Morgunblaðið - 21.03.2015, Síða 60
LAUGARDAGUR 21. MARS 80. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Fylgstu með sólmyrkvanum
2. Hringdu skelfingu lostnir …
3. Þegar myrkrið skall á
4. Morgunpartí Vigdísar Hauks
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, verður aftur með sér-
viðburði í Kópavogi í haust. Lista- og
menningarráð bæjarins hefur ákveð-
ið að styrkja hátíðina um 3,5 milljónir
króna. Stefnt er að því að hafa við-
burði m.a. í Gerðarsafni, Salnum,
Bókasafni Kópavogs og Molanum.
Myndin var tekin í sundbíói RIFF í
Kópavogi í fyrra.
RIFF haldin aftur að
hluta til í Kópavogi
Námskeið fyrir börn um leiklist í
kvikmyndum verður haldið í dag kl.
14 í Bíó Paradís og er það hluti af
dagskrá Alþjóðlegrar barnakvik-
myndahátíðar sem stendur þar yfir.
Námskeiðinu stýra Ask Hasselbalch,
leikstjóri Antboy-kvikmyndanna,
Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri Algjör
Sveppi-myndanna, og Ólafur S.K.
Þorvaldz, leikari og leiklistarkennari.
Hasselbalch og Bragi munu fjalla um
heim barnakvikmyndagerðar og fjalla
um reynslu sína af því að leikstýra
börnum í kvikmyndum sínum og þátt-
takendur fá að kynnast leiklist í kvik-
myndum undir stjórn Ólafs. Skráning
á námskeiðið fer fram með tölvupósti
og skal senda hann á netfangið
helga@bioparadis.is.
Viðtal við Hassel-
balch má finna á
bls. 55 í Morgun-
blaðinu í dag og
kemur m.a. fram í
því að tökur á
þriðju og síðustu
Antboy-myndinni
hefjist í sumar.
Börn fá að kynnast
leiklist í kvikmyndum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í suðvestan 8-15 í dag með skúrum, en léttir til austantil. Hiti
2 til 10 stig að deginum, hlýjast norðaustantil.
Á sunnudag Suðvestan 8-15 m/s og él, léttskýjað á austurhelmingi landsins. Hiti um eða
yfir frostmarki að deginum. Gengur í norðlæga átt um kvöld með éljum við norðurströnd.
Á mánudag Norðan- og norðvestanátt 8-15 m/s, hvassast við austurströndina. Él á
Norður- og Austurlandi en léttskýjað sunnan jökla. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst.
María Guðmundsdóttir frá Akureyri
varð Íslandsmeistari í stórsvigi
kvenna á nýjan leik í gær og Einar
Kristinn Kristgeirsson varð Íslands-
meistari í stórsvigi karla þriðja árið í
röð en keppt var í greininni í Bögg-
visstaðafjalli við Dalvík. María full-
komnaði þar með endurkomu sína en
hún var hætt keppni eftir að hafa slit-
ið krossband í hné tvisvar. » 2-3
María fullkomnaði
endurkomuna
Keflvíkingar gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu Hauka á úti-
velli eftir framlengdan leik í
fyrstu umferð úrslitakeppni
karla í körfuknattleik í gær-
kvöld. Þeir enduðu í sjötta
sæti deildarinnar en hafa nú
náð undirtökunum í einvíg-
inu gegn Hafnarfjarðarlið-
inu sem endaði í þriðja sæti.
Á Sauðárkróki vann Tinda-
stóll tólf stiga sigur á Þór úr
Þorlákshöfn. »2-3
Keflvíkingar í
betri stöðu
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Það gengur bara nokkuð vel en
maður þarf samt að púsla þessu
saman. Ég sinni hestamennskunni
annaðhvort í byrjun dags eða á
kvöldin. Það er eini tíminn sem mað-
ur hefur þegar maður er í fullri
vinnu, svo á ég líka tvær litlar stelp-
ur. En við erum öll fjölskyldan í
hestamennskunni,“ segir Játvarður
Jökull Ingvarsson en hann sigraði í
töltkeppni áhugamannadeildar
Spretts. Hann sat hryssuna Röst frá
Lækjamótum og hlutu þau í loka-
einkunn 7,33.
Töltkeppnin var síðasta keppnin í
mótaröð áhugamannadeildar
Spretts sem kennd var við fyrir-
tækið Glugga og gler. Keppt var í
fjórum greinum í deildinni: slak-
taumatölti, fjórgangi, fimmgangi og
fyrrgreindri töltkeppni. Reiknuð
voru stig fyrir árangurinn og einnig
liðakeppnina en 14 lið tóku þátt sem
skipuð voru fjórum knöpum hvert.
Lið Játvarðs, Margrétarhof, var
jafnframt stigahæsta liðið í tölt-
keppninni og er það stigahæsta í
deildinni í ár.
Góðir hestar og þjálfari
Játvarður stendur jafnframt uppi
sem sigurvegari í einstaklings-
keppninni. Fyrir töltkeppnina var
hann efstur að stigum því hann sigr-
aði í slaktaumatölti á hestinum Bald-
vin frá Stangarholti. Sá hestur er
m.a. Íslandsmeistari í þeirri grein,
þá undir stjórn Reynis Arnar
Pálmasonar, reiðkennara og
tamningamanns, en Reynir er
þjálfari liðs Margrétarhofs.
„Að vera vel hestaður og
með góðan þjálfara skiptir
miklu máli í þessu. Ég hef
lært alveg rosalega mikið í
vetur og þjálfunin
hefur verið
markvissari
undir stjórn Reynis,“ segir Játvarð-
ur Jökull, spurður hver sé lykillinn
að árangrinum, en Játvarður hefur
stundað hestamennsku frá unga
aldri.
Aðstandendur eiga hrós skilið
„Það hefur verið virkilega gaman
að keppa í þessari deild, margir
áhorfendur og allur aðbúnaður mjög
flottur. Aðstandendur deildarinnar
eiga hrós skilið fyrir framtakið.
Þetta hleypir miklu lífi í hesta-
mennskuna og lengir tímabilið þar
sem fólk tekur hrossin fyrr inn en
annars.“
Játvarður ætlar án efa að taka
þátt aftur að ári. Hann er þegar bú-
inn að koma auga á góð hross sem
hann ætlar að tefla fram að ári.
Nýtir morgnana og kvöldin vel
Sigursæll í
áhugamanna-
deild Spretts
Ljósmynd/Hulda G. Geirsdóttir
Áhugamannadeild Spretts Játvarður Jökull Ingvarsson á hryssunni Röst frá Lækjamótum kampakátur eftir sigur
í töltkeppni, önnur var Birgitta Dröfn Kristinsdóttir á stóðhestinum Barða frá Laugarbökkum.
„Það varð strax ljóst um leið og
við auglýstum eftir liðum til að
taka þátt síðastliðið haust að
áhuginn var mikill. Það má
eiginlega segja að þetta hafi
farið fram úr okkar björt-
ustu vonum,“ segir Magnús
Benediktsson, einn af for-
sprökkum áhugamannadeild-
ar Spretts.
Fyrirmynd deildar-
innar er sótt til
meistaradeildarinnar í hesta-
íþróttum sem hefur verið haldin
um árabil á Suðurlandi þar sem
atvinnumenn keppa.
Hins vegar var fyrirkomulag
áhugamannadeildarinnar með
þeim hætti að fyrirtæki keyptu
auglýsingu á hverja keppnisgrein
og var t.d. keppt síðastliðið
fimmtudagskvöld í Top reiter-
töltinu. Stefnt er að því að mótið
verði eins að ári.
Fram úr björtustu vonum
MIKILL ÁHUGI MEÐAL HESTAMANNA
Magnús
Benediktsson
Eftir að hafa notast við sama byrj-
unarlið í öllum fjórum leikjum undan-
keppni EM í knattspyrnu í haust, með
árangri upp á 2. sæti og 75% sigur-
hlutfall, er ljóst að Heimir Hallgríms-
son og Lars Lagerbäck þurfa að
breyta til fyrir leikinn við Kasakstan
ytra eftir slétta viku. Viðvörunar-
bjöllur klingja vegna
stöðunnar á sókn-
armönnum Íslands
en lausnin gæti
verið falin í
Eiði Smára
Guðjohnsen
sem er í
hópnum á
ný. »1
Eiður gæti leyst vanda-
mál í sóknarleiknum