæði og glæsileiki
Heildverslunin Edda hefur um áratuga
skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni.
Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt
sem minni nota allt lín frá okkur.
Bjóðum einnig upp á lífrænt lín.