Morgunblaðið - 21.03.2015, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015
Fyrir liggur að vínbúð verður opn-
uð í Spönginni í Grafarvogi í
Reykjavík á næstunni. Nákvæm
dagsetning opnunar liggur ekki
fyrir en ÁTVR tekur við húsnæðinu
hinn 1. maí.
Vínbúðin verður í um 430 fer-
metra húsnæði í hluta rýmisins sem
nú hýsir Hagkaup en sú verslun
kemur til með að minnka.
Vínbúð lokað 2009
Stefnt hefur verið að því að opna
Vínbúð í Grafarvogi en slíkri versl-
un í Spönginni var lokað í byrjun
ársins 2009. Hátt í 20 þúsund
manns búa í hverfinu.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, staðfesti
opnun verslunarinnar í samtali við
Gullinbrú og sagði ÁTVR hafa
skrifað undir samning við Reiti
fasteignafélag um leigu á húsnæð-
inu.
Nánari upplýsingar um opnunar-
dag munu liggja fyrir um miðjan
apríl. sunnasaem@mbl.is
Vínbúð
brátt opnuð
í Spönginni
ÁTVR hefur leigt
húsnæði fyrir búðina
Morgunblaðið/Heiddi
Vínbúð Til stendur að opna nýja
vínbúð í Spönginni í Reykjavík.
„Ég er enn með gæsahúð,“ sagði
Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjar-
goði, eftir sólmyrkvaathöfn, sem
ásatrúarmenn héldu á Öskjuhlíð í
Reykjavík í gærmorgun. Að at-
höfninni lokinni var fyrsta skóflu-
stungan tekin á lóð Ásatrúarfélags-
ins en þar mun rísa fyrsta höfuðhof
álfunnar í þúsund ár.
Eigna sér heiðurinn af veðrinu
„Þetta var mögnuð stund og við
eignum okkur alfarið heiðurinn af
þessu góða veðri,“ sagði Hilmar
Örn. „Við tókum guðina á teppið og
pöntuðum þetta veður sér-
staklega.“
Að sögn Hilmars Arnar mættu
yfir 300 manns í Öskjuhlíðina,
flestir með sólmyrkvagleraugu eða
önnur tæki og tól til sólmyrkva-
skoðunar. „Margir voru með sótað
gler og notuðu brotna geisladiska
til að horfa á sólmyrkvann og
höfðu greinilega gúglað ýmsar að-
ferðir sem ég hef ekki séð áður,“
segir Hilmar Örn.
Sólmyrkvaathöfnin hófst kl 08.38
við upphaf sólmyrkvans. „Þessi
tímasetning er hlaðin merkingu og
er afskaplega merkileg,“ sagði
Hilmar Örn. „Sól og tungl í sam-
stöðu að fara inn í hrútsmerkið.
Þetta er afskaplega táknræn ný
byrjun og mjög merkileg stjörnu-
spekilega séð.“
Að lokinni sólmyrkvaathöfninni
tók Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri fyrstu skóflustunguna að
hinu nýja hofi Ásatrúarmanna og
svæðið og samkoman voru helguð.
amb@mbl.is
Tímasetning hlaðin merkingu
Morgunblaðið/Golli
Skóflustunga „Þetta var mögnuð stund,“ sagði Hilmar Örn Hilmarsson.
Fyrsta skóflustunga tekin að hofi eftir sólmyrkvann
Skrúfudagurinn
svonefndi er í
dag en það er
árlegur kynn-
ingardagur
nemenda og
kennara í Vél-
tækniskóla og
Skipstjórnar-
skóla Tækni-
skólans.
Skrúfudag-
urinn markar jafnframt upphaf
hátíðarhalda til að minnast þess,
að formleg vélstjóramenntun á
Íslandi á 100 ára afmæli í ár en
haustið 1915 setti Alþingi „lög
um vjelstjóraskóla í Reykjavík“.
Skólinn var stofnaður sama haust
og hefur starfað óslitið síðan.
Dagskráin í dag hefst klukkan
12.30 í Tækniskólanum við Há-
teigsveg (Sjómannaskólanum).
Mun Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, þá m.a. flytja
ávarp.
Skrúfudag-
urinn í dag
Sjómannaskólinn í
Reykjavík.
Bankas t ræt i 7 er samsta r f sað i l i Ga l l e r í L i s t .
einstakt
eitthvað alveg
einstakar gjafir fyrir
einstök tækifæri
handa einstöku fólki
Úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn | Skipholt 50a | S 581 4020 | www.galleril ist.is