Morgunblaðið - 21.03.2015, Page 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015
ans, sé talsmaður hans og komi fram
fyrir hönd bankastjórnar. Vísar
nefndin sérstaklega til stjórnskipun-
ar Englandsbanka sem fyrirmyndar
um þetta fyrirkomulag.
Tillögur nefndarinnar myndu leiða
til þeirrar breytingar á skipun pen-
ingastefnunefndar að auk tveggja
utanaðkomandi peningamálasér-
fræðinga tæki öll þriggja manna
bankastjórnin þar sæti, í stað aðstoð-
Nefnd um heildarendurskoðun á lög-
um um Seðlabanka Íslands leggur til
að tekin verði upp þriggja manna
bankastjórn þar sem seðlabanka-
stjóri er fremstur á meðal jafningja.
Gerir nefndin að tillögu sinni að í
stað núverandi aðstoðarseðlabanka-
stjóra komi tveir bankastjórar. Þeir
taki sæti í bankastjórn ásamt seðla-
bankstjóra sem verði formaður
bankastjórnar, leiði starfsemi bank-
arbankastjóra og aðalhagfræðings.
Í skilabréfi nefndarinnar er lagt til
að núverandi seðlabankstjóra verði
boðið að gegna embætti formanns
bankastjórnar og seðlabankastjóra í
nýrri stjórnskipan út skipunartíma
sinn, þar sem í tillögunum felist
fremur breyting á núverandi emb-
ætti en að það sé lagt niður og nýtt
embætti sett á fót. Hins vegar megi
líta svo á að staða aðstoðarseðla-
bankastjóra verði lögð niður í nýju
skipulagi.
Nefndin var skipuð þeim Ólöfu
Nordal, Þráni Eggertssyni og Frið-
riki Má Baldurssyni. Vegna fjarvista
á starfstíma nefndarinnar stendur
Ólöf ekki að skilabréfinu og er tekið
fram að hún taki ekki afstöðu varð-
andi bráðabirgðaákvæði um stöðu
núverandi stjórnenda í ljósi stöðu
sinnar sem ráðherra.
Lög Nefndin leggur til að Már gegni
áfram stöðu seðlabankastjóra.
Gera tillögu um þriggja manna bankastjórn
Nefnd um endurskoðun Seðlabankalaga leggur til að Már Guðmundsson verði áfram seðlabankastjóri
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri
CCP, hefur verið kjörinn stjórnar-
formaður IGI sem eru samtök
leikjaframleiðenda á Íslandi og er
starfsgreinahópur innan Samtaka
iðnaðarins. Alls eru fyrirtæki inn-
an IGI 10 talsins og velta þeirra yfir
9 milljarðar á ári. Hilmar Veigar
segir í tilkynningu að skortur á hæfu
starfsfólki hamli vexti greinarinnar
og að útlendingalöggjöfin þurfi að
bjóða upp á hraðari afgreiðslu leyfa.
Aðrir í stjórn IGI eru Ólafur
Andri Ragnarsson stjórnarmaður
Betware, Burkni Óskarsson fram-
kvæmdastjóri Lumenox, Eldar Ást-
þórsson fjölmiðlafulltrúi CCP, Stef-
án Álfsson forstjóri Jivaro, Stefán
Gunnarsson forstjóri Solid Clouds
og Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir
forstjóri Locatify.
Leikir Forstjóri CCP segir skort á
starfsfólki hamla vexti.
Tíu fyrir-
tæki í IGI
Vodafone hefur breytt heiti á
þjónustunni sem áður hét Tíma-
flakk yfir í Tímavél. Þetta er gert
í kjölfar kröfu Símans um 400
milljóna króna skaðabætur vegna
notkunar á heitinu Tímaflakk, en
Síminn hafði fengið það skráð sem
vörumerki hjá Einkaleyfastofu.
Gunnhildur Ásta Guðmunds-
dóttir, upplýsingafulltrúi Voda-
fone, segir í samtali við mbl.is að
skaðabótamálið standi áfram
óbreytt þrátt fyrir nafnbreyt-
inguna. Vodafone sé hins vegar
ósammála því að Tímaflakk sé
skráð sem vörumerki og muni
áfrýja þeirri ákvörðun, enda telji
fyrirtækið kröfu Símans tilhæfu-
lausa. „Við ákváðum engu að síður
að fjarlægja Tímaflakk úr mark-
aðs- og kynningarefni fyrir þjón-
ustuna þar sem við teljum nýja
heitið vera betur lýsandi fyrir þá
vöru sem við erum að bjóða upp
á,“ er haft eftir Gunnhildi á
mbl.is.
Úr Tíma-
flakki yfir
í Tímavél
Vodafone breytir
nafni á þjónustu sinni
Allar tæknilegar upplýsingar, snið og teikningar, eru fyrirliggjandi hjá okkur.
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Viðhaldsfríir gluggar, hurðir, sólskálar o.fl.
Opið hús
laugardaginn 21.mars
Kynnum allt það nýjasta sem finna má í
gerð garðskála, svalalokana, hurða og glugga.
Renndu við í nýja sýningarsalnum okkar Smiðsbúð 10.
30 ára reynsla
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • solskalar@solskalar.is • www.solskalar.is
Laugardaginn 21. mars
kl. 10–16
30 ára reynsla
Kynnum allt það nýjasta sem finna má í
gerð garðskála, svalalokana, hurða og glugga
Renndu við í nýja sýningarsalinn okkar Smiðsbúð 10