Morgunblaðið - 21.03.2015, Síða 55

Morgunblaðið - 21.03.2015, Síða 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég var ekki nema átta ára þegar ég ákvað að ég ætlaði að verða kvik- myndaleikstjóri. Ég veit enn ekkert svalara starf í heimi en kvikmynda- leikstjórn, nema ef vera skyldi geim- fari,“ segir Ask Hasselbalch, leik- stjóri Antboy-myndanna, en fram- haldsmyndin Antboy: Rauða refsinornin var opnunarmynd Al- þjóðlegu barnakvikmyndahátíðar- innar í Reykjavík í Bíó Paradís. En þó Hasselbalch hafi ungur vitað hvað hann vildi verða gekk það ekki þrautalaust fyrir sig. „Ég sótti um að komast inn í annars vegar Kvik- myndaskólann og hins vegar Super 16 kvikmyndaskólann, en var hafnað í þrígang hjá báðum skólum,“ segir Hasselbalch, sem komst að lokum inn í Super 16 þegar annar nemandi for- fallaðist. „Eftir á að hyggja get ég viðurkennt að ég lærði mjög mikið af umsóknarferlinu. Á sínum tíma var ég of upptekin af því að segja í um- sóknarviðtölum það sem ég hélt að menn vildu heyra í stað þess að vera einlægur og þora að fylgja eigin sannfæringu.“ Betri persónusköpun Hasselbalch lauk námi 2010 og fljótlega höfðu stjórnendur hjá danska kvikmyndaframleiðandanum Nimbus Film samband við hann. „Þeir buðu mér að gera hryllings- mynd,“ segir Hasselbalch og við- urkennir að hann sé mikill hryllings- myndaaðdáandi. „Ég er mér hins vegar afar meðvitaður um að mark- aðurinn fyrir hryllingsmyndir er mjög lítill í Danmörku. Þegar ég síð- an komst að því að Nimbus ætti kvik- myndaréttinn á teiknimyndabókum Kenneths Bøgh Andersen um Antboy þá varð ekki aftur snúið. Mér fannst það ótvíræður kostur að gera mynd sem myndi höfða til breiðari aldurshóps,“ segir Hasselbalch og tekur fram að auðsótt hafi verið að Þorir að vera einlægur Morgunblaðið/Eggert skipta um verkefni hjá Nimbus. Fyrsta Antboy-myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto 2013 við glimrandi viðtökur, en sýning- arrétturinn hefur nú þegar verið seldur til 35 landa. Antboy: Rauða refsinornin var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Berlín í fyrra og hefur verið seld til 38 landa. „Tökur á þriðju myndinni hefjast næsta sumar og er ætlunin að frumsýna hana í jan- úar 2016,“ segir Hasselbalch og þver- tekur fyrir að myndirnar verði fleiri. „Enda verða börnin þá orðin of göm- ul fyrir hlutverk sín auk þess sem mér finnst vera tími til kominn að ég snúi mér að öðrum verkefnum,“ segir Hasselbalch sem er þegar kominn með nýja mynd á teikniborðið hjá Nimbus sem kynnt verður í næstu kvikmyndahátíð í Cannes auk þess að vera með umboðsmann í Bandaríkj- unum. Spurður hvernig hann skýri vin- sældir Antboy-myndanna segir Has- selbalch ljóst að manneskjan þurfi á hetjum að halda. „Það reyndist myndunum einnig til tekna að hafa ekki úr of miklum fjármunum að spila. Við vorum ekki að gera Marvel- mynd með fullt af tæknibrellum og sprengingum. Af þeim sökum varð persónusköpunin að vera þeim mun betri og áhugaverðari,“ segir Hassel- balch. Antboy fjallaði um Pelle sem öðlast ofurkrafta eftir að hafa verið bitinn af maur. „Vináttan er meg- inþema myndarinnar, en Wilhelm sem er teiknimyndanörd hjálpar Pelle að takast á að við ofurhetju- hæfileika sína. Myndin fjallar um vanda þess að eiga ekki vini og vera nær ósýnilegur í hópnum. Eftir því sem Pelle eignast fleiri vinir og vin- skapurinn styrkist áttar hann sig á því að vinátta er mikilvægasta ofur- hetjuaflið,“ segir Hasselbalch, en fyrsta myndin byggist að stærstum hluta á bók nr. 1 og 3 um Antboy eftir Kenneth Bøgh Andersen. „Fram- haldsmyndirnar tvær skrifar Anders Ølholm í náinni samvinnu við mig, auk þess sem Kenneth les yfir,“ segir Hasselbalch og tekur fram að sig hafi, í mynd tvö, langað til að skapa sterkari kvenhlutverki. „Önnur myndin fjallar um vanda þess að samþætta einkalíf og vinnuna, því það er alls ekki auðvelt að vera ofur- hetja,“ segir Hasselbalch og tekur fram að grunnstef beggja mynda sé eitthvað sem allir geti tengt við. „Í þriðju myndinni fer fókusinn aftur í auknum mæli á vináttuna,“ segir Hasselbalch. Spurður hver sé lykill- inn að því að gera vel heppnaða barna- og unglingamynd svarar hann því til að það sé að skipa rétt í hlut- verkin. „Ég eyddi óheyrilegum tíma í að prufa börn til að finna réttu leik- arana,“ segir Hasselbalch og bætir síðan við að sér hafi reynst best að æfa lítið sem ekkert. „Ég gerði auð- vitað kröfu um að þau kynnu textann sinn og síðan útskýrði ég fyrir þeim senurnar. Við æfðum í mesta lagi í 20 mínútur fyrir hverja töku og töldum svo í. Bestu tökurnar voru þær þar sem leikurinn var algjörlega nátt- úrulegur og byggðist á eðlilegu við- bragði, en sú stemning virðist glatast hjá börnum ef æft er of mikið.“ Að sögn Hasselbalch leggur hann mjög mikið upp úr því að endurtaka sig ekki sem leikstjóra heldur vera stöðugt að takast á við nýjar áskor- anir. „Sem dæmi má nefna að sjón- rænt séð verður mikill munur á myndunum þremur. Fyrsta myndin bjó yfir heitum haustlitum meðan önnur myndin einkennist af köldum vetrarlitum og meiri drunga. Þriðja myndin verður síðan sumarmynd,“ segir Hasselbalch og tekur fram að húmor sé sér mjög mikilvægur og muni væntanlega rata með ein- hverjum hætti inn í allar myndir hans. „Mér finnst líka mjög gaman að leika með ólíka kvikmyndastíla og hef gert mikið af því í þeim 13 stutt- myndum sem ég hef gert á ferlinum. Ólíkir kvikmyndastílar bjóða upp á mismunandi reglur sem gaman er að leika sér með,“ segir Hasselbalch og tekur fram að hann muni þó senni- lega aldrei gera vestra. „Því ég næ hreinlega engum tengslum við þann stíl.“  Þriðja Antboy-myndin fer í tökur næsta sumar  Ask Hasselbalch segir vænlegast til árangurs að æfa ekkert Svalur „Ég veit enn ekkert svalara starf í heimi en kvikmyndaleik- stjórn, nema ef vera skyldi geim- fari,“ segir Ask Hasselbalch. Billy Elliot (Stóra sviðið) Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fim 7/5 kl. 19:00 Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00 Fös 8/5 kl. 19:00 Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Fim 23/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fös 24/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Sun 26/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Mið 29/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Fim 30/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Sun 3/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Þri 5/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Sun 22/3 kl. 20:00 2.k Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 17/5 kl. 20:00 Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Þri 24/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 21/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Sprenghlægilegur farsi Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“ – Morgunblaðið HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið) Lau 21/3 kl. 19:30 28.sýn Sun 29/3 kl. 19:30 Lokas. Síðustu sýningar Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið) Fim 26/3 kl. 19:30 Frums. Fös 10/4 kl. 19:30 5.sýn Lau 18/4 kl. 19:30 9.sýn Fös 27/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/4 kl. 19:30 10.sýn Mið 1/4 kl. 19:30 3.sýn Fim 16/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 9/4 kl. 19:30 4.sýn Fös 17/4 kl. 19:30 8.sýn Eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta í uppsetningu Stefan Metz. Segulsvið (Kassinn) Sun 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 11/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 26/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 10/4 kl. 19:30 7.sýn Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson Konan við 1000° (Stóra sviðið) Lau 28/3 kl. 19:30 Lokas. Aukasýningar á Stóra sviðinu. Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Sun 22/3 kl. 13:30 Sun 29/3 kl. 13:30 Sun 22/3 kl. 15:00 Sun 29/3 kl. 15:00 Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn! Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 21/3 kl. 14:00 Lau 28/3 kl. 14:00 Lau 21/3 kl. 16:00 Lau 28/3 kl. 16:00 Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Minnisvarði (Aðalsalur) Sun 22/3 kl. 20:00 Fös 27/3 kl. 20:00 Mið 25/3 kl. 20:00 Sun 29/3 kl. 20:00 Vatnið (Aðalsalur) Lau 28/3 kl. 20:00 Sun 29/3 kl. 14:00 Mið 1/4 kl. 20:00 Dirt! The Movie (Aðalsalur) Þri 24/3 kl. 17:00 Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar (Aðalsalur) Fim 26/3 kl. 20:00 Carroll: Berserkur (Mörg rými Tjarnarbíós) Fim 9/4 kl. 20:00 Sun 12/4 kl. 20:00 Fös 17/4 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Mið 15/4 kl. 20:00 Sun 19/4 kl. 20:00 Lau 11/4 kl. 20:00 Fim 16/4 kl. 20:00 Eftir að hafa velkst um í frönsku dómskerfi um skeið hefur verið kveðinn upp úrskurður í máli raf- virkja sem vann á sínum tíma fyrir spænska listmálarann Pablo Pic- asso og sagði hann hafa gefið sér fjölda verka sem fundust hjá hon- um. Rafvirkinn Pierre Le Guennec og eiginkona hans voru ákærð fyrir að hafa í sinni vörslu alls 271 verk eftir listamanninn kunna, teikn- ingar og grafíkverk, að verðmæti hundruð millljóna, ef ekki milljarða króna. Dómari í Grasse dæmdi hjónin bæði í tveggja ára fangelsi og skipaði þeim að skila verkunum til Picasso-fjölskyldunnar. Verkin komu í leitirnar 40 árum eftir að Le Guennec sagði Picasso hafa gefið sér þau og höfðu þau þá verið geymd í bílskúr hjónanna all- an þann tíma. Börn Picassos og galleristar hans rengdu framburð rafvirkjans, sögðu Picasso aldrei hafa gefið slíka stafla verka, sem mörg hver voru ómerkt. Í þau skipti sem hann gaf myndir áritaði hann þær alltaf. Rafvirki Picassos dæmdur í fangelsi Sekur Pierre Le Guennec.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.