Morgunblaðið - 21.03.2015, Side 38

Morgunblaðið - 21.03.2015, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015 ✝ Anna BjörgSveinsdóttir fæddist í Reykjavík 18. júní 1964. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 13. mars 2015. Foreldrar henn- ar eru Sveinn Jó- hannsson, f. 20.9. 1935, og Geirlaug Sveinsdóttir, f. 11.10. 1942. Bræður Önnu Bjargar eru: 1) Jóhann Sveins- son, f. 24.2. 1963, giftur Hafdísi Björk Guðmundsdóttur. Synir þeirra eru Sveinn Þorgeir, Guð- mundur Gauti og Brynjar Logi. 2) Bjarni Ágúst Sveinsson, f. 1.8. 1972. Börn hans eru Elísa Björt og Alexander Ágúst. Anna Björg lætur eftir sig eiginmann, Ólaf Helga Ólafsson, f. 5.12. 1960. Börn þeirra eru Þórdís, f. 20.11. 1992, og Ólafur Geir, f. 14.2. 1996. Dóttir Ólafs Helga og Þórhildar Björns- dóttur er Sigrún Ólafsdóttir, f. 6.1. 1979. Sigrún er gift Matta stúdentsprófi. Hún stundaði mikið íþróttir á sínum yngri ár- um með góðum árangri. Eftir stúdentspróf starfaði hún í nokkur ár sem aðstoðarmaður sjúkraþjálfara á Reykjalundi. Árið 1996 fluttu Anna Björg og Ólafur Helgi að Valdastöðum í Kjós þar sem þau hófu búskap í félagi við foreldra Ólafs Helga. Ásamt bændastörfunum starfaði Anna Björg í Ásgarðsskóla og síðar Klébergsskóla og á bóka- safni Kjósarhrepps. Hún var af- ar virk í félagsstörfum í sveit- inni. Hún sat um tíma í hrepps- nefnd Kjósarhrepps og var í stjórn Kvenfélagins. Anna Björg hafði mikinn áhuga á laxveiði. Hún veiddi mikið með eig- inmanni sínum og vinum og var auk þess í veiðifélaginu Óðflug- um ásamt vinkonum sínum. Anna Björg var einnig mikill náttúruunnandi og naut þess vel að búa í sveitinni. Hún fylgdist alltaf með komu farfuglanna á vorin og skráði niður dagsetn- ingar þegar þeir birtust á túninu. Hún naut þess að taka þátt í sauðburðinum á hverju vori og ræktaði garðinn sinn af mikilli alúð, hvort sem það voru matjurtir, blóm eða tré. Útför Önnu Bjargar fer fram frá Reynivallakirkju í Kjós í dag, 21. mars 2015, kl. 14. Kallio og eiga þau Evu Þórhildi, f. 1.10. 2013. For- eldrar Ólafs Helga eru Ólafur Þór Ólafsson, f. 10.12. 1936, og Þórdís Ólafsdóttir, f. 20.11. 1940. Systur Ólafs Helga eru 1) Ásdís, f. 10.4. 1962. Börn hennar eru Selma Hrönn og Óskar Þór. 2) Vigdís, f. 13.6. 1966. Eiginmaður hennar er Ás- geir Þór Árnason og börn þeirra eru Heiða María og Árni Steinn. 3) Valdís, f. 9.9. 1976. Eig- inmaður hennar er Jóhann Dav- íð Snorrason og synir þeirra eru Markús Orri og Matthías Kári. Anna Björg ólst upp í Þor- lákshöfn en var mörg sumur í sveit hjá afa sínum og ömmu á Borgarfirði eystri og leit hún ávallt á sig sem Borgfirðing. Hún stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni og Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Sel- fossi þaðan sem hún lauk Anna Björg var 19 ára og ég 17. Óli bróðir var að koma með kær- ustuna á Valdastaði í fyrsta skipti. Ég var full efasemda. Einhver Þorlákshafnarbredda að koma í fjölskylduna. En áhyggjurnar hurfu fljótt eftir að hún mætti á svæðið. Bauð snaggaralega góðan daginn með sinni hvellu rödd og fallega geislandi brosinu sínu. Við urðum strax vinkonur, alveg frá fyrsta degi. Það bar aldrei skugga á þann vinskap. Við vorum eig- inlega eins og systur, miklir sálu- félagar og samrýndar eins og sokkapar. Vorum oft spurðar að því hvort við værum systur. Hugsuðum eins, sögðum það sama á sama tíma, völdum sömu flugurnar fyrir þá mörgu laxa sem við glímdum saman við. Anna Björg var alveg einstök mann- eskja. Hugsaði fyrst og fremst um velferð annarra. Kunni ekki að segja nei. Heimili Önnu og Óla hefur alltaf staðið opið. Ég fékk að vera eitt af „gæludýrunum“ í Álfatúninu eins og þau kölluðu okkur sem fengum að búa hjá þeim í einhvern tíma. Eftir að þau fluttu á Valdastaði voru alltaf allir velkomnir og alltaf nóg að borða enda iðulega seilst eftir hræðslu- kjöti í frystinn ef minnstu áhyggj- ur voru af skorti. Anna Björg var snilldarkokkur. Átti sinn mat- jurtagarð og dekraði við krydd- jurtirnar í tíma og ótíma. Svo var hún ein besta veiðikona sem ég hef kynnst og mikill náttúruunn- andi. Stórt skarð er höggvið í veiðiklúbbinn okkar, Óðflugurn- ar. Það vantar svo mikið þegar það vantar eina, erum við Óðflug- urnar vanar að segja. Fjölmargar yndislegar stundir átti ég með Önnu Björgu. Sumarbústaðar- ferðir, utanlandsferðir, endalaus- ar veislur á Valdastöðum og allir veiðitúrarnir. Alltaf gaman, alltaf gleði, mikið hlegið, aldrei vesen hjá okkur en vesenið var skrokk- urinn hennar. Meiri hrakfalla- bálki hef ég ekki kynnst í lífinu. Bæði hné ónýt, gömul íþrótta- meiðsl, slatti af slysum, skurðir og aðgerðir hér og þar. Svo fór bakið í slagsmálum við hrút og þegar krabbinn bankaði upp á í fyrra- sumar þá sagðist hún í æðruleysi bara hafa átt það eftir. Fallega brosið dofnaði smátt og smátt og meinið sigraði að lokum. Hversu ósanngjarnt getur lífið verið. Ég geymi fallegar minningar um mína kæru mágkonu, vinkonu og veiðivinu. Elsku Anna Björg, takk fyrir öll góðu árin. Þú lofar að hjálpa mér áfram að finna réttu fluguna. Vigdís. Anna Björg vinkona mín, frænka og bekkjarsystir er fallin frá. Ég var heppin að fá að alast upp í samfélagi með Önnu Björgu, minningar mínar frá æsku og skólagöngu eru ótrúlega margar tengdar henni. Anna Björg var kletturinn í hópnum hvort sem við vorum við leik eða í skólanum. Hún var bráðþroska krakki, bæði andlega og líkamlega, stór og öfl- ug miðað við okkur hin og sátta- semjarinn í hópnum ef þess þurfti með. Það var einhvern veginn alltaf svo gott að vera í návist hennar. Strax í æsku tengdumst við einstökum og ljúfum böndum sem aldrei hafa rofnað þó svo að á stundum hafi tognað verulega á þeim. Þessi bönd áttu þann góða eiginleika að þegar við hittumst eða heyrðumst í síma skruppu þau saman og við urðu jafn sterk og ljúf og þegar við vorum stelpu- skjátur. Við vorum jafnöldrur og bekkj- arsystur í einstaklega samheldn- um bekk sem hefur haft þann sið að hittast nokkuð reglulega. Síð- ast í haust hittumst við nokkur úr bekknum í tilefni af 35 ára ferm- ingarafmælinu. Anna Björg komst ekki, hún var upptekin í baráttunni við krabbameinið sem lagði hana að velli föstudaginn 13. mars. Það hefur verið óskrifuð regla hjá bekknum að byrja á því að hittast í kirkjugarðinum í Þor- lákshöfn þar sem tvö úr bekknum eru jarðsett. Þorbergur sem lést úr hvítblæði 30. maí 1979 og Auð- ur sem drukknaði í höfninni 8. des. 1979 í bílslysi, sem Anna Björg og bekkjarsystir okkar, Hafdís Guðmunds, björguðust úr. Það var einstök stund sem við átt- um saman nokkur úr hópnum þetta kvöld í kirkjunni áður en við gengum út í garð. Þá ræddum við veikindi Önnu Bjargar og baráttu hennar framundan, sameinuð- umst í þögninni og sendum til hennar góðar hugsanir og strauma. Ég veit að ég get lofað því fyrir hönd hinna bekkjar- systkinanna að við eigum örugg- lega eftir að gera okkur ferð í Kjósina þegar við hittumst næst og að við munum kveikja á kerti og leggja blóm á leiðið hennar Önnu Bjargar. Í nokkur ár fórum við vinkon- urnar saman og veiddum í bæj- arlæknum á Valdastöðum í byrj- un september. Veiðiklóin Anna Björg átti ekki í vandræðum með að fá fisk en öðru máli gegndi um mig. Henni leið ekki vel með að senda vinkonu sína heim fisklausa og lagði ýmislegt á sig til að bjarga því. Meðal annars datt hún í ána og varð rennvot frá toppi til táar. Hún fann það fljótlega út að ein- faldasta leiðin var sú að hringja í Óla sinn til að redda málunum sem hann gerði að sjálfsögðu. Það voru dýrmætar stundir sem við stöllurnar áttum saman á bökkum Laxár í Kjós, bara tvær og rædd- um um lífið og tilveruna og hvað við vorum heppnar með örlög okkar í lífinu. En enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Við sáum ævilok Önnu Bjargar ekki fyrir svona snemma, við ætluðum báðar að verða gamlar kerlingar og veiða saman í ellinni. Um leið og ég votta Óla Helga, Þórdísi, Óla Geir og Sigrúnu, for- eldrum Önnu Geirlaugu og Sveini, tengdaforeldrunum Ólafi Þór og Þórdísi og öðrum aðstandendum samúð mína vil ég þakka Önnu Björgu fyrir samfylgdina. Minn- ing hennar lifir meðal okkar sem vorum svo gæfusöm að kynnast henni. Jenný Erlingsdóttir. Á votum og vindasömum degi missti Kjósin einn af sínum öfl- ugustu bústólpum. Hin sam- heldna fjölskylda á Valdastöðum missti máttarstoð sem hefur í rúm þrjátíu ár staðið vaktina í sauð- burði, komið heyi í hús, henst á eftir skjátum í smalamennsku og smám saman tekið æ meiri ábyrgð á rekstri hins blómlega bús. Þegar þú tekur við skráning- um í ærbókina er ábyrgðin orðin ærin. Vætusumarið 1983 var hið fyrsta af fjölmörgum sem ég gegndi stöðu ráðsmanns á Valda- stöðum. Þolanleg frammistaða á reynslutíma í sauðburðinum tryggði mér ráðningu út sumarið. Let’s Dance með David Bowie var hljóðheimur sumarsins sunnan undir Reynivallahálsi. Fljótlega fór að kvisast að vertíðin í Þor- lákshöfn þann veturinn hefði ver- ið frænda mínum Óla Helga óvenju happadrjúg. Upp úr því fór að verða töluverður spenning- ur á bænum þegar von var á Önnu Björgu austan að þegar vaktafrí var í Skálanum. Við biðum þolin- móð í Subarunum við þjóðveginn þangað til að Sæmundur skreið yfir Laxárbrúna og út stökk Anna með sitt breiða bros, þó örlítið feimin til að byrja með. Það leið ekki á löngu áður en feimnin vék fyrir dillandi hlátri og raust í hærri kantinum sem féll vel að umræðunum við krásum hlaðið eldhúsborðið. Ekki lét hún orðin nægja heldur tók strax virkan þátt í störfum og leik Kjósverja. Laxveiði er fólkinu á Valdastöð- um í blóð borin en það kom fljótt í ljós að austfirskur ættbogi og uppeldi í Þorlákshöfn myndu duga Önnu og vel það á árbakk- anum. Þeir voru dregnir ófáir á land laxarnir hvort sem það var úr Straumunum með Óðflugunum eða úr Laxánni svo ekki sé minnst á blessaða Bugðuna. Elja, bjart- sýni og örlítið af þrjósku eru nauðsynlegir eiginleikar góðs veiðimanns. Anna Björg var góð- ur veiðimaður. Anna Björg kom í Kjósina með sinn kraftmikla persónuleika, breiða bros og eilífan vilja til verka sem urðu svo áreynslulaust órjúfanlegur hluti þessa Valdastaðakarakters sem hver sem þangað kemur þekkir vel. Samfélagslegar stoðir Kjósarinn- ar, hvort sem það eru kvenfélag, bókasafn eða sveitarstjórn hafa notið þessara eiginleika Önnu Bjargar og ímynda ég mér að þær verði ögn rýrari án þeirra. Veturinn hefur verið langur og erfiður en framundan er sauð- burðurinn sem var alltaf í uppá- haldi hjá Önnu. Þá hörfar vetur- inn, dagurinn teygir sig langt inn í nóttina og ný líf kvikna. Við kom- um saman, fjölskylda og vinir, þökkum fyrir góðan tíma með góðri vinkonu en syrgjum að sá tími verði ekki lengri. Megi allar góðar vættir styðja og styrkja fjölskyldu Önnu Bjargar á erfið- um tímum. Karl Guðmundsson. Línan leggst fagurlega út fyrir skilin, berst mjúklega niður að Strenghorninu og á nákvæmlega réttum stað strekkist á henni og kunnuglegt bros veiðikonunnar í ánni til okkar sem sitjum á bakk- anum gefur til kynna að hann sé á. Veiðiklóin klikkar ekki í tökunum. Hún klikkaði heldur aldrei á því að vera í rauðu sokkunum og helst líka rauðu peysunni ef hún fór til veiða. Líklega hefur það eitthvað haft að segja með aflasældina. Bjarta brosið hennar Önnu Bjargar mun sitja áfram í sálum okkar hinna í okkar árlegu veiði- ferðum í Straumana í Borgarfirði. Við Óðflugurnar sjö höfum far- ið þar saman til veiða í 24 ár. Anna Björg var gríðarlega stór per- sóna. Laðaði að sér fólk úr öllum áttum með einstakri nærveru og hlýju. Þessi hressa, kraftmikla, hláturmilda aflakló, matgæðing- urinn, vinurinn, bóndinn, stelpan úr Borgarfirði eystri sem sagði allar skemmtilegu sögurnar og orðatiltækin þaðan – Þorláks- hafnarstelpan sem varð að bónd- anum í Kjósinni og féll eins og flís við samfélagið. Nú hefur stórt skarð verið höggvið í okkar hóp. Vorvindar þjóta og líður að veiðitíma. Eitt- hvað verða hlátrasköllin daprari við ána okkar óendanlegu í sumar sem áfram mun renna djúp og breið til sjávar. Hver spyr nú: „Hefur einhver séð Simmsarana mína?“ Hver raular nú „Summer- time“ um leið og hún hnýtir flug- una fimlega á tauminn? Hver grillar nú hamborgarana á pall- inum í hádeginu og dillar sér með „I feel good“ í botni, með campari/ appelsínusafa innan seilingar? Hvernig förum við að? Það vantar svo mikið þegar það vantar eina. Kvenveiðifélagið Óðfluga, Brynhildur, Hjördís, Hrafnhildur Inga, Sólveig, Vigdís og Þórdís. Þá er þessari stuttu en snörpu orrustu Önnu Bjargar lokið með sigri vágestsins. Þeir sem fylgd- ust með framvindu mála gerðu sér fljótlega grein fyrir að þessi barátta yrði einstefna. Því miður í öfuga átt. Vonlaus bardagi henn- ar var hetjulegur eins og hennar var von og vísa. Það verður að sættast við orðinn hlut, þó sárt verði. Það mun taka langan tíma. Ég kynntist Önnu Björgu skömmu eftir að ég kynntist eig- inmanni hennar við laxveiðar í Laxá í Kjós á níunda áratugnum. Anna Björg var mér afar kær. Við áttum skap saman og aldrei bar skugga á okkar vináttu öll þessi ár. Hún var einstök, með afbrigð- um geðgóð og skemmtileg. Bros- mildi og yndislegt hjartalag henn- ar var alþekkt á Borgarfirði eystra, í Þorlákshöfn og loks í Kjósinni. Þar varð hún fljótlega örugg og skelegg bústýra, setti rækilega svip sinn á Valdastaði og sveitina. Þar fór ekkert mannlegt fram hjá henni. Hún er með skemmtilegri konum sem ég hef kynnst og ég sá hana sjaldan skipta skapi. Það var einna helst að hún hvessti sig við okkur fé- lagana á yngri árum ef henni fannst farið fram úr hófi í ýmsum efnum. Barngóð var hún með afbrigð- um. Yngri dóttir mín dáði hana mikið sem barn og kallaði hana Ömmu Björgu. Önnu Björgu lík- aði þessi afbökun á nafni sínu afar vel og hafði oft á orði og hló. Hún vissi að fátt er fimm ára gamalli hnátu kærara en amma sín. Þetta segir margt um Önnu Björgu. „Þú blekkir ekki börn“ hefur verið sagt. Enda blekkti hún aldrei neinn. Stálheiðarleg og með ríka réttlætiskennd. Lífsviðhorf henn- ar voru einföld. Fjölskylda og vin- ir voru í fyrirrúmi. Hún var stolt af uppruna sínum, heimilinu og Kjósinni. Hjálpsöm, skilningsrík og umfram allt traust kona. Gott geðslag hennar var ávallt ein- kennandi og með kærleiksrík augu í fallegu andliti. Samverustundir voru margar með Önnu Björgu í gegnum tíð- ina. Minnisstæðar sumarbústaða- ferðir. Heimsóknir á Valdastaði með og án barna og barnabarna eru eftirminnilegar. Valdastaðir voru eins og félagsmiðstöð þegar sauðburður stóð yfir, einnig þegar kúnum var hleypt út að vori og allt fram eftir sumri, að réttum að hausti – öllum borgarbörnum til mikillar skemmtunar. Ekki má gleyma heimalningunum. Barna- skarinn var oft mikill á Valdastöð- um, sem jók álagið á húsfreyjuna á annars annasömu heimili. Því tók Anna Björg með brosi á vör og „gaf svo á garðann“ því ekkert barn fór svangt frá Valdastöðum. Sérkapítuli eru ógleymanlegar veiðiferðir í margar laxveiðiár og auðvitað í Laxá í Kjós. Anna Björg var fljót að ná góðum tök- um á laxveiði og varð feikilega góður flugukastari. Í veiðiferðum okkar – eins og í hversdagslegu lífi – komu helstu eiginleikar hennar í ljós; dugnaður, ósér- hlífni, útsjónarsemi að ógleymdri kímnigáfunni. Það voru forréttindi að kynnast Önnu Björgu og eiga með henni ógleymanlegar stundir. Hún var mæt kona og eftirminnileg. Henn- ar mun ég minnast um aldur og ævi. Ég votta Óla Helga, Þórdísi, Óla Geir, foreldrum, tengdafor- eldrum og öðrum ástvinum mína dýpstu samúð. Gylfi Gautur Pétursson. Við kveðjum í dag Önnu Björgu vinkonu okkar. Við sitjum eftir með allar góðu minningarnar, litla Anna Björg með sína yndislegu glaðværð og dillandi hlátur. Hún ólst upp í Þorlákshöfn og okkur er minnisstætt þegar barnahópurinn var að leikjum bæði úti eða inni, þá var Anna Björg alltaf glöð og kát og stráði geislum sólar í kring- um sig. Fjölskyldur okkar höfðu mikil samskipti og Anna Björg var tíður gestur á okkar heimili. Tím- inn leið og þegar Anna Björg kom til okkar sem fullorðin kona fylgdi henni alltaf gleði í húsið. Við hjónin kveðjum góða vin- konu með þökk fyrir tryggð og vináttu alla tíð. Eiginmanni og börnum, Geiru, Sveini og bræðr- um og tengdafólki hennar vottum við samúð okkar. Blessuð sé minning hennar. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Sigurður (Siggi) og Ragna. Allir sem þekktu Önnu Björgu Sveinsdóttur vita að nú er horfin ein af eðaldætrum þessa lands, horfin og kemur ekki aftur. En megi hennar glaðlega fas fylgja okkur hinum í minningunni. Minningunni um konuna sem var hrókur alls fagnaðar á góðum stundum, dugnaðarforkur í dags- ins önn og amstri, sterk og þraut- seig í andstreymi lífsins. Minningunni um bóndann sem unni búfénaði sínum, stangveiði- konuna sem kastaði flugunni og naut útiverunnar, húsmóðurina sem hélt þétt um fjölskyldu sína. Minningunni um konuna sem elskaði lífið og ræktaði garðinn sinn, og síðast en ekki síst, hafði auga fyrir fegurð þess smáa og beið spennt eftir komu lóunnar á hverju vori. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar Óli Helgi, Þór- dís, Óli Geir og fjölskylda Katrín og Björn, Kiðafelli III. Anna Björg Sveinsdóttir HINSTA KVEÐJA Sólin sveif á tindi Baulu í blárri vornóttinni og skreytti Skessuhornið rauðri skotthúfu við dönsuðum á milli trjánna með skógarþrestinum vöknuðum glaðar að morgni og gengum sjö til veiða í silkimjúkri ánni gott er að minnast góðra daga á bakkanum með kærri Óðflugu. Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir. Elsku Anna Björg. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Kærleikskveðja. Fyrir hönd Unghjóna- klúbbsins í Kjósinni, Jóhanna og Sigríður Klara. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Útfararþjónusta í 20 ár Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G.Guðmundsson Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300 www.fylgd.is • fylgd@fylgd.is Þjónusta allan sólarhringinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.