Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Skarthúsið
Laugavegi 44 • Sími 562 2466
Fermingarhárskraut
Kristalsteinar kr. 290 stk.
Fallegir krossar, semelíu-
armbönd, fermingarhanskar
og blómakransar í miklu
úrvali.
Sendum í póstkröfu
Vertu vinur á Facebook
S
tutt er síðan íbúar Kóap-
vogs eignuðust nýja kirkju,
Lindakirkju. Sóknin er stór
og fermingarbarnahópurinn
ekki lítill skari.
Guðmundur Karl Brynjarsson
segir að þetta vorið fermist 190
börn í kirkjunni. Auk Guðmundar
starfa þeir sr. Guðni Már Harð-
arson og sr. Sveinn Alfreðsson í
Lindakirkju og deila með sér að
ferma þennan stóra hóp.
„Þá eru fleiri en prestarnir sem
koma að fermingarfræðslunni og
rétt að nefna sérstaklega Áslaugu
Helgu Hálfdánardóttur sem heldur
utan um tónlistarmálin,“ segir Guð-
mundur.
Fermingarnar dreifast á tvær
helgar auk skírdags. Eru þá tvær
fermingarmessur á laugardögum,
önnur kl. 10:30 og hin kl. 13:30, og
svo kl. 13:30 á sunnudögum. „Við
reynum að dreifa hópnum þannig
að ekki fermist fleiri en 26-27 börn
í hverri messu.“
Messur engin kvöð
Fermingarfræðslan byrjar strax í
ágúst og velja börnin sér þá vers úr
Biblíunni til að fara með á ferming-
ardaginn.
Í Lindakirkju er ferming-
arfræðslan á ýmsan hátt frábrugðin
því sem gengur og gerist hjá öðr-
um kirkjum. Þannig er t.d. engin
kvöð lögð á börnin um að mæta í
messu. Guðmundur segir þetta fyr-
irkomulag hafa reynst vel. Í staðinn
er sá háttur hafður á að önnur hver
kennslustund í fermingarfræðslunni
er helgistund. „Við skiptum ferm-
ingarbarnahópnum í þrennt fyrir
kennslu og umræður en sameinum
hópinn í helgistundinni hálfsmán-
aðarlega. Þar segjum við bibl-
íusögur og leggjum áherslu á söng
og tónlist. Hefur tekist ofboðslega
vel að fá þau til að taka undir söng-
inn og einstaklega gaman á þessum
samkomum.“
Að mati Guðmundar sendir það
ungmennunum betri skilaboð ef
þau upplifa sig ekki tilneydd að
mæta til messu, enda á messan að
vera viðburður sem fólk á að
njóta þess að sækja.
Sígildar spurningar
Fermingarfræðslan er gott
tækifæri fyrir börnin til að spyrja
prestinn út í lífið og tilveruna. Þar
er rýnt í trúna, rætt um sam-
félagið, eistaklinginn, sambönd og
samskipti. Áhugavert er að skoða
hvort umræðan hefur breyst, eða
hvort spurningarnar eru aðrar, nú
þegar börnin geta flett upp Wi-
kipediu í snjallsímanum á auga-
bragði.
Á Guðmundi má heyra að
tæknin hefur ekki breytt spurn-
ingunum mikið og yfirleitt eru
það sömu hlutirnir sem brenna á
unga fólkinu, ár eftir ár. „Við leit-
umst t.d. við að svara klassískum
heimspekilegum og trúarlegum
spurningum eins og hvort Guð
geti, ef hann er almáttugur, skap-
að svo stóran stein að hann geti
ekki lyft honum sjálfur.“
Sem betur fer virðist ekki held-
ur að kreppuárin hafi haft nei-
kvæð áhrif á unga fólkið og þrátt
fyrir að víða hafi verið þröngt í
búi segist Guðmundur ekki greina
að þessi mögru ár hafi lagst
þungt á fermingarbörnin. Ef eitt-
hvað er hefur andinn í þjóðfélag-
inu og áherslurnar breyst til betri
vegar:
„Hann Guðni Már, kollegi minn
hér í Lindakirkju, heyrði á tal
tveggja ungra stráka þegar þessi
ósköp voru nýdunin yfir, vorið
2009. Annar spurði hinn hvort
hann væri að fermast út af gjöf-
unum, eða út af trúnni. „Vegna
trúarinnar, auðvitað, svaraði hinn.
Það fermist enginn vegna gjaf-
anna núna, því það er kreppa!““
ai@mbl.is
Börnunum
frjálst að
koma í messu
Áherslurnar í fermingarfræðslunni hjá Lindakirkju eru
frjálslegri en víða annars staðar. Í stað messuskyldu er
önnur hver kennslustund fermingarfræðslunnar helgi-
stund þar sem börnin taka vel undir í söng.
Morgunblaðið/Kristinn
Velkomin Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson segir það senda ungmennunum röng skilaboð ef þau eru knúin til
að mæta til messu. Í stað messuskyldu eru haldnar helgistundir í fermingarfræðslunni.
Morgunblaðið/hag
Veganesti Ýmsar spurrningar brenna á fermingarbörnunum enda margt í gangi í lífi þeirra. Wikipedia og
Google virðast ekki getað svarað öllu. Myndin var tekin við fermingarathöfn í Grafarvogskirkju.